Skákblaðið - 01.10.1936, Blaðsíða 27

Skákblaðið - 01.10.1936, Blaðsíða 27
SKÁKBLAÐIÐ 39 ar. Þeir, sem kveða upp dóma nm taflmennina, verða og að gæta þess, að mikill munur er á því, hvert teflt er á 1. eða 8. borði. Næsta ár er alþjóðaþing FIDE í Stokkhólmi. Þangað ber að senda 4 teflendur og' 1 varamann. Ríður nú á, að skákmennirnir æfi sig vel undir förina. Þótt ýmislegt megi að finna, þá kunnum vér þakkir fvrir að tvær stórþjóðir eru fvrir neðan okkur, en vonum að við náum næst því sæti er oss her, sem er talsvert ofar. Fyrir alla er bezt að gera sér ljóst hvað er að læra af för- inni og þeim, sem áður liafa verið farnar. Tek ég' það fram á mína ábyrgð, sem annað hér, hvern veg sem aðrir líta á þau atriði. Hið fyrsla, er æfingin. Það er öldungis nauðsvnlegt, að þeir er fara æfi sig mjög vel og rækilega, og þeir verða að vera vel að sér í þeim byrjunum sem nú eru mest tefldar. Þessu hefir alltaf verið mjög ábótavant en þó einkum nú, og er ég sann- færður um, að það hefir dregið margan vinning úr höndum okk- ar. í mörgum skákum hafa hinir ýmist unnið skákina eða feng- ið mikið betri aðslöðu strax í byrjuninni. Það er líka auðséð, þar sem stórþjóð, eins og Þjóðverjar iiafa einn af fremstu taflmönn- um heimsins lil að æfa keppendur sína i lengri tíma, þá þurfum við þess ekki siður. Skáksambandið hefir engin ráð á því, en hver einstakur sem fer, eða luigsar sér að verða góður taflmaður, verður ávalt að muna það, að hann verður bæði að lesa skák og æfa sig af kappi. Skáksambandið liefir nú samið við góðan þýzkan taflmann, Engels að nafni, að koma hingað í desember byrjun og dvelja hér mest vetrar, lil að kenna skák og æfa menn. Voiumdi að allir er mögulega geta noti tækifærið. Hið annað, sem athygli vekur, er skáktíminn. Á skákþingun- um hér hefir umhugsunartíininn verið of Iangur, miðað við það sem liér var. Má það vera orsök lil þess, að menn hafa lent í tímaþröng og jafnvel tapað skák á tíma. Umfram alt verið ekki oflengi með „teoretisku“ leikina. En er það að hér er teflt suma dagana tvisvar í 4 tíma í röð eða 8 tíma á dag. Þar sem þetta hefir ekki verið hér, þá má vel vera að einhverjir verði þreyttir eftir svo langan tafltíma. Er það umhugsunarvert, hvert ekki væri, þegar utanfarir verða algeng-

x

Skákblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skákblaðið
https://timarit.is/publication/1555

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.