Reginn - 18.12.1975, Side 1

Reginn - 18.12.1975, Side 1
3.—4. tölublað. Fimmtudagur 18. des. 1975 38. árgangur Siglufjarðarkirkja MESSUR UM II ATÍÐIKXAR Jólin: hátíð Ijóssins, gleðinnar og friðarins Boðskapur jólanna er: Ljós, gleði og friður á jörðu. Ljós, gleði og friður. Er það ekki það, sem allir menn þrá? Maðurinn er í eðli sínu myrkfælinn. Hann óttast myrkur, en þráir Ijós. Jesús kom með Ijósið í heiminn, þess vegna er fæðingarhátíð hans Ijóssins hátíð. Við eigum enn í dag í baráttu við margskonar böl og myrkravöld. Áfengisnautnin er eitt af þessu böli, og hún leiðir sorg og myrkur yfir mannheim. Jafnvel jólaljósið reynir hún að slökkva. Minnumst þess, að áfengisneyzlu fylgir myrkur og sorg. Spillum ekki jólagleðinni. Verið bindindismenn um jólin. Biðjum þess af hjarta, að jólin, sem við erum nú að fagna, megi flytja okkur og börnum okkar sem mesta gleði og jólaljós. Þegar maðurinn nálgast guð, Ijómar jólaljósið, sem aldrei slokknar. REGINN flytur öllum ósk um gleðileg jól og gæfuríkt komandi ár. 23. desember: Náttsöngur kl. 23:00 (ætlað unglingum 13 ára og eldri) 24. desember: Aftansöngur kl. 18:00 25. desember: Hátíðarmessa kl. 14:00 26. desember: Skírnarmessa kl. 14:00 (Þeir sem vilja láta skíra börn sín, hafi samband við prestinn tímanlega). 28. desember: Barnamessa kl. 11:00 31. desember: Aftansöngur kl. 18:00 1. janúar: Hátíðarmessa kl. 14:00 Stórstúka íslands óskar landsmönnum gleðilegra jóla og far- sældar á komandi ári, með þeirri ósk og von að þjóðinni aukist skilningur á þeim meginsjónarmið- um, sem grundvalla bind- indisstarf allra þeirra að- ila, er að þeim málum vinna meðal þjóðarinnar. Stórstúka íslands

x

Reginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reginn
https://timarit.is/publication/1543

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.