Reginn - 18.12.1975, Qupperneq 1
3.—4. tölublað. Fimmtudagur 18. des. 1975 38. árgangur
Siglufjarðarkirkja
MESSUR UM II ATÍÐIKXAR
Jólin: hátíð Ijóssins, gleðinnar og friðarins
Boðskapur jólanna er: Ljós, gleði og friður á jörðu. Ljós, gleði og friður.
Er það ekki það, sem allir menn þrá? Maðurinn er í eðli sínu myrkfælinn.
Hann óttast myrkur, en þráir Ijós. Jesús kom með Ijósið í heiminn, þess
vegna er fæðingarhátíð hans Ijóssins hátíð. Við eigum enn í dag í baráttu
við margskonar böl og myrkravöld. Áfengisnautnin er eitt af þessu böli, og
hún leiðir sorg og myrkur yfir mannheim. Jafnvel jólaljósið reynir hún að
slökkva. Minnumst þess, að áfengisneyzlu fylgir myrkur og sorg. Spillum
ekki jólagleðinni. Verið bindindismenn um jólin. Biðjum þess af hjarta, að
jólin, sem við erum nú að fagna, megi flytja okkur og börnum okkar sem
mesta gleði og jólaljós. Þegar maðurinn nálgast guð, Ijómar jólaljósið, sem
aldrei slokknar.
REGINN flytur öllum ósk um gleðileg jól og gæfuríkt komandi ár.
23. desember:
Náttsöngur kl. 23:00
(ætlað unglingum 13 ára og
eldri)
24. desember:
Aftansöngur kl. 18:00
25. desember:
Hátíðarmessa kl. 14:00
26. desember:
Skírnarmessa kl. 14:00
(Þeir sem vilja láta skíra
börn sín, hafi samband við
prestinn tímanlega).
28. desember:
Barnamessa kl. 11:00
31. desember:
Aftansöngur kl. 18:00
1. janúar:
Hátíðarmessa kl. 14:00
Stórstúka íslands
óskar landsmönnum
gleðilegra jóla og far-
sældar á komandi ári,
með þeirri ósk og von að
þjóðinni aukist skilningur
á þeim meginsjónarmið-
um, sem grundvalla bind-
indisstarf allra þeirra að-
ila, er að þeim málum
vinna meðal þjóðarinnar.
Stórstúka íslands