Reginn


Reginn - 13.08.1938, Blaðsíða 1

Reginn - 13.08.1938, Blaðsíða 1
1 í. árgangur Siglufirði, laugardaginn 13. águst 1938. 7. tölublað HH w iw—íímw Séra B prófessor andsðist é Landakotsspííala 2. þ. m. Lík hans verður fiutt hingað til Siglufjarðar rneð Dronning Aiexandrine, er hingað kemur næsta miðvikudag. Darðarförin er ákveðin fimmtudaginn 18. þ. m. Þessa merka og bjóðkunna manns verður síðar mínnst hér í blaðinu. Framan af sumrinu var tíðarfar umhleypingasamt hér á Norður- landi, grasspretta fremur lítil, eink- um á útengi, og fyrstu slægjur hirtust illa. Veiðibrestur varð á sild í júnímánuði og fyrripart júli- mánaðar, voru því allar atvinnu- horfur slæmar bæði til lands og sjávar. Menn voru daprir og kviðu yfirleitt framtíðinni. Nú hefir allt þetta tekið breyt- ingum. Veðurfar hefir verið hið ákjósanlegasta um all-langt skeið, spretta hefir tekið framförum, hey hafa, að heita má, þurkast af Iján- um og mesti landburður hefir ver- ið af síld. Útlitið hefir farið batn- andi með degi hverjum og menn horfa vonbetri fram á veginn. Það hefir allmjög borið á því, hér í Siglufirði, að fólk á sumrum hefir farið gálauslega með fé það sem það hefir aflað sér. Mest hefir það verið í sambandi við vínkaup. Á þessu hefir ekki mikið borið enn sem komið er, má það eflaust með- fram þakka því, að atvinna hefir undanfarið verið svo að segja sam- anhangandi nótt og dag, og eigin- lega enginn tími verið afgangs frá vinnu og hvild. Einnig má það vera, að óhugur sá og kviði er lagðist yfir þjóðina, meðan tvísýnt var um síldveiðina, sé enn eigi með öllu horfinn og leggi nokkrar hömlur á löngun manna til eyðslu og sóunar. Enn er eftir mikill hluti sumarsins, og enginn Veit með vissu hvenær síld- veiðin hættir og þá atvinnan um leið. Enn getur verið þriðja ástæðan og er hún sú, að þjóðin yfirleitt sé að vakna til meðvitundar um það, hve heimskulegt og jafnvel glæpsamlegt það er, að fleygja burt fjármunum, öfluðum með striti og súrum svita, fyrir eitrandi og spillanöi nautnir, íyrir stundar- gleði, — ef það er þá hægt að kalla það svo, — sem iafnan hefir í för með sér skaða, skömm, og hjá öllum sæmilega vel hugsandi mönnum sárt samvizkubit. Hverjar sem ástæðurnar kunna að vera, þá er þess óskandi, að þetta surhar .verði öðrum undan- förnum sumrdm betra þannig, að minni drykkjuskapur verði hér og þar af leiðandi ýms óregla, og óþarfa eyðsla, en verið hefir. Það ætti að vera kappsmál allra Siglfirðinga að hrinda af bænum þeim áburði og óhróðri, er þrásinnis hefir verið á hann borinn, langt fram yfir það sem rétt hefir verið, en það geta þeir best gert með þvi, að vera sjálfir fyrirmynd um alla framkomu og gildir það jafnt um alla, háa sem lága. í haust mun verða birtur hér í blaðinu samanburður á þessu sumri og undanfarandi sumrum, hvað drykkjuskap og óreglu snertir. Þess er að óska og vænta, að sá sam- anburður sýni aukna menningu og siðferðisþroska. H. 3. r ís og jöklar þekja þekja um 1/io hluta af jarðarhnettinum. Það erum 15,2 miljónir ferkílómetra. Til sam- anburðar má geta þess, að öll Evr- ópa er ekki nema 10 miljónir fer- kílómetra. ísbreiðurnar eru, sem kunnugt er, aðallega við heimskautin. Við Suð- urheimskautið er ísbreiðan um 13 milj. ferkílómetra. Er ekki að

x

Reginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reginn
https://timarit.is/publication/1543

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.