Fréttablaðið - 30.03.2021, Síða 21

Fréttablaðið - 30.03.2021, Síða 21
FASTEIGNIR. FRETTABLADID.IS Fasteignablaðið 13. TBL. ÞRIÐJUDAGUR 30. mars 2021 Miklaborg kynnir fjölskyldu- vænt 278,6 fermetra einbýli með frábæru útsýni að Ekrusmára 16. Gengið er inn á suðurhlið hússins frá rúmgóðu, hellulögðu plani, inn í forstofu með fatahengi. Þaðan er innangengt í 28 fermetra bílskúr með góðri lofthæð og geymslupalli. Á efri hæð hússins er aukin lofthæð. Komið er inn í stóra, bjarta og opna stofu og borðstofu með frábæru útsýni til sjávar og Snæfellsjökuls. Framan við stofu er eldhús sem lokast af með léttum veggbút en hægt er að opna eldhúsið, ef vill. Skemmtilegur eldhúskrókur er í gluggaútskoti. Úr stofu er gengið út á stórar vestursvalir með glæsilegu útsýni. Inn af stofu er sjónvarpsher- bergi sem á samþykktum teikn- ingum er hjónaherbergi. Þaðan er gengið út á litlar svalir til austurs og við hliðina á því er snyrting. Á neðri hæð hússins eru fimm góð svefnherbergi. Þar hefur verið útbúin björt og skemmtileg útleiguíbúð með sér inngangi, for- stofu, baðherbergi, svefnherbergi, stofu og opnu eldhúsi. Innangengt er í íbúðina í gegnum herbergi við hliðina. Ef það er notað með íbúð- inni er hún um 56 fermetrar, en allt eins má nota það með aðaleign. Harðparket er á gólfum íbúðar. Á neðri hæðinni er rúmgott hol með ýmsa möguleika, baðherbergi með baðkari, sturtu og glugga, þvottahúsi og geymslu með útgengi í garð til vesturs. Lóðin er stór, 858 fermetrar, ekki fullfrágengin. Eignin er ekki fullbúin, utan aukaíbúðar. Allar innréttingar og gólfefni eru til bráðabirgða. Loft- klæðning og sumar innihurðir eru ekki til staðar. Rafmagn er ekki full- frágengið. Bráðabirgðahandrið er á stærri svölum, en á austursvölum er ekki handrið né á stiga milli hæða. Yfirborð svala er ekki frágengið. Kjörið tækifæri til að klára og gera eignina að sinni. Ekrusmári 16 er sérlega vel skipulögð útsýniseign á vinsælum stað. Örstutt er í skóla, íþróttir og Smáralind. Eignin verður ekki sýnd fyrr en á opnu húsi miðvikudaginn 31. mars á milli klukkan 17 og 18. Vinsam- legast boðið komu ykkar. Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir, löggiltur fast- eignasali, í síma 773 6000 og á net- fanginu thorunn@miklaborg.is. Fjölskylduvænt með frábæru útsýni Glæsileg útsýn er til hafs og á Snæfellsjökul úr einbýlinu að Ekrusmára. Font: Mark Pro Corbel - Regular C 100% M 75% Y 0% K 33% Pantone #00397A C 75% M 68% Y 67% K 100% Pantone #00000 C 0% M 0% Y 0% K 75% Pantone #626366 Sigurður Samúelsson Lögg. fast. og eigandi Þórarinn Thorarensen Lögg. fast. og eigandi Þórey Ólafsdóttir Lögg. fast. og eigandi Júlíus Jóhannsson Lögg. fast. og eigandi Monika Hjálmtýsdóttir Lögg. fast. og eigandi Andri Sigurðsson Lögg. fast. og eigandi Sveinn Eyland Lögg. fast og eigandi Ingibjörg A. Jónsdóttir Löggiltur fast. Eggert Maríuson Löggiltur fast. Bryndís Bára Aðstoðarmaður fasteignasala Emil Tumi Aðstoðarmaður fasteignasala Jón Óskar Löggiltur fast. Guðrún D. Lúðvíksdóttir Löggiltur fast. Ása Þöll Ragnarsdóttir Skjalavinnsla/móttaka Herdís S. Jónsdóttir Aðstoðarmaður fasteignasala Hlíðasmára 2 201 Kópavogi Sími: 512 4900 www.landmark.is landmark@landmark.is Grensásvegur 11 I Sími 588 9090 I www.eignamidlun.is FÁÐU RÁÐGJÖF SEM BYGGIR Á REYNSLU ERT ÞÚ Í SÖLUHUGLEIÐINGUM? -örugg fasteignaviðskipti Við erum til þjónustu reiðubúin Elín Viðarsdóttir Löggiltur fasteignasali Björn Þorri Viktorsson hrl. Löggiltur fasteigna- og skipasali Jóhann Örn B. Benediktsson MIÐBORG FASTEIGNASALA - SUNDAGARÐAR 2 - 104 REYKJAVÍK - SÍMI: 533 4800 www.midborg.is Sólveig Fríða Guðrúnardó tir Löggiltur fasteignasali og lögfræðingur Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is RÁÐNINGAR RÁÐGJÖF RANNSÓKNIR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.