Reginn


Reginn - 13.08.1938, Blaðsíða 2

Reginn - 13.08.1938, Blaðsíða 2
2 R E G I N N Samband ísl. Samvinnufélaga Sápuverksmiðjan SJÖFN, Akureyri. Savon de Paris er sápa hinna vandlátu. Hvaða töfra- meðal notar þú, sem gerir hör- undið svo yndis- lega mjúkt og fallegt ? Það skal ég segja þér. Ég er hætt að nota þessi svokölluðu fegurðarmeðul, en þvæ mér allt af úr sápu, sem heitir SAVON DE PARIS undra að svæði þetta er talið sem sérstök heimsálfa. ísbreiðan á Grænlandi, sem er talin 1000—2000 metra þykk, er nálægt því 2500 kílómetra löng og er frá 500 til 1000 kilómetra breið. Á Grænlandi er því vatnið, sem er frosið í ísnum, 40 sinnum meira en allt vatnsmagn í Norðursjónum og Eystrasalti til samans. Ef allur ís á Grænlandi þiðnaði, þá mund'i yfirborð allra hafa á hnettinum hækka um 8 metra. í samanburði við ísmagn Græn- lands virðist Vatnajökull, stærsti jökull íslands, smávægilegur. Þó er hann stærri en allir jöklar á meginlandi Evrópu samanlagðir. Mestir jöklar, aðrir enn þeir er við heimskauíinliggja, eru í Kauka- sus, Himalaya, Pamir, Kordillera- fjöllunum og Alpafjöllunum. Allir þessir jöklar eiga stórvægi- legan þátt í gróðurmagni landa þeirra er nálægt þeim liggja, þann- ig, að ár þær, er undan þeim spretta, flytja með sér leðju, sem inniheldur ýms þau efni, sem hent- ug eru fyrir gróðurinn, er því vatn- inu úr ánum veitt víða yfir stór landsvæði með löngum leiðslum og er t. d. lengsta leiðslan af þessu tæi í Sviss 26 kílómetrar. Einnig eru víða byggðar vatnsuppistöður við jökulárnar. Eru mörg af orku- verunum í Sviss rekin með krafti þeirra. Má þar íil nefna Grimsel orkuverið í Sviss, sem framleiðir 120,000 hestöfl og er ársorkan 542,2 miljónir kílówattstunda. Á þessu má sjá, að jöklarnir hafa sína stórvægilegu þýðingu, bæði að því er snertir gróður landanna og orku þá, er árnar frá þeim gefa. Er þó minnst notað af þeim krafti er árnar hafa yfir að ráða. Sem dæmi má nefna, að áín Amu-darja, er kemur frá Pamirjöklunum, flytur árlega út í Aralvatnið 60 miljónir kubikmetra af vatni. Af þessu vatnsmagni fer 90 af hundraði ónotað í vaínið. ísmagn það, er jöklarnir við ís- höfin árlega flytja til sjávar, er geysimikið. Lilliehöök-jökullinn á Spitzbergen er 3000 metra breiður þar sem hann fellur út í hafið. Þessi jökull færist fram um 18—40 cm. á dag og flytur til sjávar 55 miljónirkúbikmetra af ís áári. Annar jökull á Spitzbergen, Kingsjökullinn, færist fram pm 8 metra á sólar- hring og flytur til hafs 140 miljón- ir kubikmetra af ís á ári. Kara- jakjökullinn, sem kemur frá Græn- Iandsísnum, færist 18 metra á sól- arhring. Þessi jökull er 4000 metra breiður ‘og er 600—700 metra á þykkt að framan. Hve stór þau ís- björg eru, sem af honum brotna, má gera sér í hugarlund þegar at- hugað er, að þegar þau falla í sjó- inn rísa við það svo háar bylgjur, að í 15 kílómetra fjarlægð verða þær tveggja metra háar. Jakobshavnjökullinn tekur þó áð- urnefndum jöklum fram að því er ísflutning til sjávar snertir. Hann flytur 41 miljón kúbíkmetra á dag, eða alls á ári 15.000.000.000 kúbik- metra. Mikið af þessu ísmagni flytja hafstraumar suður á bóginn. Hve langt suður ísbjörgin geta flutzt má meðal annars sjá á því, að ís- jakinn, sem Titanic rakst á árið 1912, þar sem 1490 menn fórust, var á 46ý stigi norðlægrar breiddar eða nær miðjarðarlínu en borgin Buda-Pest. Danskir RÓMANAR í miklu úrvali. Hannes Jónasson. Klaufaieg svör. Umboðsmaður lífsábyrgðarfélags eins hefir safnað saman sérkenni- legum svörum, sem gefin hafa verið við spurningum þeim, er svara skal, þegar lífsábyrgð er keypt. Flér fara á eftir nokkur sýnis- horn: Undirritaður vottar hér með að hafa séð fótinn á Jensen og er þar af leiðandi óvinnufær. Barnið, Camilla Hansigne Frede- riksen, er heilbrigt. Faðirinn er óþekktur þar sem barnið er óskil- getið. Konan er aldrei heilbrigð svo maðurinn tapar lystinni. Faðir minn dó snögglega, en það var ekkert alvarlegt. Foreldrar hróðir míns dóu þegar eg var lítið barn. Úr hverju móðir mín dó veit eg ekki, en eftir síðustu veikindi sín fékk hún fullan bata. Eg hefi aldrei haft neinn dauð- legan sjúkdóm.

x

Reginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reginn
https://timarit.is/publication/1543

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.