Skákblaðið - 01.10.1936, Síða 24
36
SKÁKBLAÐIÐ
og læra af honum eftir því sem unt er. h>kki veitir af undir skák-
þingið í Stokkhólmi að sumri.
Skákblaðið hefir að ýmsu breytt frá því sem áður var. Skák-
þrautirnar eru nú prentaðar með fallegra og minna letri en áður,
eru því 12 á síðu i stað 4 áður. Þegar blaðið er lítið verður að
koma sem mestu fyrir, svo kaupendur fái meir en örfáar skákir.
Af þeirri ástæðu eru mörg töflin án athugasemda og skákmyndir
í prentuðum skákum feldar niður.
Munið að senda Skákblaðinu fréttir frá félagi ykkar.
Brýnið Jiað fyrir öllum, að liezla skemtunin á fámennu
heimili, er að tefla skák.
Mætið vel á æfingum félags ykkar í vetur. Með því eflið þið
liezt félagið, skemtið vkkur og öðrum og verðið betri og sterkari
tafhnenn.
í þennan dálk tekur Skákblaðið á móti stultum athuga-
semdum eða greinum til leiðbeiningar um það, er varðar skák
og skákiðkendur.
Gerið ykkur far um að útbreiða Skáklilaðið og útvega því
sem flesta kaupendur. Með því eflið þið skáklist á landi hér og
þar með möguleika vðar sjálfs, sem góðs skákmanns, er verði
sendur utan, sjálfum sér og þjóðinni til heiðurs.
Eftirleiðis flytur hlaðið lista með nöfnum þeirra, er senda
réttar ráðningar á skákþrautunum.
í skákþrautunum nú eru þessar prentvillur nr. 33 hvítur
H á c4 á að vera riddari, nr. 34, hvítur R aö á að vera hrókur
og í nr. 58 á að vera Hf4 (í stað peðs) og peð g4.
Pétur Zophoniasson.