Reginn - 20.09.1952, Side 6

Reginn - 20.09.1952, Side 6
REGINN 6 STÓRSTÚKUÞINGIÐ 1952 Þing Stórstúku íslands, I.O.G.T., hófst í Reykja- vík hinn 20. júní. Stórstúka íslands er nú 66 ára að aldri og var þetta 52. þing hennar, því að fyrst 1 stað var þing ekki haldið nema annað hvort ár. Hagur Góðtemplararegiunnar á Íslandi er með svipuðum hætti og verið hefir. Hér eru nú starfandx 43 undirstúkur, 60 harnastúkur, 3 umdæmisstúikur og 8 þingstúkur. Alls eru félagar Riegiunnar um 10.500. Þingið var ekki jafn fjölsótt og oft hefir verið áður, en þó voru þar um 80 fulltrúar, þegar flest var. Stórstúkan berst enn í bökkum f járhagslega, þv'i að þótt rílkisstyrkurinn hafi heldur hækkað, vegur hitt upp á móti hvað verðgildi peninga hefur rýrn- að. Mundi margt vera ógert af því, sem koma þurfti í framkvæmd, ef Reglan hefði ekki haft happdrætti á árinu og fengið nokkrar tekjur af því. Er nú í mörg horn að l'íta að styðja þau fyrirtæki, sem Regian stendur að, svo sem sjómannastofur á fjór- um stöðum á landinu, fangahjálp, blaðaútgáfu o.s.frv. Dýrar húsbyggingar eru og hafnar eða standa fyrir dyrum og má þar nefna hið veglega hús Reglunnar í Vestmannaeyjum, sem nú er Ikomið vel á veg, og höfuðstöðvar, sem reisa þarf í Reykja- vík. Áfengissala í landinu nam árið isem leið 66 millj- ónum og 566 þús. króna og. er það rúmlega 5,6 millj. meira heldur en árið 1949. Slíkur fjáraustur sýnir glögglega, að þjóðin er hér á villigötum. En af þessu leiðir fleira, til dæmis 3000 yfirsjónir unnar í ölæði 'i Reykjavík og 248 fangelsanir á Akureyri fyrir ofurölvun. Skýrslur eru elkki til frá fleiri stöðum, en kunnugt er að óspektir hafa orðið víða um land vegna ölvunar og margar skemmtisamkomur farið út um þúfur þess vegna. Hér er því sannarlega þörf á að reyna að reisa rönd við þessum þjóðarósóma. Var mikið um það rætt á þinginu hvernig þjóðin ætti að hrinda af sér slíkri ómenningu og noklkrar samþykktir gerðar í þá átt. Annars var þingið stórtíðindalaust. Séra Kristinn Stefánsson, sem verið hefir stór- templar í samfleytt í 11 ár eða lengur en nokkur annar fyrirrennari hans, gaf nú ekki Ikost á sér lengur, og hefðu þó margir viljað fá hann til að gegna því starfi framvegis. Var honum vel þakkað hið langa og giftudrjúga starf. Hin nýja fram- kvæmdanefnd, er þannig skipuð: Stórtemplar Björn Magnússon háskólaprófessor. Stórlkanzlari Brynleifur Tobiasson yfirkennari Stórritari Jóhann 'Ögm. Oddsson Stórvarat. Frú Sigþrúður Pétursdóttir Stórgæzlumaður ungj., frú Þóra Jónsdóttir Stórgjaldk., Jón Hafliðason, forstjóri Stórgæzlum. löggj. Haraldur Norðdahl, tollvörður. Stórfræðslustj., Hannes J. Magnússon, skólastjóri Stórkapelán, séra Óskar J. Þorláksson, dómkirkju- prestur. Stórfregnritari, Árni Óla, blaðamaður. Fyr-rv. stórtemplar er séra Kristinn Stefánsson. Mælt var með Jóni Árnasyni prentara sem um- boðsmanni Hátemplars. Mnnzt látinna félaga. Við hátíðlega athöfn var minnst þeirra stórstúku- félaga, sem látizt höfðu á árinu, en þeir voru: Ólafur Thordersen úr st. Daníelsher í Hafnarfirði. Alexander Valent'inusson úr st. Einingin í Rvílk. Frú Helga Tómasdóttir úr st. Dagsbrún á Isafirði. Sigfús Sigurhjartarson fyrrv. alþingismaður úr st. Framtíðin í Reykjavík. Sigfús hafði lengi verið einn af helztu forustumönnum Reglunnar og hafði átt sæti í framkvæmdanefnd Stórstúkunnar í 21 ár. Heiðursfélagar. Þingið kaus þessa heiðursfélaga Stórstúkunnar fyrir langt og dyggilegt starf i þá-gu Reglimnar: Runólf Runólfsson, verkamann í Reykjavilk. Petreu Jóhannsdóttur í Ólafsfirði. Viktoríu Guðmundsdóttur, kennara á Vatnsleysu- strönd. Jón Guðnason, fisksala 'í Reykjaviik Hannes Jónasson, bóksala í Siglufirði. Sigurð iÞorsteinsson, verzlunarmann í Reykjavík. Hólmfríði Árnadóttur, kennara í Reykjav'ik. Jón Hafliðason, forstjóra í Reyíkjavík. Vigfús Guðbrandsson, klæðskerameistara í Rv'ík. Þorstein Þor-steinsson, kaupmann í Reykjavík. Guðmund Loftsson, fyrrv. bankastjóra í Rvík. Samsæti. Á sunnudagskvöldið bauð Þingstúka Reykjav'ikur fulltrúum á Stórstúkuþinginu til samsætis og var það haldið að veitingahúsinu Röðli. Var þar margt um manninn og skemmtu menn sér við ræður, söng og dans fram á nótt. Rílkti þar uppgerðarlaus o-g heilbrigð glaðværð og þótti þetta hinn b-ezti mann- fagnaður. Samþykktir þingsms. 1. Stórstúkuþingið telur óhæfilega lítið framla-g rík- isins til bindindisút-breiðslu o-g áfengisvarna og skorar á framkvæmdanefnd sína að vinna að því við ríkisstjórnina og Alþingi að hæklka það -að miklum mun, svo að Stórstúkan geti haft er- indreka og leiðbeiniendur, sem starfi að bindindis- boðun -og bindindisfræð-slu árið um kring, svipað og nú tíðkast annars staðar á Norðurlöndum.

x

Reginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reginn
https://timarit.is/publication/1543

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.