Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 15.04.1991, Qupperneq 2
2
_____________í Félagstíðindi SFR j_
Tvö réttindamál
í vetur hefur lögfræð-
ingur BSRB, Gestur
Jónsson, flutt tvö mál
SFR-félaga fyrir dómstól-
um. f báðum fengust rétt-
indi okkar staðfest.
Annað tilvikið snerist
um skilning á grein 2.6.13 í
gildandi kjarasamningi
SFR þess efnis að vakta-
vinnufólk, sem náð liefur
55 ára aldri, eigi rétt á að
losna við að standa nætur-
Samn-
ingur um
Félags-
mála-
skóla
alþýðu
Nýlega var undir-
ritað samkomulag
milli BSRB og fjár-
málaráðherra þess
efnis að ríkisstarfs-
menn í aðildarfélög-
um BSRB, sem
sækja vilja skólann,
fái greidd laun með-
an á skólavistinni
stendur með sam-
þykki yfirmans.
Annirnar í Fé-
lagsmálaskóla al-
þýðu standa yfirleitt
í hálfan mánuð og er
unnið allan daginn.
gjama í Ölfusborg-
um. Það er því tæp-
lega unnt að sækja
skólann nema með
því að fá laun greidd
á skólatímanum og
nú er svo komið að
félagsmenn í SFR
eiga völ á því.
vaktir ef það óskar þess.
Starfsmaður á ríkisstofnun
lét vita með þriggja mánaða
fyrirvara að hann hygðist
nýta sér þetta ákvæði haust-
ið 1990 þegar hann næði 55
ára aldri. Forstöðumaður
viðkomandi stofnunar taldi
vandkvæði á að láta starfs-
manninn vinna eingöngu
dagvinnu og neitaði að
verða við þessari ósk, taldi
einnig að tilvitnuð kjara-
samningsákvæði væru
heimildarákvæði og þyrfti
því samþykki beggja aðila
til þess að það yrði fram-
kvæmt. Launaskrifstofa
ríkisins tók undir þetta
sjónarmið forstöðumanns-
ins.
Áður en málarekstur
hófst hafði ríkislögmaður
sambandi við lögfræðing
BSRB og lýsti því yfir að
hann teldi skilning BSRB á
umræddum ákvæðum rétt-
an. I framhaldi af því var
gerð réttarsátt fyrir félags-
dómi þar sem fallist var á
kröfur BSRB og SFR.
Samkvæmt þessu er að
fullu viðurkennt af ríkisins
hálfu að ríkisstarfsmenn
eiga rétt á því að hætta næt-
urvöktum við 55 ára aldur
óháð því hvort ríkið sam-
þykkir að verða við
óskinni. Rétturinn er ein-
hliða hjá einstökum starfs-
mönnum.
Hitt málið snýst um
uppsagnarfrest starfs-
manns. Forstöðumaður
stofnunar taldi að starfs-
rnanni, sem var upphaflega
ráðinn til afleysinga, bæri
einungis eins mánaðar upp-
Leiörétting
I fundargerð
trúnaðarmannafundar 20.2.
sem birtist í marsblaðinu var
ekki farið rétt með orð
Hjörleifs Ólafssonar. Hann
sagði efnislega, að hann
teldi að ekki væri þörf á að
SFR stofnaði sérstakar
þjónustudeildir víðsvegar
sagnarfrestur. í ráðningar-
samningi kemur fram að
starfsmaðurinn skuli eftir
þriggja mánaða starf hafa
fastráðningu skv. samning-
um SFR en henni fylgir fyr-
irframgreiðsla launa og að-
ild að Lífeyrissjóði starfs-
manna ríkisins. Eftir þessu
var farið og því litið svo á
að starfsmaðurinn væri
fastráðinn eftir þriggja
mánaða vinnu á stofnun-
inni. I dómi Bæjarþings
Reykjavíkur var þriggja
mánaða uppsagnarfrestur-
inn viðurkenndur.
um landið, það væri fremur
hlutverk BSRB að annast
slíka þjónustu fyrir
aðildarfélögin, einkum þegar
haft er í huga að dregið
hefur úr hlutverki þess
(BSRB) eftir að
samningsréttarlögunum var
breytt.
Frá lífeyrisþegadeild SFR
Aðalfundur deildarinnar verður
föstudaginn 3. maí n.k. kl. 15.00 að
Grettisgötu 89, 4 hæð. Þar munu með-
al annars leikararnir Egill Ólafsson,
Edda Heiðrún Bachmann, Jóhann
Sigurðarson og Asa Hlín Svavarsdótt-
ir skemmta. Nánar verður greint frá
dagskrá fundarins í bréfi sem sent
verður til félagsmanna deildarinnar
bráðlega.
Staðreyndir um eldri borgara
Árið 1930 var aðeins 7,8% þjóðarinn-
ar á aldrinum 65 ára eða eldri. Nú er
samsvarandi tala urn 11%. En annars
staðar á Norðurlöndum er hlutfallið mun
hærra, eða frá 13% í Finnlandi og upp í
tæplega 18% í Svíþjóð þar sem það er
hæst. Heildarfjöldi einstaklinga á þess-
urn aldri á íslandi er nú um 30 þúsund
manns.
Af þessunt 30 þúsund eldri borgurum
búa tæplega 20 þúsund í Reykjavík og á
Reykjanesi en tæplega tíu þúsund annars
staðar á landinu.
Um 60% fólks á aldrinum 65-74 ára
er í hjónabandi. Um 15% eru ógiftir og
um 25% eru ekkjur, ekklar eða fráskildir.
Yfir 90% hjóna eldri en 65 ára búa í
eigin húsnæði og enn hækkar sú tala ef
litið er á aðeins yngri aldurshóp, 51-70
ára. Samkvæmt könnun sem Félagsvís-
indastofnun Háskóla Islands gerði býr
tæplega 97% þess aldurshóps í eigin
húsnæði. Líklegt má telja að hvergi með-
al vestrænna þjóða sé húsnæðiseign
fólks jafn almenn og mikil meðal eldra
fólks og er hér á landi.
Samkvæmt samantekt Fasteignamats
ríkisins eiga 60 ára og eldri samtals um
23.500 íbúðir en heildarfjöldi íbúða á
landinu er um 88.500. Lætur því nærri
að 26,5% íbúða séu í eiga 60 ára og eldri
en sá aldurshópur er u.þ.b. 14,5% lands-
manna.
Úr Ráðdeild, þjónusturiti Landsbank-
ans, mars 1991.