Lindin

Ukioqatigiit

Lindin - 01.09.2003, Qupperneq 28

Lindin - 01.09.2003, Qupperneq 28
Þórarinn Björnsson, guðfræðingur Evrópusamband KFUM fagnaði 30 ára afmæli með stórmóti í Prag 3.- 9. ágúst síðastliðinn. Flér sýnir ungt fólk úr KFUM í Búlgaríu brúðu- leik fyrir gesti og gang- andi í miðborg Prag þar sem hluti dagskrár- innar fór fram. Vegleg afmælishátíð í Ekki brunnu skógareld- ar í nágrenni Prag í hita- bylgjunni í sumar en slökkviliðsmenn borgarinnar héldu sér í æfingu með því að kæla mótsgesti KFUM í Letnagarðinum. Það er óhætt að segja að hin töfrandi höfuðborg Tékklands, Prag, hafi tekið einkar hlýlega á móti Frónbúunum sextán sem þangað lögðu leið sína í byrjun ágúst síðastliðinn til að taka þátt í 30 ára afmælishá- tíð Evrópusambands KFUM. Sól skein í heiði alla dagana og hit- inn var að jafnaði um og yfir 30 gráður en slagaði hátt í 40 gráður þegar heitast var Þá kom sér vel að geta leitað í skugga hárra trjáa og húsa eða brugðið sér undir bununa frá slökkviliðs- bilnum sem af og til heimsótti Prag Letnagarðinn í Prag til að kæla mótsgesti og auka á fjörið og hátíðarstemninguna sem var ósvikin allt til enda. Sumir gættu sín reyndar ekki nægilega á mætti sólarinnar og fengu snert af sólsting en sem betur fer án varanlegs skaða. Alls sóttu um 7.500 manns frá nálægt 40 þjóðríkjum afmæl- ismótið í Prag, aðallega ungt fólk á aldrinum 18-25 ára. Dagskráin tók mið af þessu og var einkar fjölbreytt og áhugaverð, I Letna- garðinum var sett upp eins kon- ar KFUM-þorp þar sem nokkrir tugir tjalda af öllum stærðum og gerðum sköpuðu notalega um- gjörð um dagskrána. Þar var hægt að setjast niður með kaffi- bolla eða ís í hönd, njóta kyrrð- i ar og ifiugunar í „TheTent of Si- lence", horfa á kvikmynd, skoða sýningabása frá félögum vítt og breitt um Evrópu, kaupa minja- gripi, fá plástur á sár eftir byltu í fótbolta eða taka þátt í um 100

x

Lindin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lindin
https://timarit.is/publication/1539

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.