Lindin - 01.09.2003, Page 24
Adrenalín
gegn rasisma
Sr. Jóna Hrönn
Bolladóttir
starfar sem mið-
borgarprestur
KFUM/KFUK og
kirkjunnar.
Adrenalín gegn rasisma er
unglingastarf á vegum
miðborgarstarfs KFUM/KFUK og
kirkjunnan Starfið felst í fjöl-
þjóðakvöldum á kaffihúsi og æv-
intýraferðum unglinga gegn ras-
isma. Markhópur verkefnisins
eru Islendingar og innflytjendur
á aldrinum 14 til 20 ára. Mark-
miðið er að vinna að virðingu
og friði milli þjóðfélagshópa af
ólíkum uppruna með margvís-
legan bakgrunn í menningarlegu
og trúarlegu tilliti. Leitað er
leiða til að ungir innflytjendur
finni sig heima í íslensku þjóðfé-
lagi og að ungir Islendingar finni
sig heima í fjölþjóðasamfélaginu,
í því skyni að koma í veg fyrir
óæskilegar hópamyndanir og of-
beldi vegna fordóma.
Viðfangsefni verkefnisins er
hin breytta mynd íslensks sam-
félags í Ijósi vaxandi fjölda nýrra
innflytjenda úr öllum heims-
hornum, sem kallar á nýtt sam-
tal með þjóðinni. Það samtal er
þekkingarleit og sú leit er
skammt á veg komin.Verkið er
fólgið í grasrótarstarfi þar sem
ungu fólki af margvíslegu bergi
brotið er skapaður vettvangur
til umræðu um raunveruleg lífs-
gildi, siðferði og framtíðarsýn
sem horfir til friðar og gagn-
kvæmrar virðingar
Nú eru tvö ár síðan Adrena-
lín-starfið fór af stað og fer veg-
ur þess alltaf vaxandi. Ungling-
arnir koma frá nýbúadeild Aust-
Helga Kolbeinsdóttir flytur Ijóð
við opnun Ömmukaffis.
urbæjarskóla og Breiðholtsskóla
og síðan koma ungir Islendingar
frá Laugalækjarskóla til að taka
þátt í starfinu. Mikil samstaða og
gleði hefur skapast milli þeirra
Unglingar úr
Adrenalín gegn
rasisma takast á
í ævintýraferð
í Vindáshlíð.
Miðborgarstarf
KFUM/KFUK og
kirkjunnar hefur
aðsetur í Austur-
stræti 20 efri hæð
og nýtur góðs af
nálægðinni við
Ömmukaffi á
neðri hæðinni.