Fréttablaðið - 30.03.2021, Blaðsíða 8
Þú finnur allt
á einum stað
í öllum okkar
verslunum!
Mmm ...
bröns!
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
COVID -19 Engin dauðsföll voru
skráð af völdum COVID-19 í Lund-
únum fyrradag en það var í fyrsta
sinn í sex mánuði sem dauðsföll af
völdum sjúkdómsins voru engin í
borginni. BBC greinir frá.
Þegar kórónaveirufaraldurinn
stóð sem hæst í Lundúnum í apríl
í fyrra létust að meðaltali 230 ein-
staklingar af völdum COVID-19 í
borginni á hverjum degi.
Tólf prósent af öllum dauðs-
föllum vegna COVID-19 í Bretlandi
hafa verið í Lundúnum, og hefur
staða faraldursins hvergi verið verri
í landinu en þar. Nýjum tilfellum í
Lundúnum hefur þó fækkað tölu-
vert síðustu vikurnar og er nú langt
undir meðaltali miðað við það sem
áður var. Alls hafa yfir 4,3 milljónir
manna smitast af veirunni í Bret-
landi öllu og rúmlega 126 þúsund
manns hafa látið lífið vegna hennar
í landinu.
Bólusetningar í Bretlandi ganga
afar vel sem er ástæða þess að far-
aldurinn er á hraðri niðurleið í land-
inu. Í fyrradag náðist sá áfangi að 30
milljónir Breta hafa nú að minnsta
kosti fengið fyrri skammtinn af
bóluefni. Þetta jafngildir 57 pró-
sentum allra fullorðinna í landinu.
Í heiminum öllum hafa verið
gefnir meira en 546 milljónir
skammta af bóluefni í 141 einu
landi. Að meðaltali eru gefnir um
það bil 14,5 milljónir skammta á
hverjum degi.
Í Bandaríkjunum eru nú þeir ein-
staklingar sem hafa fengið skammt
af bóluefni f leiri en þeir sem smit-
ast hafa af veirunni þar í landi. 143
milljónir bóluefnaskammta hafa
verið gefnar í Bandaríkjunum en
þar hefur greinst tæplega 31 milljón
tilfella af COVID-19.
Í Bandaríkjunum hafa yfir 562
þúsund manns látið lífið og í gær
voru tæpar sjö milljónir manna þar
í landi með virkt COVID-19 smit.
Flest greind tilfelli á heimsvísu
eru í Bandaríkjunum, því næst í
Brasilíu, rúmlega 12,5 milljónir
talsins, og svo í Indlandi, um tólf
milljónir tilfella. Mikill munur er á
fjölda tilfella í Indlandi og í Frakk-
landi sem er það land sem því næst
hefur greint hvað mestan fjölda til-
fella en þar eru þau rúm 4,5 millj-
ónir talsins.
Á Norðurlöndunum hafa lang-
flest tilfelli verið staðfest í Svíþjóð,
yfir 780 þúsund talsins, og því næst
í Danmörku, 228 þúsund. Í Noregi
er fjöldi tilfella kominn yfir 93 þús-
und og í Finnlandi eru þau rúmlega
76 þúsund.
Enn eru nokkur lönd í heiminum
þar sem einungis nokkur tilfelli
veirunnar hafa greinst. Á Mars-
hall-eyjum hafa greinst fjögur til-
felli COVID-19, á bæði Samóa og á
Vanúatú hafa greinst þrjú tilfelli og
í Míkrónesíu hefur einungis greinst
eitt tilfelli.
Alls hafa greinst tæplega 128
milljónir tilfella af COVID-19 í
heiminum en fyrsta tilfellið greind-
ist í nóvember árið 2019. Síðan þá
hafa verið skráð nærri 2,8 milljónir
dauðsfalla af völdum sjúkdómsins.
birnadrofn@frettabladid.is
urdur@frettabladid.is
Faraldurinn virðist á
undanhaldi í Bretlandi
Tímamót urðu í Lundúnum á dögunum þegar ekkert dauðsfall varð af
völdum COVID-19 í borginni í fyrsta skipti í sex mánuði. Í heiminum öllum
hafa verið gefnir meira en 546 milljónir skammtar af bóluefni í 141 landi.
14,5
milljónir skammtar af
bóluefni eru gefnir daglega í
heiminum að meðaltali.
MJANMAR Mótmælendur héldu
aftur út á götur Mjanmar í gær eftir
blóðug átök við lögregluna um
helgina.
Að minnsta kosti 114 létust í
mótmælunum á laugardaginn,
þar á meðal voru nokkur börn.
Samkvæmt tölum frá hjálparsam-
tökum fyrir pólitíska fanga hafa að
minnsta kosti 462 látist frá valda-
töku hersins í byrjun febrúar.
Eftir átökin um helgina skrifuðu
forsvarsmenn stærstu mótmæl-
endahreyfingarinnar opið bréf til
minnihlutahópa í landinu þar sem
þeir voru hvattir til að standa gegn
kúgun herstjórnarinnar.
Þá hafa þúsundir flúið land vegna
of beldisins, þar á meðal íbúar við
landamærin sem flúðu til Taílands
eftir loftárásir hersins. Forsætisráð-
herra Taílands lýsti áhyggjum yfir
vandanum og vonaðist til þess að
hann yrði leystur innan landamæra
Mjanmar. Taíland væri ekki í stakk
búið til að taka á móti svo mörgum
flóttamönnum.
Margir af leiðtogum heimsins
hafa fordæmt ástandið í Mjanmar.
„Ástandið er skammarlegt, fjöldi
fólks hefur verið drepinn í algjöru
tilgangsleysi,“ sagði Joe Biden
Bandaríkjaforseti.
Sameinuðu þjóðirnar hafa hótað
herstjórninni refsiaðgerðum á borð
við viðskiptabann ef ástandinu
linni ekki en herstjórnin hefur sagt
Mjanmar vant slíkum aðgerðum og
að landið myndi aðlaga sig þeim.
– atv
Þúsundir flýja blóðbaðið í Mjanmar
Á fimmta hundrað hafa látist síðan
mótmælin hófust í byrjun febrúar.
Fjöldi fólks hefur
verið drepinn í
algjöru tilgangsleysi.
Joe Biden Bandaríkjaforseti
Heilbrigðisstarfsmenn tylltu sér í gær niður á minningarvegg gegnt Westminster, þinghúsinu í Lundúnum, til að
snæða hádegisverð. Hvert hjarta táknar líf sem tapast hefur í baráttunni við veiruna í Bretlandi. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
EGYP TAL AND Gámaf lutninga-
skipið Ever Given, sem sat fast í
Súesskurðinum í viku, losnaði loks
í gær. „Þetta tókst!“ segir í tilkynn-
ingu björgunarfyrirtækisins sem
unnið hafði sleitulaust að því að
losa skipið frá því það strandaði.
Í framhaldinu fer skoðun fram á
skipinu og í kjölfar hennar verður
ákveðið hvað verður um farm
skipsins.
Ever Given er 400 metrar að
lengd, 59 metrar að breidd og rúm-
lega 220 þúsund tonn. Það sat fast
í skurðinum frá því á þriðjudag í
síðustu viku og lokaði fyrir alla
umferð.
Á fjórða hundrað skipa hafa
beðið eftir að komast leiðar sinnar
um skurðinn og hafa tafirnar reynst
útgerðum þeirra verulega kostn-
aðarsamar. – fbl
Skurðurinn opinn á ný
Í gær tókst loks að losa skipið og
opna skurðinn fyrir umferð á ný.
COVID -19 Farþegaþotu með 189
hollenskum pakkaferðalöngum
verður flogið til eyjarinnar Rhodos
á Grikklandi 12. apríl næstkomandi
í sérstöku tilraunaverkefni til að
endurvekja ferðamannaiðnaðinn.
Norska ríkissjónvarpið vitnar
til hollensku fréttastofunnar RTL
Nieuws sem segir alls 25 þúsund
manns hafa skráð sig í von um
að fá pláss um borð í f lugvélinni.
Markmiðið með verkefninu sé að
kanna hvort mögulegt sé að opna
á umfangsmeiri ferðamennsku í
sumar.
Sá galli er á gjöf Njarðar að Hol-
lendingar dvelja allir á sama gisti-
staðnum, Mitsis Grand Beach
hótelinu, og mega ekki yfirgefa
hótelsvæðið þá átta daga sem
ferðin varir. Að sjálfsögðu fara allir
í skimun fyrir og eftir ferðina auk
þess sem tíu daga sóttkví tekur við
er heim til Hollands verður komið.
Ferðin kostar 60 þúsund með öllu
inniföldu. – gar
Tilraunaferð með túrista
Mitsis Grand Beach-hótelið.
3 0 . M A R S 2 0 2 1 Þ R I Ð J U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð