Lindin

Árgangur

Lindin - 01.09.2003, Blaðsíða 29

Lindin - 01.09.2003, Blaðsíða 29
mismunandi dagskrártilboðum og vinnustofum á degi hverjum, svo sem kórstarfi, skátastarfi, biblíulestri, þjóðdönsum, risalúd- ói, andlitsmálun, grímugerð, batikvinnu og jafnvel finnsku gufubaði (sauna). Hvert sem lit- ið var iðaði mannlífið af sköp- unargleði og hátíðarbrag. Yfirskrift mótsins í Prag var: „Inspired to serve" sem útleggja mætti: „Innblásinn til þjónustu". Segja má að öll dagskráin hafi miðað að því að gera yfirskrift- ina að veruleika því rík áhersla var lögð á mikilvægi þess að þjóna náunga okkar með þeim hæfileikum og gjöfum sem við höfum þegið úr hendi Guðs. Hver dagur byrjaði til dæmis með sameiginlegri helgistund þar sem þema mótsins var túlk- að í söng, látbragðsleik, dansi, leik og stuttri hugvekju. Hljóm- sveit Judy Bailey frá Bretlandi leiddi sönginn en Ulrich Parsany, framkvæmdastjóri KFUM f Þýskalandi, annaðist hugvekjurn- ar Síðan tóku við fjölbreyttar i'þróttir og ótal vinnustofur fram eftir degi en á kvöldin voru kvöldvökun tónleikar; helgistund- in þjóðdansan karaoke og margt fleira í boði fram undir mið- nætti. Einnig sáu mótsgestir um fjölbreytta dagskrá á strætum Prag og smituðu borgina af gleði og hátíðarbrag sem mun seint líða þeim úr minni sem þátt tóku. Fimmtudagskvöldið 7. ágúst vitnaði hljómsveitin The Tribe frá Manchester í Englandi um trú sína og hélt glæsilega tón- leika á aðalsviði mótsins í Letnagarðinum við mikinn fögnuð viðstaddra. Gyða Karlsdóttir, framkvæmda- stjóri Landssambands KFUM og KFUK á íslandi og John Knox, fyrrum framkvæmda- stjóri KFUM í Skotlandi, búa sig undir að stíga skoskan þjóðdans saman.

x

Lindin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lindin
https://timarit.is/publication/1539

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.