Lindin - 01.09.2003, Side 21
Vetrarstarfið
á Akureyri
Á Akureyri eru starfandi tvær
deildir fyrir börn og unglinga á
vegum KFUM og KFUK.Yngri
deildin (10-12 ára) er á mánu-
dögum klukkan 17:30 en ung-
lingadeildin (13-17 ára) fundará
fimmtudögum klukkan 20:00.
Fundirnir eru í félagsheimili
KFUM og KFUK í verslunarmið-
stöðinni Sunnuhlíð og er húsið
opnað 30 mínútum fyrir aug-
lýstan fundartíma. Mjög góð að-
staða er í félagsheimilinu og
ýmis áhugaverð leiktæki, meðal
annars fótboltaspil og billj-
ardborð.
Brugðið á leik á fundi í KFUM og
KFUK á Akureyri. Fyrir miðju er
sr. Guðmundur Guðmundsson
héraðsprestur.
hafa áhuga á skemmtilegu og
gefandi félagsstarfi eru hvattir til
að koma á fund í Sunnuhlíð en
fundirnir hefjast fimmtudaginn
I I. september (unglingadeild)
og mánudaginn 15. september
(yngri deild).
Göngugarpar Hvats
Á vegum KFUM og KFUK star-
far Sportfélagið Hvatur og er
það öllum opið. Nýjasta skraut-
fjöðurin í hatti þess er stofnun
Göngugarpa Hvats, fimmtudag-
inn 22. maí síðastliðinn. Fyrsta
verkefni garpanna var að ganga
svokallaða Selvogsgötu úr Hafn-
arfirði í Selvog í áföngum.
Gengnir voru 6 stuttir áfangar í
sumar en síðan endað á því að
ganga alla leiðina í einum rykk,
liðlega 30 km leið. Einnig var
gengið um Höfðaskóg við Hval-
eyrarvatn og verður haldið
áfram að ganga í nágrenni
Reykjavíkur fram á haustið. Sjá
nánar um starfsemi Hvats á
blaðsíðu 9 í blaðinu.
Stofnendur Göngu-
garpa Hvats við
vörðu Kershellis
í Gráhelluhrauni,
öðru nafni
Hvatshellis.
Opnunartími á Holtavegi
Aðalskrifstofa KFUM, KFUK og SÍK við Holtaveg
verður opin í vetur sem hér segir:
Mánudaga og fimmtudaga frá kl. 09-17.
Þriðjudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 09-16.
Á dagskránni í vetur verður
margt skemmtilegt og fjölbreytt
í boði. Unglingadeildin mun
taka þátt í landsmóti unglinga-
deilda sem haldið verður í
Vatnaskógi í febrúar en að auki
verður reynt að fara á Hóla-
vatn þar sem félögin starfrækja
sumarbúðir. Æskulýðsfulltrúi
KFUM og KFUK á Akureyri er
Jóhann Þorsteinsson kennari en
auk hans starfa Katrín Möller
Lína Rut Olgeirsdóttin Kristín
Olafsdóttir og séra Guðmund-
ur Guðmundsson í deildarstarf-
inu. Allir krakkar á Akureyri sem
í Reykjavík á Fm 102,9
á Akureyri á Fm 103,1
á ísafirði á Fm 102,9
á Siglufirði á Fm 106,5
á Húsavík á Fm 104,5
á Ólafsfirði á Fm 106,5
á Höfn í Hornafirði á Fm 102,9
og í Vestmannaeyjum á Fm 88,9