Jólablaðið - 20.12.1949, Síða 9
JÓLABLAÐIÐ
9
llllllllll!lllllll!llllllllllllllllllllllllllllllil|||||||||||||||||||||||||||lllll|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||l|!l|||||||||||||ll|||III|||||||||||)
jólin.
Gömlu
Um allar aldir hafa jólin
verið sérstök fagnaðarhátíð
kristinna manna.
Þá var allt fágað og prýtt eft-
ir beztu föngum, og þá var
framreitt allt það hezta sem til
var á lieimilinu.
Gömlu jólin voru hreinieg og
einföld fagnaðarhátíð alls
þorra manna, og algerlega laus
við þann mikla íburð, sem nú
hefir rutt sér til rúms á allt of
mörgum heimilum iiér á landi.
Bezt er að fólk ráði sínum
hátíðafagnaði. Þó getur svo far
ið að þetta sem annað komist
úr hófi, og dragi þungan efna-
iegan dilk á eftir sér.
Óvíst er, að hin nýtízkulegu
jól með allan íburðinn veiti
jafn mikinn lífsfögnuð og skilji
eftir fegurri endurminningar
en gömlu jólin. Þegar gjafir
eins og leppar í skóna, vettling-
ar og fleira smávegis, sem fólk-
ið vann sjálft, voru svo kærar,
að þær urðu upphaf æfilangr-
ar vináttu.
Það er vissulega fagur siður
að gefa jólagjafir, en verð-
mæti gjafanna má ekki verða
gefandanum ofurefli. Hlýleik-
inn að baki gjafanna getur oft
verið miklu verðmeiri en gjöf-
in sjálf, og varðveizt þegar
gjöfin er gleymd.
Jólin eru fyrst og fremst há-
tíð hins innri fagnaðar, sem
verður köld og dauð hátið, ef
hjörtu okkar fagna ekki og
leggja sinn skerf til þess að
gera ljóma hátiðarinnar sem
stærstan og skærastan.
Jólin eru hátið trúar og
minninga, sameiningarhátíð
við jötu Jesúbarnsins. Hátíð,
sem tendrar ljós jafnt hið
innra sem ytra. Hátíð, sem skil
ur eftir bjarta minningu, sem
yljar og vermir í stormum og
hretviðrum lífsins.
Verið getur að mörgum hafi
þótt gömlu jólin um of hvers-
dagsleg, en það er víst að þau
áttu þann hugblæ og hátíðleik,
sem skapaði minningar, sem
lifðu og veitti fólkinu styrk í
stríði nauða.
Við sköpum sjálf umhverfi
jólanna, og við eigum að gæta
þess að það sé ávallt þannig, að
kjarni jólahátíðarinnar varð-
veitist.
Ef þú átt heita hugsun.
Ef þú átt heita hugsun
hjartkæri vinur minn
láttu hana lýsa og ljóma,
leyf henni að bera blóma
helgan um himininn.
Þann ástareld er áttu
ei sýn sem elding skalt.
Lát hugann leita hæða
og helgra ljóssins gæða.
Þá blessast böl vort allt.
Benzín
Brennsluolíur
1 L Smnrningsolíur
| á sívaxandi traust allra
| Yiðskiptamönnum okkar um
| allt land óskum við
GLEÐILEGRA JÖLA! GÖÐS KOMANDIÁRS!
I H.F. SHELL Á ISLANDI.
frá Brunabótafélagi Islands til brunavátryggjenda.
Að gefnu tilefni er vakin athygli brunavátryggjenda á
því, að ef brunatjón verður, ber að tilkynna það til um-
boðsmanns eða skrifstofu félagsins innan 48 klukkustunda
frá því tjón varð. Ef það er ekki gert má draga frá bruna-
bótum, og ef engin tilkynning er gerð eða bótakrafa innan
eins mánaðar frá því að brunatjón varð, hefir sá er fyrir
tjóninu varð, misst allan rétt til brunabóta.
Framvegis verður farið stranglega ef tir þessum ákvæð-
um.
BRUNABÓTAFÉLAG ISLANDS.
Hátíðamessjir.
Isafjörður:
Aðfangadagur kl. § e.h.
Jóladagur kl. 11 f.h. Barna-
messa.
Jóladagur kl. 2 e.h. Almenn
messa.
Jóladagur kl. 3 e.h. Messað í
sjúkrahúsinu.
Gamlársdagur kl. 23 e. h.
Hnífsdalur:
Aðfangadagur kl. 8 e.h.
Annar jóladagur kl. 11 f.h.
Barnamessa. Klukkan 2 e.h. Al-
menn messa.
Nýársdagur kl. 2. Alm. messa.
v.
llllllllllllllllllllllillllllillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllli;illlilli:i: lllllllllIliBillllliiSiilUMli.lhlliMliillllllIilllllllllllUllilllllllliaii'.uslllliBiib llllllllllllllllllililllllllllllllllllillllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllili: