Lindin

Ukioqatigiit

Lindin - 01.09.2003, Qupperneq 26

Lindin - 01.09.2003, Qupperneq 26
Tengsl s álfsmyndar og lífshamingju Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, verkefnastjóri Geðræktar Sjálfsmynd okkar er sú mynd sem við höfum af okkur sjálfum í sam- bandi og sam- skiptum við aðra. Sá sem fær hlýju, jákvæða snertingu og ást mótar með sér þá tilfinn- ingu að hann sé mikilvæg og dýrmæt manneskja... í leit að lífshamingju Oll eigum við það sameiginlegt að vilja líða vel og njóta farsæld- ar í lífinu. I samfélagi nútímans er oft reynt að telja okkur trú um að kaupa megi hamingju. Flestir átta sig þó fyrr eða síðar á því að engar skyndilausnir duga til að öðlast hamingju í lífinu. A seinni árum eru vísinda- menn farnir að skoða markvisst hvað einkenni hamingjusamt fólk. Eitt mikilvægasta atriðið sem þeir hafa bent á er nauð- syn þess að finna Iffi sínu tilgang og hafa góða sjálfsmynd. Hvað er sjálfsmynd? Sjálfsmynd okkar er sú mynd sem við höfum af okkur sjálfum í sambandi og samskiptum við aðra.Við fæðumst ekki með þessa mynd heldur mótast hún út allt lífið og allar athugasemdir sem við tökum til okkar frá um- hverfinu hafa áhrif á þessa mynd. Sjálfsmyndin byrjar að mótast við fæðingu. Sá sem fær hlýju, jákvæða snertingu og ást mótar með sér þá tilfinningu að hann sé mikilvæg og dýrmæt mann- eskja en sá sem fær litla snert- ingu og býr við afskiptaleysi kann að móta með sér þá til- finningu að hann sé lítils verðun Foreldrar eða uppalendur móta því sjálfsmynd barna sinni hvað mest til að byrja með. Fljótlega bætast síðan leikfélagar og kennarar í hópinn, svo og aðrir samferðarmenn. Erfiðleikan veikindi og önnur áföll geta komið í veg fyrir að foreldrar geti gefið börnum sín- um þann jákvæða stuðning sem þau þurfa á að halda til að þroska með sér jákvæða sjálfs- mynd. Mikilvægt er þó að hafa hugfast að sjálfsmyndin er aldrei fullmótuð og því er áfram tæki- færi til að styrkja hana. Það eru hins vegar ekki til neinar skyndi- lausnir til að bæta sjálfsmyndina. Það dugar til dæmis skammt að sannfæra sig um eigið ágæti með því að segja 20 sinnum við spegilmyndina á morgnana: ,,Eg er frábær". Hvaða máli skiptir sjálfsmyndin? Sjálfsmyndin, það hvernig við metum okkur sjálf, hefur áhrif á allar okkar ákvarðanir, allt frá því að velja hvaða fötum við klæðumst í dag og til stærri ákvarðana um það hvað við ætlum að gera við líf okkar Sá sem hefur góða sjálfsmynd kann að meta kosti sína, er reiðubúinn að vinna með galla sína og sættir sig við að vera ekki fullkominn. Sá sem hefur slæma sjálfsmynd þekkir oft ekki kosti sína eða kann ekki að meta þá og einblínir á gallana í fari sínu. Slæmri sjálfsmynd fylgir oft mikil vanlíðan, kvíði og streita. Það er mikið álag að einblína á hið neikvæða í eigin fari og velta sér upp úr því, það leiðir ekki til góðs. Allir hafa einhverja kosti og hæfileika og það er okkur öllum nauðsynlegt að komast að því hverju við búum yfir og kunna að meta það. Góð sjálfs- mynd snýst að verulegu leyti um að lifa í sátt við sjálfan sig, hvort heldur varðar persónu- leika, útlit eða annað sem við notum til að skilgreina okkur frá öðrum. Hvað getum við gert til að styrkja sjálfsmynd okkar og annarra? Hrós er yfirleitt það fýrsta sem kemur upp í huga fólks þegar spurt er hvernig hægt sé að styrkja sjálfsmyndina. Og það er vissulega rétt að það er mikil- vægt að hrósa fólki, en hrósið 26 LINDIN

x

Lindin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lindin
https://timarit.is/publication/1539

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.