Fréttablaðið - 30.03.2021, Qupperneq 10
Frá degi til dags
Halldór
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is
Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is
LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Björk
Eiðsdóttir
bjork@frettabladid.is
Gild rök
verða að
fylgja kröfu
um lokun
leikskóla.
Þau hafa
ekki komið
fram.
Aftur á móti
virðist
skorta á
upplýsinga-
gjöf til
langþreytts
starfsfólks-
ins.
Þetta er
þjóðþrifamál
sem þarf að
komast til
framkvæmda
sem fyrst.
Nú þegar við búum í fjórða sinn við hertar samkomutakmarkanir er ekki laust við að aðeins hafi dregið af mannskapnum sem fagnað hafði endurheimtu frelsinu.Rétt eins og í fyrri skipti sýnist sitt
hverjum um aðgerðir stjórnvalda og útfærslur þeirra.
Er eðlilegt að þúsundir hópist saman við spúandi
eldgíg en sé bannað að nýta sér skíðasvæði landsins?
Hvað sem fólki finnst er víst að þau sem sitja uppi með
ákvarðanirnar eru ekki öfundsverð af hlutskiptinu.
Viðbrögð leikskólakennara við takmörkunum sem
settar voru á í liðinni viku hafa aftur á móti verið
svolítið á skjön við restina. Á meðan helst er kvartað
yfir hertum reglum og lokunum finnst þeim ekki nóg
gert og hafa forsvarsmenn leikskólakennara og -stjóra
birst í fjölmiðlum og kvartað yfir því að vinnustaðir
þeirra skuli enn vera opnir.
Sigurður Sigurjónsson, formaður Félags stjórnenda
leikskóla, sagði frá því í Silfrinu á RÚV um helgina
að starfsfólk leikskóla væri bæði þreytt og hrætt við
veiruna. Með fullri virðingu fyrir tilfinningum þeirra
sem annast yngstu Íslendingana, held ég að það sama
megi segja um stóran hluta þjóðarinnar.
Sigurður sagði að „selja þyrfti“ leikskólakennurum
hugmyndina um að halda opnu. Um leið sagðist hann
sjálfur hafa fundað með sóttvarnalækni sem hefði
útskýrt ákvörðunina og fyrir henni haft góð og gild
rök. Þórólfur Guðnason hefur ítrekað svarað ákalli
leikskólastarfsfólks með því að smithætta sé ekki
aukin hjá börnum á leikskólaaldri. Enn sé notast við
sömu nálgun og gert hafi verið allan faraldurinn og
ekki hafi komið fram vandræði í sambandi við hana.
Hvers vegna þykir starfsfólki leikskóla því áhættan
of mikil núna? Getur ekki verið að yfirmenn þeirra
hefðu átt að halda þeim betur upplýstum um stað-
reyndir mála – og „selja þeim“ betur hugmyndina um
að óhætt væri að mæta til vinnu rétt eins og gert hafi
verið allan faraldurinn?
Reynt hefur verið að gæta meðalhófsreglu í sótt-
varnaaðgerðum og lokun leikskóla myndi þýða veru-
lega mikla röskun á starfsemi í landinu. Heilbrigðis-
kerfið væri ein þeirra stofnana sem myndu finna fyrir
högginu.
Gild rök verða að fylgja kröfu um lokun leikskóla.
Þau hafa ekki komið fram. Aftur á móti virðist skorta
á upplýsingagjöf til langþreytts starfsfólksins. Á tali
forsvarsmanna þeirra virðist óttinn að miklu leyti
snúast um hið nýja breska af brigði, en samkvæmt
upplýsingum frá Norðurlöndunum er ekki að merkja
aukna smithættu hjá börnum undir sex ára aldri. Eins
væri ekki úr vegi að koma leikskólastarfsfólki framar
á forgangslista í bólusetningum. Alla vega að þau væru
fremst í áttunda hópnum sem þau nú eru sett í ásamt
fjölmörgum fleirum.
Að þessu hefðu stjórnendur leikskóla átt að vinna
í stað þess að ala enn frekar á ótta starfsfólks síns og
fara fram á að það sé sent heim fram yfir páska.
Við þurfum síst enn frekari lömun á atvinnustarf-
semi í landinu.
Óseld hugmynd
Kolbeinn Ótt-
arsson Proppé
þingmaður
Vinstri grænna
Tækifæri til að efla innlenda matvælafram-leiðslu eru mýmörg. Okkur stjórnmálamönn-um er tamt að halda því á lofti; þetta er nokkuð
öruggur frasi ef við viljum slá um okkur. Hugmyndir
og frasar eru ágæt til síns brúks, en ef hugur fylgir
máli er best að grípa til aðgerða. Með það að leiðar-
ljósi hef ég lagt fram þingmál sem skilar sér í stofnun
matvælaframleiðslu- og menntunarklasa á Árborgar-
svæðinu sem ég hvet fólk til að kynna sér.
Heimsfaraldur og loftslagsvá hafa sýnt fram á
nauðsyn þess að hvert samfélag sé sem sjálf bærast.
Því skiptir máli að nýta sem best þau tækifæri sem
hér bjóðast með sjálf bærni að leiðarljósi. Í því sam-
hengi er mikilvægt að stuðla að og styrkja starfsemi
í geiranum og efla menntun sem næst þeim svæðum
þar sem framleiðslan fer fram.
Suðurland er blómlegt matvælaframleiðsluhérað.
Þar fer stór hluti grænmetisframleiðslu lands-
ins fram, enda aðstæður sérstaklega góðar hvað
jarðhita varðar og stutt er á helsta markað. Korn-
rækt er mikil og tækifæri til að efla hana mýmörg.
Garðyrkjuskólinn að Reykjum hefur verið vagga
íslenskrar garðyrkju áratugum saman og einboðið
er að nýta aðstöðu og búnað að Reykjum í tengslum
við matvælaframleiðsluklasa. Í Gunnarsholti eru
stundaðar umfangsmiklar rannsóknir á ýmiss
konar ræktun sem nauðsynlegt er að verði hluti af
samstarfi um klasann. Mjólkurframleiðsla er öflug á
svæðinu enda landkostir miklir hvað hana varðar.
Efla þarf það góða starf sem þegar er unnið víða í
geiranum. Svo hægt sé að efla kornrækt til mann-
eldis, sem er ákaflega mikilvægt til þess að styrkja
fæðuöryggi landsins, þarf að stunda yrkjaprófanir
með reglubundnum hætti. Sú starfsemi getur ekki
sótt í nýsköpunarsjóði þar sem nýnæmi yrkja-
prófana er takmarkað og ætti að teljast til grunn-
rannsókna sem væru fjármagnaðar sem slíkar af
fjárlögum.
Klasi um matvælaframleiðslu og menntun yrði
samstarfsverkefni fjölmargra. Þetta er þjóðþrifamál
sem þarf að komast til framkvæmda sem fyrst.
Matvælaframleiðsluklasi
Vinir
fá sérkjör
Skráning á icewear.is
Þín útivist - þín ánægja
FUNI Dúnúlpa
Kr. 33.990.-
GRÍMSEY Hanskar
Kr. 2.990.-
SALEWA Ultra Train 18 BP
Kr. 12.990.-
REYNISFJARA
Göngustafir
Kr. 9.990.-
LYNG Ullarsokkar
Kr. 1.590.-
ELÍ Flíspeysa
Kr. 11.990.-
KLETTUR Húfa
Kr. 2.490.-
HVÍTANES
Merínó lambhúshetta
Kr. 4.990.-
SALKA
Göngubuxur
Kr. 9.990.-
SALEWA
WS MTN Trainer Shoes
Kr. 28.990.-
ASOLO
Angle GV
Kr. 25.990.-
Orðabókarskilgreining
Siðanefnd RÚV hefur verið
kjöldregin fram og til baka á
samfélagsmiðlum eftir að hafa
úrskurðað Helga Seljan brot-
legan við siðareglur starfsmanna
meðal annars með því að nota
ávarpið „gæskur“ í svari til for-
stjóra Samherja. Siðanefndin
virðist í þessu tilfelli ekki hafa
verið neitt sérstaklega ballanser-
uð þegar hún kvað upp sinn dóm
og hefði til að byrja með getað
flett „gæskur“ upp í orðabók og
komist að því að þetta „ávarp til
karls“ er talið ákaflega jákvætt
og á sér meðal annars samsvörun
í orðum eins og „vinur“ og „góði.“
Gosræflar
Gosgleðin í Geldingadölum er á
köflum svo taumlaus að sumum
og þá helst yfirvaldinu finnst
nóg um þannig að fólk hefur
verið beðið um að vera hvorki að
staupa sig né mæta í stuttbuxum.
Lögreglan hefur ekki enn
gengið svo langt að skipta sér af
líkamlegu atgervi gosóðra en
það segist hins vegar harðlínu-
hægrimaðurinn Viðar Guðjohn-
sen hafa gert um helgina. Hann
upplýsti hróðugur í símatíma
Útvarps Sögu í gærmorgun að
hann hefði náð að „boddísjeima“
nokkra unga menn sem fengu
það óþvegið fyrir að sligast
undan sjálfum sér þegar hann
fann þá að niðurlotum komna
við smitkaðalinn sem liggur að
eldstöðinni.
toti@frettabladid.is
3 0 . M A R S 2 0 2 1 Þ R I Ð J U D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN