Reginn - 18.12.1975, Page 2

Reginn - 18.12.1975, Page 2
2 R E G I N N HERFERÐ GEGN FÍKNIEFNUM ALLIR ERU ÁBYRGIR Eitt af því, sem mestu varðar í samfélögum nútím- ans, er viðhorf manna til fíkniefna. Sú staðreynd blasir við, að misnotkun fíkniefna veld- ur nú mestum heilsufarsleg- um vanda meðal margra þjóða, næst hjartasjúkdóm- um. Misnotkun áfengis veldur árlega margvíslegum slys- um í umferðinni, erfiðleik- um og harmi meðal einstakl- inga og f jölskyldna, og miklu fjárhagslegu tjóni, bæði fyr- ir einstaklinga og samfélag- ið í heild. Áfengisneyzla ung- menna, — og einnig neyzla annarra fíkniefna, — hefur aukizt ískyggilega mikið hin síðari ár og valdið ábyrgum mönnum þungum áhyggjum. Með tilliti til umfangs þessa mikla vandamáls og neikvæðrar þróunar síðustu ára, hefur Stórþingið veitt fé til herferðar um land allt, til þess að draga úr neyzlu áfengra drykkja og þá jafn- framt tjóni af völdum þeirra. Einnig er að sjálfsögðu stefnt að því, að draga úr neyzlu annarra fíkniefna. Sérhver einstaklingur verð- ur að gera sér glögga grein fyrir þeim erfiðleikum og því tjóni, sem hann getur orðið fyrir, ef hann neytir áfengra drykkja, og haga sér í samræmi við það. — Bindindisfélög og önnur frjáls . félagasamtök verða að halda áfram starfi sínu með auknum áhuga og krafti svo að sem allra flestir sannfærist um, að áfengi og önnur fíkniefni séu aðeins til ills í samlífi og samskipt- um manna. Yfirvöldin verða að stuðla markvisst að því, að koma í veg fyrir hætt- una með aukinni fræðslu og frítímastörfum, bæði fyrir eldri sem yngri. Herferð þessari er fyrst og fremst beint til æskufólks og foreldra. Á uppvaxtarár- unum mótast viðhorfin, og það er æskan, unga fólkið, sem er í hættu öllum öðrum fremur. En herferðin á einn- ig erindi til allra manna, því að hér erum við öll ábyrg. Viðhorf okkar, hinna full- orðnu, geta haft úrslitaáhrif fyrir hina ungu. ! (Ávarp þetta var birt í öllum dagblöðum og viku- ritum Noregs í maí s. 1. Und- ir það skrifa 12 þjóðkunnir menn, þar á meðal forsætis- ráðherrann, Trygve Bratteli, og báðir þingforsetarnir). Forseti Stórþingsins norska, Guttorm Hansen, segir í sama blaði (Fölket) : „Ástæðan til hins aukna viðnáms, sem nú fer fram hér í Noregn gegn áfengis- neyzlu, er hinn sívaxandi vandi, erfiðleikar og tjón, sem af henni leiðir um gjör- valla Evrópu. Aukning áfeng isneyzlunnar hefur leitt til sífellt meiri og meiri of- drykkju, fleiri harmleika í einkalífi manna, vandræða á vinnustöðum og félagslegra erfiðleika af ýmsu tagi. Til þess að fá viðurkennt það aukna viðnám gegn fíkniefn- um, sem nú er unnið að, þarf að móta ný viðhorf, sem viðurkenna stefnu okk- ar. Gera þarf aukin átök og beita nýrri tækni. í þeirri baráttu verður að treysta bæði á stofnanir ríkisins og hin frjálsu félagasamtök. Bindindisstarfið á ekkert skylt við félagsform, sem draga úr heilbrigðri lífsgleði, eins og sumir klifa sífellt á. Þvert á móti, — það miðar markvisst að auknu menn- ingarstarfi, — farsælla og fegurra mannlífi." Sigurður Gunnarssoa Finnsk þingnefnd ræðir áfengismál Nefnd, sem starfað hefur :innan finnska þingsins og fjallað um áfengismál, birti um miðjan október tillögur jsínar um skjótar aðgerðir j gegn sívaxandi áf engis- drykkju og afleiðingum henn ar. Nefndin lagði til: 1) að áfengt öl verði ein- ungis selt í áfengisverzlun- um. 2) að hert verði ákvæði um aldurstakmark til kaupa á áfengi. 3) að áfengisauglýsingar verði bannaðar. ‘ 4) að opnunartími áfeng- isverzlana verði styttur. | 5) að engin ný vínveitinga hús verði opnuð. i Grels Teir ráðherra tók við jtillögum nefndarinnar. Hann ; taldi margar hugmyndir , nefndarinnar góðar og hélt i því fram, að einhverjar 1 þeirra kæmu örugglega til framkvæmda þegar í siað. Neyzla áfengs öls hefur fjórfaldast á örfáum árum í Finnlandi og er misnotkun þess einkum áberandi meðal unglinga. Um það bil 20 sveitarfélög hafa bannað sölu þess. Finnar líta alvar- legum augum á ástandið og innan ríkisstjórnarinnar er rætt um aðgerðir til þess að minnka áfengisneyzluna og draga með því úr því tjóni, sem hún veldur. Hjartað og áfengið Svo lengi sem hjartað slær, heldur lífið áfram.. Þegar hjartað gefst upp er lifinu lokið. í hjart- að bætast aldrei fleiri frumur en það hafði við fæðingu. Þess vegna verðum við að varðveita það vel, til að halda heilsu og lífi. Áfengið skemmir vöðvafrumur hjartans. Á- fengisneysla er því skaðleg fyrir hjartað. GLEÐILEG JÓL Farsælt komandi ár Þökk fyrir viðskiptin BÓLSTURGEKÐIN Haukur Jónasson Gleðileg jól! Farsœlt komandi ár! Þökk fyrlr vlðskiptln Bókaverzlun Hannesar Jónassonar Kristín Hannesdóttir Barnast. Eyrarrós nr. 68 óskar meðlimum sínum og velunnurum GLEÐILEGRA JÓLA og farsæls komandi árs Sala á sígarettum hefur minnkað Framhald af 8. síðu síðasta ár, eða úr 14.365.727 stk. í 14.145.571 stk. Aftur á móti hefur selt magn reyktóbaks aukizt úr tæpum 44 lestum í rúmar 48 lestir fyrstu níu mánuði þessa árs, miðað við sama tímabil í fyrra. TÖBAK FYRIR TVO MILLJARÐA I krónutölu hefur tóbaks- sala aukizt um 683 milljónir króna frá janúarbyrjun til septemberloka á þessu ári, miðað við sömu mánuði í fyrra, eða úr 1.504.600.000 kr. 2.188.400.000 kr. 30. sept- ember í ár. Þess ber að geta í þessu sambandi, að talsverð verð- hækkun varð á tóbaki hjá Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins á þessu ári.

x

Reginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reginn
https://timarit.is/publication/1543

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.