Lindin - 01.09.2003, Side 25
Frá opnun Ömmukaffis 2001.
nærri 60 unglinga sem tóku þátt
í starfinu síðastliðinn vetur Hóp-
urinn hittist þrjú kvöld í mánuði,
tvö í Ommukaffi í Austurstræti
20 og eitt í félagsmiðstöðinni
101 í Austurbæjarskóla. Þar fór
fram fræðsla og skemmtun, en
fyrst og fremst hópefli ungra
innflytjenda og ungra Islendinga.
Haustið 2002 heimsótti
Adrenalín-hópurinn Ölver undir
Hafnarfjalli þar sem KFUM og
KFUK starfrækja sumarbúðir Þar
var meðal annars fjallað um til-
finningar en einnig skrapp hóp-
urinn upp í Borgarfjörð og
skoðaði Surtshelli ásamt fleiru
markverðu. Um aðventuna var
síðan haldin mikil hátíð á vegum
hópsins í Laugarneskirkju. Þar
voru mættir 100 unglingar úr
Laugalækjarskóla ásamt 40 ung-
lingum úr Adrenalín-hópnum til
að vera viðstaddir frumsýningu
nýrrar myndar hópsins. Einnig
voru myndlistarverkefni kynnt
og loks fengu allir smákökur og
heitt súkkulaði með rjóma.
Vorið 2003 var farið í sum-
arbúðir KFUM og KFUK ÍVind-
áshlíð. Þar var dvalið í góðu yfir-
læti og unnið við myndlist og
leiklist. Þingvellir voru heimsóttir
og saga íslensku þjóðarinnar rifj-
uð upp með hópnum. I vor var
jafnframt haldinn alþjóðlegur
dagur með viðamikilli dagskrá á
vegum hópsins í Ráðhúsi
Reykjavi1<ur. Þar komu ungling-
arnir fram og sungu, léku og
sögðu frá li'fi sínu. Einnig var þar
feikna mikil myndlistarsýning á
verkum þeirra frá því um vetur-
inn. Hópar unglinga úr Breið-
holtsskóla, Austurbæjarskóla og
Laugalækjarskóla mættu þar
ásamt kennurum og fengu frá-
bæra fræðslu gegn fordómum
sem var alfarið í höndum ung-
linganna sjálfra sem starfa undir
merkjum Adrenalíns gegn ras-
isma.
Öll verkefni miðborgarstarfs
KFUM/KFUK og þjóðkirkjunnar
snúast um það að eiga samtal
við ungt fólk um raunveruleg lífs-
gildi og siðferði. Hin kristna trú
og boðskapur hennar er einstak-
urgrundvöllurtil forvarna meðal
ungs fólks. Miðborgarprestur
hefur aðstöðu í Austurstræti 20,
efri hæð. Þar er hægt að panta
viðtöl vegna aðstoðar eða sál-
gæslu í síma 561 0899 og 822
8865. Einnig er hægt að senda
tölvupóst á pósfangið mid-
borgarprestur@kirkjan.is.
Fordómar
Við kunnum ekki að elska, að virða hvert annað.
Manneskjur eru allar mótaðar úr sama efninu.
Ekki sumar úr gulli og aðrar úr silfri.
Hvað þarf til þess að við skiljum það?
Getum við aldrei lært af reynslunni?
Þrátt fyrir nekt okkar og allsleysi er við komum í
þennan heim þykjumst við eiga eitthvað í honum.
Við særum hvert annað. Særum þó mest þá sem
við elskum.
Manneskja er ávallt manneskja. Þó við komum
fram við hana eins og skepnu þá verður hún
alltaf manneskja því hún kann ekkert annað.
Of oft hefur hatrið stjórnað gerðum okkar og fá-
viskan sem það er sprottið upp af.
Hvernig? Hvernig getum við gert öðrum þetta?
Vitum við ekki að þeir finna til eins og við, þeir
gráta og gleðjast.
Guð sér hjörtu mannanna.Við sjáum ekki hjörtu
þeirra fyrir umbúðunum.
Litir eru í raun aðeins endurkast sólargeislanna af
því efni sem þeir lenda á.
Ekki öll dýr sjá í lit.
Af hverju reynum við alltaf að breiða yfir óöryggi
okkar með því að benda á aðra?
Af hverju erum við svona hrædd við að vera talin
öðruvísi, ekki hluti af hópnum?
Fordómar lita umhverfi okkar.
Fordómar gegn því sem er öðruvísi, ekki verra,
ekki betra, öðruvísi.
Af því að við þekkjum það ekki og þess vegna gæti
það alveg eins verið slæmt.
Það gæti tekið athyglina af okkur um stund.
Fordómar eru hlekkir, myndaðir úr fávisku og ótta.
Þessir hlekkir meina okkur að losna úr hugarprís-
und okkar og sjá heiminn í stærra samhengi.
Hindra okkur í að sjá hversu auðvelt það er að
elska miðað við hversu erfitt það er að hata.
Að horfa með augum hins þröngsýna er eins og
veiðimaðurinn sem snýr kíkinum öfugt.
Hann mun aldrei sjá hlutina í nálægð.
Snúum kíkinum rétt.
Elskum hvert annað.
Reykjavík 23. apríl 2003.
Helga Kolbeinsdóttir, 18 ára.