Fréttablaðið - 30.03.2021, Page 16

Fréttablaðið - 30.03.2021, Page 16
fánaberi fyrir Ísland á Ólympíu- leikunum, dæmdur fyrir samneyti við aðra karlmenn. Það er eina lög- regluskýrslan sem hefur fundist. Íslensku karlarnir vildu því örugglega ekki láta góma sig, en lögin sem Guðmundur var dæmdur fyrir að brjóta voru samt fallin úr gildi,“ segir Særún. „En þessu fylgdi skömm. Þórir sagði að hann vissi að hann væri að gera eitthvað rangt, en hann hefði samt gert það og hann vissi ekki hvað var rangt við þetta. Hann var líka í raun hálfgerður krakki, bara 15-16 ára, þegar hann var að hitta erlenda hermenn.“ Datt ofan í konfektkassa „Íslensku strákarnir hittu erlenda hermenn á bar niðri á höfn og á djamminu, til dæmis á Hótel Borg og dansleikjum,“ segir Særún. „Það er í raun merkilegt hvernig þeir römbuðu hver á annan, en viðmæl- endurnir mínir sögðust vera með sérstakan „gaydar“ sem væri ekki hægt að útskýra. En það var enginn að pæla í þessu. Þórir fór með vinkonum sínum á djammið og sumar þeirra vissu af þessu, en engin sagði neitt,“ segir Særún. „En leyndin var mikil. Þórir var til dæmis um tíma alltaf sóttur af herlækni á hverju kvöldi og svo keyrður heim og leystur út með gjöfum, sem hann þorði ekki annað en að fela fyrir mömmu sinni í gömlum skúr fyrir utan heimilið. Þarna var fullorðinn læknir í kynferðislegu sambandi við 15-16 ára gamlan strák og í dag væri þetta ekki kallað annað en barnaníð og misnotkun og mér fannst átakan- legt að heyra, en hann sagðist sjálfur hafa dottið ofan í konfekt- kassa,“ segir Særún. „Oft voru þetta ungir strákar, en hann var samt yngstur af þeim sem ég frétti af.“ Karnivalárin Særún hefur ekki tölu á þeim körlum sem voru í samböndum við erlenda hermenn en samkvæmt heimildarmönnum hennar voru þeir frekar margir. „En mjög fáir þeirra komu svo út úr skápnum og lifðu sem samkynhneigðir menn út ævina,“ segir hún. „Margir kvæntust og eignuðust börn og svo var aldrei minnst einu orði á þetta framar. Þórir og f leiri sögðu að á ástands-árunum hefði ríkt svona karnival-stemning, allt mátti og fólk sleppti alveg fram af sér beislinu. Þetta er áhugavert og eitthvað sem á eftir að skoða, bæði hvernig þessi stemning var og af hverju það mátti allt í einu allt,“ segir Særún. „Kannski var það vegna þess að allt var svo nýtt að fólk vissi varla hvaða reglur giltu lengur. Tónlist, matur, föt og allt annað var að breytast á ógnar- hraða og fólk þurfti að finna sig í nýjum heimi. Fólk var liggur við að fara beint úr sauðskinns- skónum í brilljantínið.“ Kanar voru dannaðir Særún segir að enginn viti nákvæmlega hvernig þetta byrjaði allt saman en að það hafi byrjað snemma. „Samkvæmt sögunum voru einhverjum mættir niður á höfn strax á fyrsta degi og þetta byrjaði mjög snemma eftir að Bretarnir komu,“ segir hún. „Þórir sagði svo það sama um muninn á Bretum og Bandaríkjamönnum og stelpurnar hafa sagt, að Banda- ríkjamennirnir voru meira „elegant“. Hjá Bretunum hefði hann aldrei fengið þá þjónustu að vera sóttur og leystur út með gjöfum. Bandaríkjamennirnir voru flottari, kunnu sig betur og áttu meiri peninga. Ég heyrði sögur af samböndum sem entust, en gat ekki sannreynt þær. Það voru sögur af því að ein- hverjir þrír eða fjórir hefðu farið út á eftir hermönnunum, en það voru kannski bara sögusagnir. Það eru líka engar sögur af einhverri mikilli ástarsorg,“ segir Særún. „Þórir átti samt kærasta sem var 23 ára, en það var fimm til sex ára aldursmunur á þeim. Þeir fóru í ferðalag og Þórir sýndi honum landið og kynnti hann fyrir ömmu sinni og afa norður í landi. Þetta var rómantísk ferð en engum datt í hug að þetta væri kærastinn hans og þeir ættu í eldheitu ástarsam- bandi, allir héldu að þeir væru bara vinir.“ Vísir að nýju samfélagi „Þetta var svakalegt tabú og er það enn. Sumt af því fólki sem Þórir benti á og ég hafði samband við hálfpartinn hreytti í mig og skellti á þegar ég hringdi. Þetta var bara „vitleysa“ sem var aldrei talað um,“ segir Særún. „En eftir að herinn fór komu þessar sögur upp á yfirborðið og þá blossa upp fyrir- sagnir á forsíðum blaðanna eins og „Kynvillufaraldur í Reykjavík“. Mánudagsblaðið og fleiri blöð voru mjög aðgangshörð og réðust á samkynhneigða og listamenn á sama tíma. Þeir áttu allir að sitja saman á Laugavegi 11 og það voru skrifaðar blaðagreinar um að fólk ætti að halda börnum frá Þjóð- leikhúsinu því þar væru eintómir „kynvillingar“. Í þessari fjölmiðlaumfjöllun var þessi „kynvilla“ líka alltaf tengd við erlend áhrif og á sama tíma kemur upp ofboðslega sterk þjóð- erniskennd vegna óttans við þær hröðu breytingar sem voru að eiga sér stað þegar nútíminn ruddist inn í líf fólks,“ segir Særún. „En um leið var þetta samfélag samkyn- hneigðra að verða til. Þeir fóru að vita hver af öðrum og hittast á Laugavegi 11. Það var byrjunin á því að samfélag samkynhneigðra myndaðist á Íslandi.“ Þeir sem hafa áhuga á að fræðast nánar um ástandið hjá samkyn­ hneigðum körlum geta haft sam­ band við Særúnu í gegnum lisa­ birgisdottir@gmail.com og fengið fyrirlestur frá henni um efnið. Særún Lísa Birgisdóttir hefur rannsakað sögu samkynhneigðra karla sem voru í nánum sam- böndum við erlenda hermenn á hernámsárunum. Á þessum tíma höfðu margir Íslendingar miklar áhyggjur af menningaráhrifunum sem fylgdu því að ungar konur væru að hitta erlenda hermenn og töldu þetta vandamál sem var kallað „ástandið“, en enginn vissi að karlar væru að gera það sama. Særún rannsakaði þetta fyrirbrigði og hefur flutt fyrirlestra um við- fangsefnið sem heita „Hommarnir á höfninni“, en hún er einnig að vinna bók um efnið. „Ég er þjóðfræðingur að mennt og útskrifaðist árið 2012,“ segir Særún. „Ég var að skoða menn- ingu samkynhneigðra á Íslandi í skólaverkefni og þá sagði einn við- mælandi við mig: „Þetta var eins og strákarnir í ástandinu.“ Mér fannst þetta merkilegt og kennari minn sagði að þetta væri hægt að skoða nánar. Niðurstaðan varð sú að þetta varð BA-verkefnið mitt, sem heitir „Hættiði þessu fikti strákar!“ og er aðgengilegt á Skemmunni. Ég fór á stúfana og komst í tæri við Þóri Björnsson, sem er látinn núna. Hann var níræður og hafði aldrei verið í felum með samkyn- hneigð sína og hann var tilbúinn til að segja mér frá þessu tímabili,“ segir Særún. „Hjá honum fékk ég svo nöfn fleiri einstaklinga sem ég hafði samband við og þannig rúllaði þetta. Ég hélt svo áfram með þetta í meistaranáminu en þar fór ég að skoða menningu sam- kynhneigðra út frá þjóðsögum og Íslendingasögum og fór að skoða þöggunina í gegnum aldirnar.“ Átti ekki að hafa gerst „Það er rosalega lítið af heimildum til um samkynhneigð sambönd við dáta hér á landi. Það ríkti ofboðsleg þöggun og þetta átti ekki að hafa verið til eða gerst. Fólk vissi ekki af þessu og „samkyn- hneigð var ekki til á Íslandi“,“ segir Særún. „Þeir strákar sem fundu sinn farveg í hernáminu vissu ekki einu sinni sjálfir að þeir væru svona. Þeim leið illa og þeir vissu ekki hvar þeir áttu að staðsetja sig en fengu loks frelsi og uppgötvuðu að það eru til aðrir eins og þeir. Eftir þetta fóru samkynhneigðir menn að finna hver annan hér á landi og fatta að þeir voru ekki einir í heiminum svo fyrsti vísirinn að samfélagi samkynhneigðra kom fram. Það komst ekki upp ef þú varst með hermanni, vegna þess að ef það kæmist upp um þá yrðu þeir reknir úr hernum með skömm, svo það var rosaleg leynd yfir öllu,“ segir Særún. „Það hefur einn maður verið dæmdur á Íslandi fyrir samkynhneigð og það var árið 1924, en þá var Guðmundur Hofdal, glímukappi sem var Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@ frettabladid.is Heimildarmenn Særúnar sögðu henni að á ástandsárunum hefði ríkt karni- val-stemning þar sem allt mátti og fólk sleppti alveg fram af sér beislinu. Hún segir áhugavert að skoða þessa stemningu og hvers vegna hún var við lýði. FRÉTTABLAÐIÐ/ STEFÁN Á þessari mynd sést breskt herlið koma til Reykjavíkurhafnar árið 1940. Ekki er vitað hvenær íslenskir karlar byrjuðu að hitta þá leynilega en ljóst er að það hófst mjög fljótlega eftir að dátarnir komu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Eftir þetta fóru samkynhneigðir menn að finna hver annan hér á landi og fatta að þeir voru ekki einir í heiminum. Særún Lísa Birgisdóttir Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefð­ bundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@ frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@ frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf. Ábyrgðar- maður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@ frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid. is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johann­ waage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Fæst hjá N1, OLÍS, veiðibúðum og veidikortid.is Frelsi til að veiða! Veiðitímabilið hefst 1.apríl! Ertu búinn að fá þér Veiðikortið? 8.900 kr 2 kynningarblað A L LT 30. mars 2021 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.