Víðförull - 06.03.1937, Side 1
Gefið út til ágdða fyrir ferðasjéð 13«ára bekk.jar A f Miðbæ.jarskólanum
i.árg.l.tbl.
-6.mars
1937
A V, A R P.
Blað það,er hér hefur göngu sína,hefir þrjú markmið:
Það á að afla ferðasjdði vorum nokkurra tekna,en ferða-
sjáð stofnuðum vér s.l.haust,til þess að geta farið í ferðalag í
vor,að loknu préfi. _Þetta er síðasti vetur vor £ harnaskóla,og
vér viljum Ijúka dvöl vorri hér á__sem ánægjulegastan og eftir-
minnilegastan hátt,þannig að vér öll verðum ríkari af gdðum
endurminningum. En fé til framkvæmda,kemur ekki fyrirhafnarlaust
til vor,fremur en annara. Því heldum vér nokkru fyrir síðustu
áramát hlutaveltu til ágéða fyrir ferðasjéðinn. Margir^bæjar-
búar gáfu géða og gagnlega muni til hennar,og kunnum vér þeim
öllum beztu þakkir fyrir. Vonum vér að blað vort fái einnig
géðar viðtökur,og færi ferðasjéði vorum géAar tekjur,því að
hann viljum vér ölT efla.
Þá er einnig markmið blaðsins,að æfa oss í að skrá
hugsanir vorar,skýrt og skiljanlega,og auka leikni vora £ með-
ferð móðurmálsins. En það er eitt af mörgu,sem nútíminn krefst
af öllum,að þeir geti túlkað hugsanir s£nar fyrir öðrum mönnum,
og gefið þeim hæfilegan búning.
Loks „er markmið blaðsins,að ^vera. boðberi vor barnanna
til heimila vorVa,vina og velunnara,sýna þeim dæmi þess,um hvað
vér hugsum,áhugamál vor og verkefni.
Vér vitum að' frágangi blaðsins,og efni,er áfátt. En
samt treystum vér þvx^að þeir,sem^blaðið sjá,muni taka viljann
fyrir verkið,og minnast þess,að vér erum öll nemendur,sem margt
eigum énumið..
Störfum svo öll af áhuga og kappi.
Eflum ferðasjoð vornl
Sigurður G.Halldérsson
Vestfirzk þjéðtrú.
A méti Flate^ri við Önundarfjörð er fjall eitt.
er^Þorfinnur nefnist. Efst á þv£ er kistulagaður klettur. Segír
þjéðtrú þar vestra,að ef maður geti gengið upp á fjallið,án þess
að lfta til hliðanna eða aftur fyrir sig,eða segja eitt einasta
orð,þá opnist kistan, full af gulli,og megi maður þá taka eins
mikið af þv£ og maður vill.
Eitt sinn komst fátækur bóndi upp,án þess að lita
til hliðanna,eða segja eitt einasta orð. Þegar hann kom upp,
opnaðist kistan. En þegar hann sá gullið,hrépaði hann upp yfir
sig: "G, guð minnl " En þá lokaðist kistan.
(Skrásett af Ben.S.Gröndal).