Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 01.04.1964, Page 11
Fyrra bréf laganefndar:
Reykjavík, 24. janúar 1964.
’Stjórn Starfsmannafélags ríkisstofnana,
Reykjavík.
Við undirritaðir, sem vorum skipaðir með bréfi
.stjórnar félagsins, dags. 24. nóvember 1982, til að
endurskoða lög þess, leyfum okkur hér með að
senda tvær tillögur um breytingu. Jafnframt
leggjum við til, að þær verði nú þegar teknar
■til athugunar og umræðu í stjórn félagsins og
trúnaðarmannaráði.
Tillögurnar eru að mjög verulegu leyti sam-
hljóða, og er í þeim báðum að finna ýmsar minni
háttar breytingar frá gildandi lögum. Hefur um
þær verið höfð hliðsjón af nýjum lögum B. S.
iR. B., sem og lögum ýmissa annarra félagssam-
taka.
Akvæði um kosningu stjórnar og fulltrúa á
þing B. S. R. B. eru hins vegar frábrugðin, og
gerir önnur tillagan (tillaga I) ráð fyrir alls-
herjaratkvæðagreiðslu, en hin (tillaga II) mið-
ast við kosningu á félagsfundi.
Vegna umræðna, sem fram hafa farið, er okkur
ljóst, að allmikil óánægja hefur verið um til-
högun kosninga til trúnaðarstarfa í félaginu. Ekki
er okkur þó síður ljóst, að fjarri fer því, að fé-
lagsmenn séu á eitt sáttir um það, hvern hátt
skuli upp taka í þessu efni. Mun það og svo, að
hvor þeirra tveggja leiða, sem helzt koma til
greina, hefur ýmsa kosti, en jafnframt nokkra
galla, og sýnist sitt hverjum, hvernig vega skuli
■og meta.
Að athuguðu máli höfum við því valið þann
kost að leggja fram til athugunar tvö frumvörp
~til laga fyrir félagið. Hefur þetta þann mikils-
verða kost, að okkar áliti, að ekki ætti að þurfa
að gera róttækar, en lítt undirbúnar, breytingar
á félagsfundi, hvort sjónarmiðið sem verður ofan
á í þessu efni.
Með virðingu og félagskveðju,
(sign) Þórhallur Pálsson.
(sign) Flosi Hrafn Sigurðsson.
(sign) Guðjón Guðmundsson.
'Síðara bréf laganefndar:
Stjórn Starfsmannafélags ríkisstofnana,
Reykjavík.
Þann 8. þ. m. óskuðuð þér eftir því, að við
undirritaðir tækjum til nýrrar athugunar frum-
vörp þau tvö að nýjum lögum fyrir Starfsmanna-
félag ríkisstofnana, er við sendum yður í janúar-
mánuði s. 1., svo og drög að þriðja frumvarpinu,
sem þér hafið látið semja, með hliðsjón af báðum
tillögum okkar.
Það var skoðun okkar í janúar sl., að laganefnd
S. F. R. hefði lokið störfum, en eftir atvikum
hefur okkur þó þótt rétt að verða við tilmælum
yðar og ræða mál þetta að nýju.
Sökum anna okkar og mjög stutts frests til að
skila áliti, getur þó ekki verið um nýja ýtarlega
athugun að ræða.
Eins og fram kemur í bréfi okkar til yðar dags.
24. jan. sl., voru umrædd frumvörp okkar að
mestu samhljóða nema að því er varðaði fram-
kvæmd kosninga í félaginu. I þessu nýja frum-
varpi er valin millileið í þessu efni. Þar er gert
ráð fyrir sem meginreglu, að félagsmenn í
Reykjavík og nágrenni kjósi á félagsfundi, en
þeir, sem búa utan þessa svæðis, kjósi áður eftir
sömu reglum og við lögðum til í tillögu I. Sömu
reglur gildi um vaktavinnumenn, sem hafa vinnu-
skyldu á fundartíma. Er þannig leitast við, að
okkar dómi, að sameina kosti beggja frumvarpa
okkar og er tillaga þessi að því leyti athyglisverð.
Hins vegar fylgja henni einnig að nokkru ókostir
þeirra beggja. I fyrra tilfellinu má t. d. nefna
þann ókost, að allir félagsmenn geta neytt at-
kvæðisréttar síns án þess að fórnað sé þeirri fé-
lagslegu þýðingu, sem fjölmennir fundir hafa, en
í hinu síðara þann ókost, að kosningarnar verða
í heild allþunglamalegar.
Að athuguðu máli, virðist okkur, að hver þess-
ara þriggja leiða um sig geti komið til greina við
framkvæmd kosninga í félaginu, og teljum við
eðlilegt að þær allar verði lagðar fyrir trúnaðar-
ráð félagsins til umræðu og athugunar.
Að lokum viljum við taka fram, að ofangreind
tillaga félagsstjómar lá ekki fyrir í endanlegri
mynd og höfum við því ekki tekið afstöðu til
orðalags einstakra greina eða smábreytinga, er í
henni kunna að felast frá tillögum okkar. Gildir
þetta álit því eingöngu um ætlaða leið við fram-
kvæmd kosninganna.
Með virðingu og félagskveðju,
(sign) Þórhallur Pálsson.
(sign) Flosi Hrafn Sigurðsson.
(sign) Guðjón Guðmundsson.
n