Jólablaðið - 20.12.1949, Page 4
4
JÓLABLAÐIÐ
SUNNUKÓRINN OG TÓNLISTARFÉLAGIÐ
Simnukórinn
á Isafirði er Stofnaður 25.
janúar 1934.
Söngstjóri Sunnukórsins frá
byrjun hefir verið Jónas Tóm-
asson, tónskáld, þangað til nú
í vetur, en þá tók Ragnar H.
Ragnar við söngstj órnintii.
Ekkeri söngfélag hér í bæ
hefir starfað jafn lengi og
kórsins til 1946, en þá tók við
núverandi formaður, Ólafur
Magnússon.
Stai'f Sunnukórsins er ómet-
anlegt. I bæjum, þar sem líkt
háttar til og hér á ísafirði, er
það komið undir dugnaði og
fórnfýsi örfárra manna, að
haldið sé uppi ýmiskonar
menningarstarfsemi. Til þess
Jónas Tómasson, tónskdld.
Sunnukórinn. Því fer fjarri, að
nein ellimörk séu á starfsemi
kórsins, því að liann hefir vax-
ið að verkefnum og vinsældum
með hverju ári, og tekið þátt
í söngkeppni á lands- og hér-
aðsmótum við ágætan orðstý.
Á síðastliðnu sumri fór kór-
inn i söngför um Norðurland,
og hlaut ágæta dóma. Það er
því sízt ofmælt að ekkert félag
hér í bæ hefir kynnt bæinn
sinn jafn víða og jafnvel, og
ótaldar eru þær ánægjustund-
ir, sem Sunnukórinn hefir veitt
bæjarbúum með kirkjusöngn-
um og samsöngvum sínum.
Samstilling söngs næst að-
eins með góðri og endurnýj aðri
þjálfun einstaklinga og ein-
stakra radda innan kórsins,.og
mun fáa rénna grvjn i.þá níiklu
vinnu og erfiði sem söngstj ór-
inn verður að inna af hendi.
A liðnum árum hefir Sunnu-
kórinn alls haldið fjölda sam-
söngva, þar af nokkra utan-
bæjar. Auk þessa hefir hann
annast kirkjusöng hér á Isa-
firði og sungið við mörg sér-
stök tækifæri. Það er þvi næsta
mikið starf sem Sunnukórinn
hefir unnið, og söngstjórinn
Jónas Tómasson, sem fyrst og
fremst hefir borið þunga og
híta dagsins í starfi Sunnukórs-
ins.
Fyrsti fonnaður Sunnukórs-
ins var Sigurgeir Sigurðsson,
núverandi biskup Islands. Við
brottför sr. Sigurgeirs tók Elías
J. Pálsson við formennsku
þarf mikla þrautseigju og á-
huga, því að oft er við mikið
tómlæti almennings að striða.
Þvi ber að þakka kórfélögum
og stjórn Sunnukórsins gott og
mikilsvert starf, fyrst og fremst
söngstjóranum, Jónasi Tómas-
syni, sem með óþreytandi á-
huga hefur leitt kórinn til
frama og sigurs.
Ragnar H. Ragnar,
skólastjóri Tónlistarskólans.
Tónlistarfélag Isaf jarðar
er stofnað í sambandi við
söngkennslustarf hins góð-
kunna píanóleikara, Ragnars
H. Ragnar. Formaður Tónlist-
arfélagsins var Halldór Hall-
dórsson, bankastjóri, sem nú er
nýlátinn; en framkvæmda-
stjóri er Páll Jónsson, verzlun-
armaður, en Ragnar H. Ragn-
ar er aðaltónlistarkennari fé-
lagsins.
Síðastliðna tvo vetur hefir
Tónlistarfélagið haldið uppi
tónlistarskóla hér í bænum við
mikla aðsókn, og á þann hátt
unnið mikið starf til aukinnar
tónlistarmenningar. Þá hefur
Tónlistarfélagið einnig beitt
sér fyrir því, að fá úrvals söng-
listarmenn hingað til bæjarins,
og má það kalla merkisatburð,
sem hefir verið fagnað af öll-
um almenningi.
Forstaða Sunnukórsins og
Tónlistarfélagsins hefir nú
fluzt á herðar Ragnars H.
Ragnar, en hann er bæði ágæt-
lega menntaður á sviði söng-
listarinnar og hinn mesti á-
hugamaður. Hefir Ragnar H.
Ragnar einnig tekið að sér for-
stjórn Karlakórs Isafjarðar,
sem nýlega hélt fyrsta sam-
sönginn undir stjórn hans. Var
Samsöngnum mjög vel tekið.
Það er sameiginleg ósk og
von flestra bæjarbúa,, að starf-
semi Sunnukórsins og Tónlist-
arfélagsins megi dafna sem
bezt. Sú ósk er ekki eingöngu
borin fram vegna íélaganna
sjálfra heldur líka blönduð
eigingirninni með voninni um,
að njóta margra ánægjustunda
við góðan söng og flutning á-
gætra tónverka.
Smjörlíkisgerð Isafjarðar h.f.,
ísafirði
óskar öllum viðskiptavinum sínum
gleðilegra jóla og farsæls nýárs,
með þökk fyrir viðskiptin á líðandi ári.
Þakka öllum viðskiptamönnum mínum ánægju-
leg viðskipti á árinu 1949 og óska öllum
gæfu og gengis á næsta ári.
GLEÐILEG JÖL!
FARSÆLT NÍTT Á R!
Virðingarfyllst,
Heildverzlun Valg. Stefánssonar,
Akureyri.
GLÉÐILEG JÖL! FARSÆLT NÝTT ÁR!
Þakka viðskiptin á líðandi ári.
Netagerðin Grænigarður
P. Njarðvík,
Isafirði.
Utvegsmannafélag ísfirðinga
óskar öllum félögum sínum og viðskiptavinum
GLEÐILEGRA JÓLA OG NÝÁRS!