Fréttablaðið - 30.03.2021, Síða 4
FIAT HÚSBÍLAEIGENDUR
ER HÚSBÍLLINN ÞINN KLÁR FYRIR SUMARIÐ?
BJÓÐUM UPP Á SMURÞJÓNUSTU OG LÉTTA ÁSTANDSSKOÐUN FYRIR SUMARIÐ:
• SJÓNSKOÐUN Á BREMSUKERFI OG UNDIRVAGNI
• LJÓS YFIRFARIN
• ÁSTAND HJÓLBARÐA METIÐ OG LOFTÞRÝSTINGUR MÆLDUR
• ÞURRKUR OG RÚÐUSPRAUTUR YFIRFARNAR
• ÁSTAND KÆLIKERFIS METIÐ
• HLEÐSLA RAFKERFIS MÆLD.
ALLIR VINNA – ENDURGREIÐSLA Á VSK Á VINNULIÐ AÐ LÁGMARKSUPPHÆÐ 25.000 KR. ÁN VSK.
ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF • VERKSTÆÐI OG VARAHLUTAVERSLUN • SMIÐSHÖFÐA 5 • 110 REYKJAVÍK
SÍMI 590 2323 • THJONUSTA@ISBAND.IS • WWW.ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 07:45 - 17:00
SKIPULAGSMÁL Stofnanir sem gefa
umsagnir um áformaða þrettán
hektara landfyllingu í Elliðavogi
hvetja til þess að farið verði með
ítrustu gát til að spilla ekki fyrir
laxastofni Elliðaánna.
Samkvæmt Aðalskipulagi Reykja-
víkur er þessi fyrirhugaða landfyll-
ing eitt af þremur lykilsvæðum í
framtíðaruppbyggingu í borginni.
Í matsskýrslu frá borginni sem
Skipulagsstofnun tók til skoðunar
er talið að samtals þurfi 1,0 til 1,2
milljónir rúmmetra af efni í land-
fyllinguna sem verði varin af sjó-
varnargörðum. Í garðana þurfi um
21 þúsund rúmmetra af grjóti. Taka
muni þrjú til fjögur ár að ljúka við
landfyllinguna.
Iðnaðarstarfsemi, þar með talin
starfsemi jarðefnafyrirtækisins
Björgunar, á svæðinu verður lögð af
og í staðinn kemur blönduð byggð.
Fyrsti áfanginn verður 2,5 hektarar.
Gert er ráð fyrir að 90 prósent af því
efni sem til þarf, sem áætlað er að
séu um 240 þúsund rúmmetrar,
fáist af athafnasvæði Björgunar.
Afgangurinn fáist með dælingu af
sjávarbotni.
Segir Skipulagsstofnun að það
mat á umhverf isáhrifum sem
þegar hafi farið fram sé nægilegur
grundvöllur til að leyfa 1. áfanga að
uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
„Ljóst er að enn er ósvarað veiga-
miklum spurningum um áhrif 2. og
3. áfanga landfyllingarinnar á lax-
fiska,“ segir stofnunin hins vegar.
Í fyrsta lagi segir Skipulagsstofn-
un að kanna þurfi hættu á mengun
úr neðri lögum botnsets áður en
farið sé í fyrsta áfangann. Þá þurfi
að afmarka framkvæmdasvæðið
með görðum eða öðrum aðgerðum
til að takmarka eins og hægt sé að
grugg berist til búsvæða laxfiska
á ósasvæði Elliðaánna. Og í þriðja
lagi setur Skipulagsstofnun það
skilyrði að framkvæmdatíminn sé
„bundinn við þann tíma árs þegar
laxfiska er almennt ekki að vænta
á ósasvæðinu“.
Eitt helsta áhyggjuefnið vegna
hugsanlegra neikvæðra áhrifa land-
fyllingarinnar tengist einmitt sil-
ungi og laxi. Segir Skipulagsstofnun
að sýnt hafi verið fram á mikilvægi
ósasvæðisins fyrir gönguseiði og
fullorðinn lax við lífeðlisfræðilega
aðlögun að breyttu seltumagni. Í
Elliðaám og Elliðavatni sé að finna
allar tegundir ferskvatnsfiska hér-
lendis, það er lax, bleikju, urriða,
hornsíli og ál. Allar þessar tegundir
geti farið á milli ferskvatns og
sjávar.
Þá segir að göngutími fiska skipti
verulegu máli gagnvart öllum fram-
kvæmdum í Elliðaárvogi. Fiskur sé
að ganga til og frá sjó frá apríl fram í
nóvember. Því séu það aðeins fimm
vetrarmánuði sem ekki sé samgang-
ur fiska milli sjávar og ferskvatns í
Elliðaárvogi.
Vitnað er til umsagnar Veiðimála-
stofnunar sem segir að fara þurfi að
öllu með gát. „Er bent á að ef hin
fyrirhugaða landfylling auki afföll
fiska umtalsvert séu miklir hags-
munir í húfi, bæði veiðihagsmunir
og þeir hagsmunir sem fylgja þeirri
hreinleikaímynd að hafa uppruna-
legan laxastofn í miðri höfuðborg.“
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
og Fiskistofa taka í sama streng
og Veiðimálastofnun varðandi
fiskana. Sama gildir um Skrifstofu
umhverfisgæða hjá Reykjavíkur-
borg sem segir „nauðsynlegt að ítr-
ustu varfærni verði gætt við þessa
framkvæmd enda einstakt að hafa
laxveiðiá í miðri höfuðborg og því
beri að hlúa að ánum frekar en að
skapa aukið álag og áhættu“.
gar@frettabladid.is
Ný landfylling háð skilyrðum
Ferskvatnsfiskar í Elliðavatni og Elliðaám eru helsta áhyggjuefni vegna landfyllinga í Elliðavogi. Skipu-
lagsstofnun leyfir fyrsta áfangann ef gripið verður til varnaðaraðgerða. Meiri vafi um seinni tvo áfangana.
Fyrsti áfangi í landfyllingum við Elliðaárvog er austast en áfangi 2 er vestast. Þriðji áfanginn er á milli. MYND/VERKÍS
Í Elliðaám og Elliðavatni
eru allar tegundir fersk-
vatnsfiska hérlendis, það er
lax, bleikja, urriði, hornsíli
og áll. Allar tegundirnar fara
á milli ferskvatns og sjávar.
Grjótvarnargarður
(ný strandlína)
Ta
ng
ab
ry
gg
ja
Gelgjutangi
Elliðaárvogur
Sævarhöfði
Aðalskipulagsmörk
Áfangi 1
Áfangi 3
Áfangi 2
Áfangaskipting landfyllinga
úr umhverfismatsskýrslu
Byggingarreitir
nýrra húsa
Fráveitulagnir
VERKFANG TEIKNING
105 Reykjavík
Sími: 411 1111
Borgartún 12-14
C Öll afnot og afritun teikningar, að hluta eða í heild er háð skriflegu leyfi höfunda
www.verkis.is - sími: 422 8000
Mkv: Stærð:
Dags:
SKÝRINGARDAGSÚTG TEIK HANN RÝNT SAMÞ
SAMÞYKKT:
Teikn. nr.: Útg.:
BRYGGJUHVERFI - LANDFYLLING
Yfirlitsmynd með nýrri strandlínu og áfangaskiptingu
landfyllinga úr umhverfismatsskýrslu
05168 008.C71.B34 1
1:2000 A2
2021-03-11
1 2021-03-11 v/framkvæmdaleyfis KHG
B34 1
0 m100
1:2000
200
Frumstærð blaðs A2
Sævarhöfði
Ta
ng
ab
ry
gg
ja
Elli aárvogur
l j tangi Áfangi 3
Grjótavarnargarður
(ný strandlín
Áfangaskipting landfyllinga
úr umhverifsmatsskýrslu
Byggingarreitir
nýrra húsa
Fráveitulagnir
Aðalskipulagsmörk
Áfangi 2
Áfangi 1
Ell
ið
aá
r
VIÐSKIPTI Róbert Wessman, for-
stjóri Alvogen og Alvotech, er
sakaður um að hóta fyrrverandi
samstarfsmönnum sínum og fjöl-
skyldum þeirra líf láti.
Halldór Kristmannsson, fyrrver-
andi framkvæmdastjóri Alvogen
og Alvotech og náinn samstarfs-
maður Róberts til 18 ára, sendi
stjórnum fyrirtækjanna bréf þann
20. janúar til að vekja athygli á
stjórnunarháttum og ósæmilegri
hegðun Róberts.
Í ítarlegri greinargerð er skorað á
stjórnir fyrirtækjanna að taka líf-
látshótanir og ógnandi textaskila-
boð Róberts til sérstakrar rann-
sóknar. Halldór hefur að eigin sögn
lagt fram tugi tölvupósta og texta-
skilaboða, sem sýna hvernig hann
var beittur óeðlilegum þrýstingi
til að koma höggi á óvildarmenn
Róberts, sem hann bar þungum
sökum.
Halldór segir samstarf þeirra
Róberts hafa að mestu leyti verið
farsælt en að það hafi myndast
alvarlegur ágreiningur milli þeirra
sumarið 2018 og í september 2020,
þegar Róbert bar háttsetta emb-
ættismenn á Íslandi, alþjóðlegan
fjárfesti og íslenskan blaðamann
þungum sökum.
Segist Halldórhafa orðið per-
sónulega fyrir líkamsárás og orðið
vitni að annarri frá Róbert, þegar
hann var undir áhrifum áfengis á
viðburðum fyrirtækisins erlendis.
„Það er augljóst af bréfasend-
ingum lögmanna Halldórs, Quinn
Emanuel, að ásakanir hans eru
gerðar í f járhagslegum tilgangi
enda koma þar fram kröfur um
greiðslur til handa honum,“ segir
meðal annars í yf irlýsingu frá
Róbert Wessman sem barst fjöl-
miðlum síðdegis í gær. – ilk, aá
Brigslyrðin ganga milli fyrrverandi samstarfsmanna í Alvogen
Höfuðstöðvar Alvogen og Alvotech
í Vatnsmýri. FRÉTTABLAÐIÐ/HANNA
Halldór Kristmannsson
kveðst hafa tugi tölvupósta
og textaskilaboða, sem sýni
hvernig hann var beittur
óeðlilegum þrýstingi til að
koma höggi á óvildarmenn
Róberts Wessman.
Bólusett. FRÉTTBLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
COVID-19 Fyrirtækið Jansen, dóttur-
félag bandaríska lyfjafyrirtækisins
Johnson & Johnson, tilkynnti í
gær að bóluefni fyrirtækisins gegn
COVID-19 byrji að berast Evrópu-
þjóðum 19. apríl.
Að því er fram kemur í frétt
sænska ríkissjónvarpsins hefur
Evrópusambandið pantað 200
milljónir skammta af Jansen-bólu-
efninu og á möguleikann á því að
fá annað eins magn afgreitt til við-
bótar. Bóluefnið hefur þá sérstöðu
gagnvart öðrum bóluefnum gegn
COVID-19 að aðeins þarf að gefa
það einu sinni og er mun einfaldara
að flytja og geyma það en bóluefni
Pfiz er, Moderna og AstraZeneca.
Reiknað er með að 3.500 skammt-
ar af Jansen-bóluefninu berist til
Íslands til að byrja með. – gar
Bóluefni Jansen
berst 19. apríl
ELDGOS Sett hefur verið bann við að
leggja bifreiðum við Suðurstrandar-
veg. Þetta kemur fram í tilkynningu
frá lögreglunni á Suðurnesjum.
Þá hefur ein stefnu akstri um
Suður strandar veg til austurs frá
Grinda vík verið af létt eftir að
Vega gerðin lauk bráða birgða við-
gerðum vegarins upp með Festar-
fjalli.
Fram kemur einnig að öllum
bílum verði beint á bíla stæði sem
hafa verið út búin í grennd við upp-
hafs stað göngu leiða að eld gosinu í
Geldinga dölum. Á ætlað er að 1.000
bílar geti lagt þar. – la
Bannað að leggja
3 0 . M A R S 2 0 2 1 Þ R I Ð J U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð