Fréttablaðið - 30.03.2021, Síða 29

Fréttablaðið - 30.03.2021, Síða 29
Fjarðaþrif er Svansvottað ræstingafyrirtæki á Eskifirði sem sér um fjölbreytt þrif víða á Austfjörðum. Fyrirtækið rekur einnig fullkomið þvottahús sem sér meðal annars um þvotta fyrir hótel. Hjá fyrirtækinu starfa 39 manns við fjölbreytt þrif. Framkvæmdastjórinn Lára Elísa- bet Eiríksdóttir stofnaði Fjarðaþrif árið 2003. Til að byrja með var hún eini starfsmaðurinn en núna 18 árum síðar hefur þeim fjölgað um 38. Fjarðaþrif er fyrsta ræstinga- fyrirtækið á Austfjörðum sem hefur hlotið Svansvottun. „Það þarf að uppfylla mjög ströng skilyrði til að fá Svansvott- un, en við leggjum mikinn metnað í að halda henni,“ segir Lára. „Við fengum vottunina fyrst árið 2012 og höfum haldið henni síðan. Hún var endurnýjuð árið 2018 en það þarf að endurnýja reglulega. Skilyrðin eru til dæmis að bílarnir sem við notum mega varla eyða neinu, við þurfum að telja pokana sem við notum og mæla millilítra af efninu sem við notum. Það þarf að fylgja ströngum reglum til að fá að halda vottuninni.“ Svansmerkið er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna sem tekur til alls lífsferils vöru og þjónustu. Svansvottun er leið fyrir fyrirtæki til að miðla umhverfis- starfi sínu og senda neytendum skilaboð um að fyrirtækið vinni markvisst að því að draga úr umhverfisáhrifum í starfi sínu. „Ég hef lagt metnað í umhverfis- vernd frá upphafi. En þegar ég byrjaði árið 2003 voru efnin sem voru Svansvottuð því miður mjög léleg. Ég var að þrífa mikið á erfiðum svæðum og efnin voru ekki að virka á þau. En í dag eru Svansvottuð efni miklu betri. Það er allt annað að þrífa með þeim,“ segir Lára. Eðal starfsfólk og umhverfisvæn þrif Lára ásamt samstarfskonu sinni Alexöndru Fornalik. Lára er þakklát fyrir gott starfsfólk hjá Fjarða- þrifum. MYNDIR/ AÐSENDAR Ewa Cygert við einn af bílum fyrirtækisins en mikilvægt er að þeir eyði litlu. Fjarðaþrif reka líka þvottahús en hér eru þær Anna og Zoja að störfum. Fjölbreytt þrif Fjarðaþrif er með bækistöðvar á Eskifirði en sér þó um þrif víðs vegar á Austfjörðum. „Við höfum verið að þrífa á mjög fjölbreyttum stöðum. Þetta eru fyrirtæki, heimili eldri borgara og einstaklinga sem þurfa aðstoð og ýmislegt fleira. Þetta er mjög fjöl- breytt og margt sem dúkkar upp. Við höfum til dæmis þrifið fyrir tryggingarfélögin þar sem hefur kviknað í. Við erum að fara á yfir 90 staði vikulega,“ segir Lára. Á Eskifirði reka Fjarðaþrif stórt þvottahús sem hefur aðallega séð um þvotta fyrir hótel og svipaða starfsemi. „Ég stefni á að stækka á því sviði og fara að leigja út lín. Það var stefnan að prófa það í sumar, en ef COVID verður áfram eins og það er núna þá þarf það kannski að bíða. Það verður bara að koma í ljós. Ég er allavega til í slaginn. Það er allt tilbúið fyrir útleigu,“ segir Lára. Þvottahúsið er ekki orðið Svans- vottað en Lára segir að það sé stefnan. „Það er örlítið flóknara að fá Svansvottun fyrir þvottahúsið en fyrir ræstingarnar. Það er ýmis- legt sem kemur þar inn sem dugar ekki að hreinsa bara einu sinni og þarf því sérmeðferð,“ útskýrir hún. Eins og áður segir starfa 39 manns hjá fyrirtækinu og Lára leggur áherslu á að það sé allt eðal fólk sem heldur fyrirtækinu gangandi. „Án þeirra væri ekkert hægt.“ kynningarblað 5ÞRIÐJUDAGUR 30. mars 2021 SVANSVOTTUN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.