Fréttablaðið - 30.03.2021, Síða 2
Lágstreymt í löndun
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
....................................................
Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
MUNDU EFTIR GÖMLU GÓÐU
AFMÆLISKRINGLUNNI
- fyrir 25-30 manns
PREN
TU
N
.IS
Þessa vöru þarf að sérpanta. S. 561 1433
Netfang: bjornsbakari@bjornsbakari.is
ELDGOS „Mér finnst það vera einfalt
mál og að það eigi að drífa í gjald-
töku,“ segir Ólafur Stephensen,
framkvæmdastjóri Félags atvinnu-
rekenda, en hann er einn af þeim
fjölmörgu sem hafa skoðað eld-
stöðvarnar í Geldingadölum.
Ólafur hefur lengi verið á þeirri
skoðun að hefja eigi gjaldtöku
við náttúruperlur landsins. Hann
skrifaði fyrst um nauðsyn gjald-
töku í Lesbók Morgunblaðsins árið
1988 þegar landeigendur við Höfða
í Mývatnssveit fóru að rukka inn.
„Þetta er enn að velkjast fyrir
fólki. Mér finnst þetta einfalt mál.
Hvort sem það er þessi náttúru-
perla eða einhver önnur þá kostar
peninga að leggja stíga, vera með
gæslu, setja upp merkingar og svo
framvegis. Það er miklu eðlilegra
að þeir sem njóta náttúrunnar á
þessum stað borgi fyrir það en það
sé fjármagnað af skattfé sem er
síðan alltaf of naumt skammtað,“
segir Ólafur.
Á sunnudag varð mikil örtröð
er fólk var að yfirgefa gossvæðið.
Þurfti að fara hægt yfir til að komast
aftur í bílana. Mikil hálka myndað-
ist á gönguleiðinni þegar byrjaði að
snjóa og strekkingsvindur gerði líka
fólki erfitt fyrir.
Bogi Adolfsson, formaður björg-
unarsveitarinnar Þorbjarnar í
Grindavík, sagði í samtali við
Fréttablaðið á sunnudag að sumir
hefðu örmagnast á göngunni. Í gær
ráðlögðu viðbragðsaðilar göngu-
fólki að hafa brodda meðferðis en
flughált var á gönguleiðinni að gos-
stöðvum.
„Það æpir á mann þegar maður
gengur þarna um að það þurfi að
afmarka gönguleiðirnar betur,
gæta að öryggi fólks og passa upp
á umgengni, því að við höfum séð
sorglegar fréttir um sóðaskap við
gosstöðvarnar. Kannski þarf að
setja upp skilti til að minna fólk á að
fara með ruslið heim,“ segir Ólafur í
léttum dúr. Upplifunin hafi þó verið
ekkert minna en stórkostleg.
„Þetta er mikið sjónarspil og þetta
ferðalag í svona fjölmennum hópi
var dálítið skemmtilegt. Það var
svolítil pílagrímastemning í þessu.
Þetta minnti mig aðeins á þegar ég
gekk á heilagt fjall á Srí Lanka ásamt
nokkrum þúsundum,“ segir Ólafur.
Það sé dálítið sérstakt að vera í fjöl-
menni í fjallgöngu á Íslandi.
„En maður vorkenndi klárlega
náttúrunni svolítið, gróðurinn er
viðkvæmur þarna. Mér finnst full
þörf á að taka til hendi á svæðinu
og afmarka leiðirnar betur og það
er hið eðlilegasta mál að þeir sem
koma borgi fyrir þá þjónustu,“ segir
Ólafur. benediktboas@frettabladid.is
Blasi við að taka gjald
fyrir aðgang að gosinu
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, sem gekk að
gosstöðvunum um helgina, hefur lengi sagt að rukka eigi gjald fyrir aðgang að
náttúruperlum landsins. Hann vill að drifið verði í gjaldt öku í Geldingadölum.
Það er miklu
eðlilegra að þeir
sem njóta náttúrunnar á
þessum stað borgi fyrir það
en það sé fjármagnað af
skattfé sem er síðan alltaf of
naumt skammtað.
Ólafur Stephensen
Gífurlegur fjöldi sækir í sjónarspilið í Geldingadölum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Unnið var að löndun í Kef lavíkurhöfn í gær. Báturinn heitir Hraunsvík og kallast nafn hans á við eldsumbrotin á Reykjanesskaga. Telja má víst að
báturinn hafi þó verið til nokkru lengur en hraunið sem rennur í Geldingadölum. Enn er beðið eftir nafni á það. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
FISKELDI Skipulagsstofnun hefur
verið gert að taka til afgreiðslu
án frekari tafa tillögu Arnarlax
að matsáætlun og frummats-
skýrslu vegna fyrirhugaðrar fram-
leiðsluaukningar á laxi í sjókvíum
fyrirtækisins í Arnarfirði. Þetta er
niðurstaða úrskurðarnefndar um
upplýsingamál.
Arnarlax kærði í nóvember
síðastliðinn „vanrækslu Skipulags-
stofnunar á því að afgreiða frum-
matsskýrslu, eða eftir atvikum
að afgreiða matsáætlun um mat á
umhverfisáhrifum, vegna fyrirhug-
aðrar framleiðsluaukningar á laxi
um 4.500 tonn í núverandi sjókvíum
kæranda í Arnarfirði,“ eins og segir í
umfjöllun úrskurðarnefndarinnar
sem tekur undir með Arnarlaxi að
málsmeðferð Skipulagsstofnunar
hafi ekki verið í samræmi við lög.
„Er það niðurstaða úrskurðar-
nefndarinnar að óhæfilegur drátt-
ur hafi orðið á afgreiðslu erinda
kæranda [Arnarlax], þær tafir eigi
sér ekki lagastoð og séu því ekki
afsakanlegar. Verður því lagt fyrir
Skipulagsstofnun að taka til form-
legrar afgreiðslu án frekari tafa til-
lögu kæranda að matsáætlun, sem
og frummatsskýrslu hans,“ segir
úrskurðarnefndin. Ljóst sé að teldi
stofnunin matsáætlun vera forsendu
þess að hún gæti tekið frummats-
skýrsluna til meðferðar hafi henni
borið henni að hafna skýrslunni
með þeim rökum. – gar
Óafsakanlegur dráttur
hjá Skipulagsstofnun
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, for-
stjóri Skipulagsstofnunar.
Þorvaldur Þórðarson jarðfræðingur.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGRTYGGUR ARI
ELDGOS „Þetta bara heldur áfram,“
segir Þorvaldur Þórðarson jarðvís-
indamaður um ganginn í gosinu í
Geldingadölum.
„Það er aðeins meira púður í gíg-
unum núna. Það gæti verið vegna
þess að gígopin efst eru orðin
aðeins þrengri. Það eru heldur hærri
strókar upp úr þeim. þetta er eina
breytingin sem ég hef séð annars er
þetta einfaldlega stöðugt rennsli,“
segir Þorvaldur.
Kvikustreymið er að sögn Þor-
valdar í jafnvægi. „Á meðan það
verður engin breyting á því held ég
að þetta haldi áfram að dæla út,“
segir hann. Nóg sé til undir yfir-
borðinu. „Sá tankur er búinn að
vera að safna í sig í átta hundruð ár.“
Þorvaldur segir enn mjög gott
aðgengi að gosstöðvunum. „Það er
bara að koma sér vel fyrir í brekk-
unum fyrir ofan og fá sér smá kaffi,“
ráðleggur hann. – gar
Fái sér kaffi
og njóti
útsýnisins
3 0 . M A R S 2 0 2 1 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð