Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 01.04.1964, Síða 10
GREI N ARGERÐ
fyrir miðlunartillögu um lög Starfsmannafélags ríkisstofnana
Stjórn SFR hefur fjallað um álit nefndar þeirrar,
sem setið hefur á rökstólum vegna nýrra laga
fyrir félagið, en í henni áttu sæti Flosi Hrafn Sig-
urðsson, Guðjón Guðmundsson og Þórh. Pálsson.
Nefndin taldi svo ólíkar skoðanir á þessu máli
í félaginu, að ekki mundi fært að samræma þær.
Skilaði hún því tveimur frumvörpum, sem eru að
ýmsu leyti ólík, en eru þó sameiginlegt verk
allrar nefndarinnar. Aðalmunurinn er þessi:
Tillaga I gerir ráð fyrir allsherjaratkvæða-
greiðslu um stjórn og fulltrúa á þing B. S. R. B.,
en í tillögu II er mælt svo fyrir, að kosningar
þessar fari fram á félagsfundum eins og tíðkazt
hefur. í báðum tillögum er hins vegar ætlazt til,
að hægt sé að efna til allsherjaratkvæðagreiðslu
um stærri mál..
Stjórn S. F. R. telur, að tillaga I sé studd þeim
rökum, að öllum félagsmönnum skuli tryggja
jafna rétt til kosninga í félaginu, einnig þeim,
sem búsettir eru utan Reykjavíkur eða bundnir
í vökuvinnu á fundartíma.
Með tillögu II mælir hins vegar það, að æski-
legt er að tryggja góða fundarsókn í félaginu og
halda með því lífrænum tengslum milli þess og
félagsmanna. Má minna á, að í núgildandi lögum
og báðum frumvörpum laganefndar er tilgangur
félagsins talinn sá meðal annars að efla sam-
vinnu og samstarf ríkisstarfsmanna og stuðla að
aukinni kynningu þeirra innbyrðis. Sú mótbára,
að það sé skerðing á réttindum félagsmanna að
gera þeim að sækja fundi til þess að neyta fyllstu
félagsréttinda, stenzt ekki, það er ekki óeðlilegri
krafa en sú að menn greiði félagsgjöld sín.
Þessi rök fyrir báðum tillögunum fellst stjóm-
in á, og telur það því brýna nauðsyn að sam-
ræma tillögurnar á þann hátt að alls þess sé
gætt, sem hér hefur verið talið.
Stjórn félagsins hefur því samið miðlunartil-
lögu, þar sem lagt er til, að kosningar og at-
kvæðagreiðslur um stærri mál fari fram á fé-
lagsfundum, en auk þess sé efnt til utanfundar-
kosninga fyrir þá, sem eiga þess ekki kost að
sækja fund. Um utanfundarkosninguna eru jafn-
framt sett ákvæði til þess að tryggja, að menn
noti sér hana ekki að nauðsynjalausu.
Stjómin hefur sent drög að þessari miðlunar-
tillögu til laganefndarinnar sem áður var getið.
Laganefndin segir í svari sínu, að í tillögunni sé
„leitazt við að okkar dómi að sameina kosti
beggja fmmvarpa okkar og er tillaga þessi að
því leyti athyglisverð. Hins vegar fylgja hennl
einnig að nokkru ókostir þeirra beggja. I fyrra
tilfellinu má til dæmis nefna þann kost, að allir
félagsmenn geta neytt atkvæðisréttar síns án þess
að fórnað sé þeirri félagslegu þýðingu, sem fjöl-
mennir fundir hafa, en í hinu síðara þann ókost,
að kosningarnar verða í heild allþrmglamalegar.“'
í þessu felst mikilvæg viðurkenning á megin-
atriðum miðlunartillögunnar og viðleitni stjóm-
arinnar að sameina sjónarmiðin í félaginu. Sú
gagnrýni, að kosningarnar verði á þennan hátt
þungar í vöfum, er hins vegar veigalítil. Sam-
kvæmt miðlunartillögunni verða kosningar á
fundum stórum einfaldari og auðveldari í fram-
kvæmd en verið hefur, þegar stundum hefur-
þurft að þrítaka stjórnarkosningu. Ekki er stjórn
og kjörstjórn heldur ætlandi að telja eftir sér
þá fyrirhöfn, sem utanfundarkosning tiltölulega.
fárra félagsmanna veldur. Að vísu hefðu kosn-
ingar eftir tillögu II orðið einfaldari, en hún
tekur ekki tillit til sérstöðu utanbæjarmanna og
vökuvinnumanna og mun því einskis fylgis njóta
í félaginu, enda vafamál, að nokkur verði til þess
að leggja hana fyrir aðalfund. Samanburður við
hana er því ekki raunhæfur. Ef borið er saman
við tillögu I, er þess að gæta, að allsherjarat-
kvæðagreiðsla utan fundar mundi kosta ærið
amstur á tugum kosningaskrifstofa, býsna mikið
slit á bílum og sendimönnum stjórnmálaflokk-
anna og nokkurt fjaðrafok í blöðum þeirra,.
ef dæma má af almennri reynslu annarra laun-
þegafélaga. Með þessu væri ef til vill að nokkru.
létt fyrirhöfn af félagsmönnum, en ekki væri það
stórmannlegt, og þaðan af síður heillavænlegt að:
fela utanfélagsöflum þannig forsjá bæði á mál-
flutningi og mannflutningum í félagi voru.
Miðlunartillögu þessa mun stjórn S. F. R. leggja.
fyrir aðalfund félagsins í vor, og væntir hún
þess, að sem flestir af trúnaðarmönnum á vinnu-
stöðum gerist meðflutningsmenn tillögunnar.
Reykavík, í apríl 1964,
Stjórn Starfsmannafélags ríkisstofnana.
10