Reginn - 20.12.1977, Side 1
MESSUR UM HÁTtÐIRNAR
Boðskapur jólanna er: Ljós, gleði og friður á jörðu. Ljós, gleði og friður.
Er það ekki það, sem allir menn þrá? Maðurinn er í eðli sínu myrkfælinn.
Hann óttast myrkur, en þráir Ijós. Jesús kom með Ijósið í heiminn, þess
vegna er fæðingarhátíð hans Ijóssins hátíð. Við eigum enn í dag í baráttu
við margskonar böl og myrkravöld. Áfengisnautnin er eitt af þessu böli, og
hun leiðir sorg og myrkur yfir mannheim. Jafnvel jólaljósið reynir hún að
slökkva. Minnumst þess, að áfengisneyzlu fylgir myrkur og sorg. Spillum
ekki jólagleðinni. Verið bindindismenn um jólin. Biðjum þess af hjarta, að
jólin, sem við erum nú að fagna, megi flytja okkur og börnum okkar sem
mesta gleði og jólaljós. Þegar maðurinn nálgast guð, Ijómar jólaljósið, sem
aldrei slokknar.
REGINN flytur öllum ósk um gleðileg jól og gæfuríkt komandi ár.
23. desember:
Æskulýðssamkoma.
24. desember:
Aftansöngur kl. 18.
25. desember:
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.
Guðsþjónusta á Sjúkrahús-
inu kl. 16,30.
26. desember:
Skírnarmessa kl. 14.
31. desember:
Aftansöngur kl. 18.
1. janúar:
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.
Stórstúka íslands
óskar landsmönnom
gleðilegra jóla og far-
sældar á komandi ári,
með þeirrl ósk og von að
þjóðlnni aukist skilningur
á þeim meginsj ónarmið-
um, sem grundvalla bind-
indisstarf allra þeirra að-
ila, er að þeim málum
vinna meðal þjóðarinnar.
Stórstúka íslands