Fréttablaðið - 30.03.2021, Side 14

Fréttablaðið - 30.03.2021, Side 14
Fullkomið í veisluna 3 0 . M A R S 2 0 2 1 Þ R I Ð J U D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT FÓTBOLTI Skjótt skipast veður í lofti og vika er langur tími í pólitík eru orðatiltæki sem notuð eru þegar miklar vendingar verða og þau eiga svo sannarlega við um málefni íslenska karlalandsliðsins í knatt- spyrnu þessa stundina. Strákarnir okkar liggja undir mikilli gagnrýni eftir tap liðsins gegn Armeníu í Jerevan á sunnu- dagskvöldið og umræðan eftir leik- inn beindist að mismunandi túlkun forsvarsmanna KSÍ og Vålerenga á því hvort Viðar Örn Kjartansson hefði komið til greina í landsliðs- gluggann eða ekki. Bent var á það fyrir leikina gegn Þýskalandi og Armeníu að innan leikmannahópsins væru ekki marg- ir leikmenn á skotskónum þessa dagana með félagsliðum sínum eða með gott markahlutfall með lands- liðinu í gegnum tíðina. Þjálfararnir Arnar Þór Viðarsson og Eiður Smári Guðjohnsen töldu þessar áhyggjur óþarfar. Mörkin gætu komið hvaðan sem er úr hópn- um og hlutverk framherja væri ekki eingöngu að skora mörk. Eftir tvo markalausa leiki og þá sérstaklega vonbrigðin yfir að hafa ekki náð að brjóta varnarmúr armenska liðsins á bak aftur fengu þessar áhyggjuraddir byr undir báða vængi. „Mér finnst núna vera að koma í ljós að það eru kostir og gallar við það að ráða reynsluminni þjálfara. Ég var á því að það væri rétti kostur- inn að ráða Arnar Þór Viðarsson og Eið Smára Guðjohnsen með Lars Lagerbäck þegar það var gert og ég er enn á þeirri skoðun að þeir séu rétta teymið til þess að stýra lið- inu,“ segir Arnar Bergmann Gunn- laugsson, þjálfari karlaliðs Víkings í knattspyrnu, um stöðu mála. „Það þurfa hins vegar allir að læra af þessum landsliðsglugga. Fót- boltaheimurinn er orðinn breyttur og þar á meðal er fjölmiðlaheimur- inn sem er orðinn hraðari og skoð- anir eiga greiðari leið að þeim sem þær vilja heyra. Það hefði mátt tækla ýmsa hluti betur síðustu dagana þó að það þurfi ekki að elta allar slúðursögur sem koma upp á yfirborðið. Nú er bara að læra af þessu og halda áfram. Mér finnst að það hefði mátt styðja Arnar Þór betur svo hann gæti einbeitt sér að því að þjálfa liðið,“ segir Arnar enn fremur. „Hvað knattspyrnuna varðar þá finnst mér við hafa lært af þessum leikjum að 4-1-4-1 leikkerfið hentar Aroni Einar Gunnarssyni ekki vel og að mínu mati væri betra að spila með tvo djúpa miðjumenn. Þá finnst mér vera of langt á milli lína bæði þegar við verjumst og sækjum hratt í kjölfar þess að við vinnum boltann á góðum stöðum. Þetta gerir liðið berskjaldað fyrir skyndisóknum og uppspilið verður erfiðara. Svo finnst mér pressan ekki nægilega skilvirk og vel skipu- lögð,“ segir þjálfarinn. Nokkur forföll hafa orðið í síð- ustu tveimur leikjum en Albert Guðmundsson verður í leikbanni þegar íslenska liðið mætir Liecht- enstein annað kvöld. Rúnar Már Sigurjónsson fór meiddur af velli í tapinu gegn Þjóðverjum, Ragnar Sigurðsson meiddist í upphitun fyrir leikinn gegn Armeníu og Jóhann Berg Guðmundsson og Kol- beinn Sigþórsson eru tæpir vegna meiðsla. „Nú reynir á aðra leikmenn að grípa tækifærið og spila vel á móti Liechtenstein. Ég hef trú á því að Willum Þór Willumsson geti sem dæmi skilað hlutverkinu sem miðjumaður með Aroni Einari. Svo finnst mér alveg mega leika sér með leikkerfið líka og skipta um leikkerfi ef að við höfum ekki leik- menn sem henta í það leikkerfi sem hugsunin var að spila fyrir fram. Spila með falska níu eða brjóta upp mynstrið með einhverjum hætti. Það er bara ein leið til þess að svara fyrir þessa leiðindaumræðu. Það er inni á vellinum, með sann- færandi spilamennsku og hagstæð- um úrslitum í leiknum á morgun,“ segir Skagamaðurinn. hjorvaro@frettabladid.is Bara ein leið til þess að svara fyrir þessa leiðindaumræðu Byrjunin á undankeppni HM 2022 hefur ekki verið eins og best verður á kosin hjá Íslandi. Vitað var að verkefnið yrði strembið þegar íslenska liðið myndi mæta Þjóðverjum en tapið gegn Armeníu svíður. Arnar Gunnlaugsson segir margt mega læra af síðustu dögum en nú verði að svara inni á vellinum. Jón Daði Böðvarsson komst næst því að brjóta ísinn fyrir Ísland í Jerevan en skot hans var varið. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Það hefði mátt tækla ýmsa hluti betur síðustu dagana þó að það þurfi ekki að elta allar slúðursögur sem koma upp á yfirborðið. Arnar Bergmann Gunnlaugsson FÓTBOLTI Franska stórveldið PSG varð í gær fyrsta franska félagið til að styðja við bakið á átaki Samein- uðu þjóðanna um að íþróttir verði umhverfisvænni í von um að hægja á hnattrænni hlýnun. Áður höfðu félög á borð við Arsenal og Juvent- us gengið til liðs við málstaðinn. Umhverfissamtökin Greenpeace gagnrýndu PSG þegar félagið not- aði einkaþotu fyrir 180 kílómetra ferðalag fyrr á þessu ári fyrir leik. Félagið brást við með því að nota rútu til að ferja leikmennina aftur til Parísar. PSG skuldbindur sig til þess að hætta að nota einnota plast og tryggja að hægt sé að f lokka rusl á leikvöngum félagsins. – kpt PSG berst gegn hlýnun jarðar FÓTB O LTI For maður samt aka félagsliða í Evrópu, Charlie Mars- hall, segir að það sé áhugi innan Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, á að setja á laggirnar HM félagsliða í kvennaflokki. Samtökin kynntu nýja stefnu í gær um fram- tíðaráform í kvennaknattspyrnu þar sem meðal annars er rædd hug- myndin um keppni á borð við Evr- ópudeildina í kvennaflokki. Búið er að boða breytingar á Meistaradeild Evrópu fyrir næsta tímabil en samtökin vilja skoða möguleikann á að bæta við ann- arri Evrópukeppni líkt og Evrópu- deildin er í karlaflokki. þegar Marshall var spurður út í möguleikann á að það yrði HM félagsliða, líkt og þekkist í karla- f lokki, staðfesti hann að það væri áhugi fyrir því. „FIFA hefur lýst yfir verulegum áhuga á að sú hugmynd verði að veruleika.“ – kpt Áhugi fyrir HM félagsliða í kvennaflokki Sara gæti leikið í fyrstu útgáfu HM félagsliða í kvennaflokki með Lyon.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.