Fréttablaðið - 30.03.2021, Page 6

Fréttablaðið - 30.03.2021, Page 6
 LYFSALINN GLÆSIBÆ Opið 8.30 - 18.00 Sími 517 5500 / glaesibaer@lyfsalinn.is LYFSALINN VESTURLANDSVEGI Opið 10.00 - 22.00 Sími 516 5500 / vesturlandsvegur@lyfsalinn.is LYFSALINN URÐARHVARFI Opið 8.30 - 18.00 Sími 516 5505 / urdarhvarf@lyfsalinn.is Glæsibær Vesturlandsvegur Urðarhvarf www.lyfsalinn.is APÓTEK LYFSALANS SAMFÉLAG „Hertar sóttvarnareglur eru í rauninni ástæðan fyrir því að við vorum að leita að auka hús- næði,“ segir Sigþrúður Guðmunds- dóttir, framkvæmdastýra Kvenna- athvarfsins. Á su n nud ag sk völd ósk aði Kvenna athvar f ið eftir aðstoð almennings við að finna húsnæði fyrir skjólstæðinga sína. „Það hefur verið mikil aðsókn hjá okkur undanfarið og í ljósi aðstæðna í samfélaginu er erfiðara að taka á móti f leira fólki í athvarf- ið,“ segir Sigþrúður. „Okkur er ekki vel við það að konur deili herbergi og við þurfum helst að hafa eitt autt herbergi fyrir nýjar konur en líka ef einhver skyldi þurfa að fara í sóttkví,“ bætir hún við. Er rætt var við Sigþrúði í gær var ekki komin endanleg lausn á vand- anum en hún var þó í sjónmáli. „Það er eins og við manninn mælt, alltaf þegar við biðjum um hjálp þá sprettur upp hersing svo við fengum mikið af ábendingum og tilboðum sem við erum að vinna úr. Þetta virðist allt ætla að bjarg- ast,“ segir Sigþrúður. Nú vantar íbúðir fyrir konur sem dvalið hafa í Kvennaathvarfinu en þurfa ekki lengur neyðarúrræði. „Þetta væru konurnar sem gætu dvalið í blokkinni okkar ef hún væri tilbúin,“ segir Sigþrúður og vísar til blokkar sem nú er í byggingu og er ætlað að hýsa áfangaheimili fyrir konur sem dvalið hafa í athvarfinu. Skrifað var undir verksamning og samning um fjármögnun vegna blokkarinnar sem í eru átján íbúðir í nóvember árið 2019. Safnað var fyrir verkefninu í þjóðarátaki Á allra vörum árið 2017. Áætlað er að starfsemi hefjist næsta haust. „Það er virkilega skemmtilegt að fylgjast með blokkinni spretta upp því þetta er langþráð verkefni sem við byrjuðum á fyrir mörgum árum,“ segir Sigþrúður. Áfangaheimilið verður fyrir konur sem búið hafa í Kvennaat- hvarfinu en eru tilbúnar að taka skref í átt að sjálfstæðara lífi. Þar geta konurnar leigt íbúð og átt sitt heimili samhliða því að fá stuðning frá athvarfinu. ,,Þetta er svona milli- stigsúrræði sem hefur vantað fyrir stóran hóp,“ segir Sigþrúður. Aðspurð hvort hún geri ráð fyrir aukinni aðsókn í athvarfið um páskana segir Sigþrúður svo ekki vera. „Við búumst ekki endilega við fleirum en við erum með færra starfsfólk um páskana svo við viljum vera undirbúin og að það sé pláss fyrir alla,“ segir hún. Mikil aðsókn hefur verið í Kvennaathvarfið síðasta árið en Sig- þrúður segir að þó sé aðsókn þeirra sem dvelja í athvarfinu ekki meiri nú en undanfarin ár. „Það hefur verið mikil aukning í viðtöl hjá okkur,“ segir Sigþrúður. ,,Það er aukning í konum sem leita sér aðstoðar í formi viðtala og fá þannig ráðgjöf og stuðning.“ Sigþrúður segir mikilvægt að með hertum sóttvarnareglum og aukinni einangrun fjölskyldna sé fólk meðvitað um ólíkar aðstæður fólks og hafi augu og eyru opin. birnadrofn@frettabladid.is Allir reiðubúnir að styðja við starfsemi Kvennaathvarfsins Kvennaathvarfið óskaði eftir tillögum og aðstoð við að finna húsnæði fyrir skjólstæðinga í ljósi hertra sóttvarnareglna. Viðbrögðin létu ekki á sér standa. Framkvæmdastýran bíður spennt eftir átján íbúða blokk sem áætlað er að verði tilbúin í sumar og mun hún hýsa áfangaheimili á vegum athvarfsins. Með meiri einangrun fjölskyldna þarf að hafa augu og eyru opin fyrir ólíkum aðstæðum fólks. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Við viljum vera undirbúin og að það sé pláss fyrir alla. Sigþrúður Guð­ mundsdóttir, framkvæmda­ stýra Kvenna­ athvarfsins MENNTUN Algengast er að nemend- ur í almennu bóknámi séu skráðir á náttúrufræðibrautir en þar á eftir koma félagsfræðibrautir og opnar brautir til stúdentsprófs. Þetta kemur fram tölum sem Mennta- málastofnun hefur tekið saman um nemendur í íslenskum framhalds- skólum á vorönn. Yf ir þrjú þúsund nemendur eru skráðir á náttúrufræðibraut. Húsasmíði og rafvirkjun eru fjöl- mennastar í starfsnámsgreinum en sjúkraliðanám kemur þar fast á eftir. Kynjaskipting í starfs- námsgreinum er mjög áberandi. Greinarnar eru jafnan annað hvort áberandi karlagreinar, eins og húsasmíði og rafvirkjun, eða áberandi kvennagreinar, svo sem sjúkraliðanám, nudd og snyrti- fræði. Þegar niðurstöður um nemenda- samsetningu eru teknar saman sést að nær þriðjungur nemenda er skráður í starfsnám og 57 prósent í almennt bóknám. Aðsókn í starfsnám eykst veru- lega með hækkandi aldri. Tölurnar miðast við gögn sem sótt voru í Innu, skólakerfi fram- haldsskólanna, þann 1. mars síð- astliðinn. Umsóknir í hefðbundna íslenska framhaldsskóla voru 2.915 talsins. Þar er bæði um að ræða nemendur sem koma nýir inn í framhalds- skóla og þá sem eru að skipta um skóla. Tekið er fram að listinn nær ekki yfir allar umsóknir í íslenska fram- haldsskóla. – bb Langflestir í bóknámi fara á náttúrufræðibraut Bóknám er sem fyrr vinsælast. Amma Hófí fékk um 16 milljónir endurgreiddar vegna myndarinnar. ME NNING Raunveruleikaþáttur MTV, The Challenge, fékk 311 millj- ónir króna endurgreiðslu úr Kvik- myndamiðstöð Íslands en listinn birtist í gær. Styrkurinn var sá lang- hæsti af þeim rúmlega 18 verkefnum sem hafa fengið endurgreiðslu. Endurgreiðslan hljóðar upp á 25 prósent af framleiðslukostnaði og má því reikna með að framleiðslu- kostnaður hafi numið yfir milljarði króna en Pegasus framleiddi. Þættir og myndir sem sýnd voru á RÚV eru fyrirferðarmikil á listanum. Þannig fékk Kappsmál 18 milljónir, Áramótaskaupið fékk 13 milljónir, Eldhugarnir fengu þrjár milljónir, Með okkar augum sömuleiðis og Lesblinda fékk sjö milljónir. – bb The Challenge fékk langmest endurgreitt COVID-19 „Ég er ein þeirra sem hafa sagt: Þetta gengur of hægt fyrir minn smekk, en eigi að síður erum við að ná þeirri áætlun sem við lögðum upp með, það er að segja, nú erum við að nálgast 45 þúsund manns í lok mars eins og við sögðum,“ segir Katrín Jak- obsdóttir forsætisráðherra. „Ég hef sagt að ég telji að meirihluti þjóðar- innar verði bólusettur fyrir mitt ár, ég held að það muni standast, út frá þeim áætlunum sem við höfum.“ Þetta kom fram í Fréttavaktinni á Hringbraut í gærkvöld. „Auðvitað er töluverður aðstöðu- munur milli þjóða. Bretar nýta bara fyrsta skammtinn og eru í þeirri aðstöðu að AstraZeneca er fyrirtæki með tengsl við Bretland. En þegar við skoðum fjölda fullbólusettra þá eru Ísland og Danmörk komin lengst í fullri bólusetningu.“ – lb Bólusetning gengur of hægt segir Katrín Katrín Jakobs- dóttir, forsætis- ráðherra. 3 0 . M A R S 2 0 2 1 Þ R I Ð J U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.