Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 15.01.1991, Blaðsíða 6
Félagstíðindi SFR
Þetta
þarftu að vita
Starfsþjálfun á veg-
um stofnana:
Þeir starfsmenn sem
sækja ffæðslu- eða þjálfun-
amámskeið samkvæmt
beiðni stofnunar sinnar
skulu halda reglubundnum
launum á meðan og fá
greiddan kostnað sam-
kvæmt reglum þar um.
Sérmenntað starfsfólk
ríkisspítala, svæðisstjóma
og styrkarfélags vangef-
inna, sem með sérstöku
leyfí stjómar stofhana
stundar viðurkennt sémám
varðandi starf sitt eða sæk-
ir ffamhalds- eða endur-
menntunamámskeið sem
nýtur viðurkenningar heil-
brigðisyfírvalda, haldi föst-
um launum allt að þrem
mánuðum á hveijum fimm
árum.
Launahlutfall í náms-
leyfi sé sem næst meðaltali
launa þann tíma sem réttur-
inn vannst á.
Heimilt er að veita
starfsmönnum, sem ákvæði
þetta tekur til, námsleyfi
með þessum kjörum tíðar
en að ffaman greinir en þó
skemur hveiju sinni, þó
ekki umffam einn mánuð á
hveijum 20 mánuðum enda
leiði ekki af því aukinn
kostnað. Heimilt er að veita
lengra leyfi sjaldnar eða
allt að sex mánuði á hveij-
um 10 mánuðum.
Ófaglærðu starfsfólki
ríkisspítalanna og stofhana
fyrir fatlaða (gæslumenn,
vaktmenn, aðstoðarmenn,
þvottamenn og sérhæfðir
aðstoðarmenn Lyfjaversl-
unar ríkisins) skal gefinn
kostur á starfsþjálfun og
skipulögðu námi á fyrsta
ári í starfi.
Að námi loknu eða eftir
eins árs starf skulu starfs-
menn þessir hækka um
einn launaflokk. Eftir
tveggja ára starf skal starfs-
fólk þetta eiga kost á ffam-
haldsþjálfun og námi. Að
því loknu hækki starfs-
menn um annan launa-
flokk.
Launalaust leyfi:
Starfsmaður skal eiga
rétt á launalausu leyfi ef
honum býðst tækifæri
og/eða styrkur til að vinna
að tilteknu verkefhi, m.a.
tengdu starfi hans. Slíkt ffí
skal tekið í samráði við yf-
irmann stofhunar.
Starfsmenntunar
sjóður:
Ríkissjóður greiðir sér-
stakt gjald í Starfsmennt-
unarsjóð SFR. Gjald þetta
skal nema 0.22% af heild-
arlaunum félaga í SFR.
FELAGSTIÐINDI
Starfsmannafélags ríkisstofnana
SFR er stofnað 17. nóvember 1939
Skrifstofa þess er á Grettisgötu 89, 105 Reykjavík
Opið: 9.00-17.00 - Sími: 91-629644
Ábyrgðarmaður Félagstíðinda: Sigríður Kristinsdóttir
Ljósmyndir: Pétur Óskarsson
Prentun: Oddi hf.
Vinna við tölvur
Rannsóknir hafa leitt í
ljós að fólk sem vinnur mikið
við tölvur og tölvuskjái
kvartar oft um vanlíðan. Það
virðist skipta miklu máli hve
lengi starfsmenn sitja við
tölvuskjáina á dag og verður
vanlíðanin því meiri sem
lengur er setið við skjáina.
Rannsóknir benda til að
óþægindin megi einkum
rekja til of mikils álags á
sjónina, til rangrar lýsingar,
rangra vinnustellinga- og
hreyfinga, lélegs tæknibún-
aðar og að vinnuaðstaðan sé
ekki nógu góð.
Þar sem vænta má þess að
almennt skrifstofufólk vinni
sífellt meira við tölvur og
fyrir ffaman tölvuskjái verð-
ur hér og í næstu blöðum
minnt á nokkur atriði sem
hafa þarf í huga þegar unnið
er við tölvuskjái. Er byggt á
bæklingum ffá Vinnueftirliti
ríkisins og félögum prentiðn-
aðarins.
Augu og iýsing
Augun verða fyrir miklu
álagi þegar unnið er við
tölvuskjái. Skjárinn sker sig
oft úr umhverfinu að birtu-
magni, er yfirleitt ljósari eða
dekkri og eins og á sífelldu
iði. Æskilegt er að hafa skjás-
íur sem jafha birtuna ffá
skjánum og draga úr hugsan-
legri geislun en það virðist
misjafnt hvemig þær henta
einstökum notendum.
Þeir sem byija að vinna
við tölvuskjái ættu að gang-
ast undir sjónpróf og láta
fýlgjast með augunum með
jöfnu millibili. Sömuleiðis
þarf að kanna hvort gleraugu
henta fjarlægðinni ffá skján-
um. Að sjálfsögðu þarf að
stilla rétt helstu fjarlægðir,
svo sem fjarlægð ffá tölvu-
skjá, lyklaborði og handriti
en allt þarf það að miðast við
þarfis sérhvers einstaklings.
Ef andstæður milli skjás
og umhverfis em miklar, þ.e.
mismikil birta, verður augað
sífellt að laga sig að mismun-
andi birtustigi. Ljósop aug-
ans dregst sundur og saman
eftir því sem við á og veldur
það á endanum augnþreytu.
Ymislegt er hægt að gera
til að bæta birtuskilyrðin.
Heppilegast er talið að birtan,
þar sem unnið er við tölvu-
skjái, sé ffá 300-500 lux en
það er heldur minna en
venjuleg lýsing á skrifstof-
um. Ákjósanlegt er að birta
falli ekki beint á tölvuskjá-
inn, hvorki dagsbirtan né
birta ffá perum, því það getur
orsakað óþægilegan glampa
á skjánum. Æskilegt er að
hafa lampa með góðum
skermum eða ristum til að
jafha dreifingu birtunnar.
Þess skal gætt að glampi ffá
handriti, sem rýnt er í, og
tölvuskjá sé sem líkust. Loks
ætti að forðast að hafa veggi,
gólf og aðra hluti í umhver-
inu í hvítum eða mjög skær-
um litum.