Fréttablaðið - 30.03.2021, Side 30

Fréttablaðið - 30.03.2021, Side 30
Kaffitár hefur flokkað allan úrgang frá því fyrsta kaffihúsið var opnað árið 1995, það gefur flöskur og auka mat til góð- gerðarmála og hefur staðist þær ströngu kröfur sem eru gerðar fyrir Svansvottun síðan árið 2010. Kaffitár var stofnað árið 1990 og byrjaði sem lítið fjölskyldu- fyrirtæki sem rak kaffibrennslu í Njarðvík. Árið 1995 var svo fyrsta kaffihúsið opnað í Kringlunni og síðan þá hefur fyrirtækið rekið kaffihús úti um allt höfuðborgar- svæðið og kaffi fyrirtækisins er selt í matvöruverslunum. „Árið 2019 var fyrirtækið selt til Ó. Johnson & Kaaber, sem gefur okkur aukin og flott tækifæri á markaðnum og í dag starfrækjum við fimm kaffihús, en stefnum á að fjölga þeim,“ segir Marta Rut Pálsdóttir, rekstrarstjóri kaffi- húsa Kaffitárs. „Við verslum 80% af okkar kaffi beint af bónda og leggjum okkur fram um að vernda umhverfið. Kaffihús Kaffitárs eru líka nógu umhverfisvæn til að vera Svansvottuð, en við erum fyrsta kaffihúsið hér á landi til að fá hana.“ Stenst strangar kröfur „Kaffitár fékk Svansvottun árið 2010 eftir langt ferli þar sem gerðar voru miklar breytingar á kaffi- húsunum,“ segir Marta. „Kaffi- brennslan fékk ekki vottun á sama tíma, en hún vinnur samt sem áður eftir sömu reglum og kaffihúsin gera og það er bara tímaspursmál hvenær hún fær vottun. „Til að hafa Svansvottun þurfum við að standast gríðarlega strangar kröfur. Allt okkar sorp er flokkað, við notum einnota umbúðir í lág- marki, það þarf að vera hægt að rekja öll grænu sporin og það eru strangar reglur varðandi vatns- og rafmagnsnotkun og frágang á öllum úrgangi. Við notum líka eingöngu Svansvottuð hreinsi- efni,“ segir Marta. „Við þurfum að tryggja að neikvæð umhverfisáhrif séu í lágmarki. Við höfum fengið viðurkenn- ingu Kuðungsins fyrir öflugt umhverfisstarf og vorum að þessu áður en það var „kúl“,“ segir Marta. „Við höfum flokkað frá því að við opnuðum fyrsta kaffihúsið okkar og alltaf gefið flöskur í góðgerðar- starfsemi. Við pössum líka vel upp á matarsóun og gefum auka mat í góðgerðarstarfsemi eins og Konukot, Rauða krossinn eða Frú Ragnheiði. Við notum pappamál, takmörkum alla plastnotkun og lokin á kaffibollum eru nú gerð úr maís.“ Styrkir ímynd fyrirtækisins „Notkun á Svansmerkinu styrkir jákvæða ímynd fyrirtækisins. Það skiptir viðskiptavini máli að vita að fyrirtæki hugi að umhverfinu og lágmarki neikvæð umhverf- isáhrif sín,“ segir Marta. „Það er að verða viðtekin venja að fólk sé meðvitað um umhverfið, f lokki og lágmarki alla plastnotkun. Það er að vísu erfiðara í faraldrinum, en það er mikilvægt að vera meðvit- aður og við viljum fá sem flesta í lið með okkur. Við mælum að sjálfsögðu með að öll fyrirtæki fari í gegnum þetta ferli,“ segir Marta. „Það er flott að hafa þennan titil, við erum stolt af því að hafa hann og fögnum því alltaf þegar fyrirtæki fá vottun. Við erum nú að vinna að því að auka flokkun í fyrirtækinu öllu svo að Ó. Johnson & Kaaber verið umhverfisvænna en það er fyrir.“ Mikilvægt að sýna ábyrgð í verki Marta Rut Páls- dóttir, rekstrar- stjóri kaffihúsa Kaffitárs. FRÉTTA- BLAÐIÐ/VALLI Aukið úrval af mat „Kaffitár var að opna nýtt eld- hús svo við bjóðum upp á aukið úrval af mat,“ segir Marta. „Við réðum kokk sem er uppfullur af geggjuðum hugmyndum og hann hefur verið að vinna að því að auka úrvalið hjá okkur síðan í nóvem- ber, en samkomutakmarkanir hafa hægt á markaðssetningunni á þessu hjá okkur. Við erum með samlokur, súpur, vefjur, bökur og acai-skálar. Sem stendur eru skálarnar bara í boði í Háskólanum í Reykjavík en við stefnum á að þær komi á öll kaffi- húsin okkar áður en langt um líður.“ Það skiptir við- skiptavini máli að vita að fyrirtæki hugi að umhverfinu og lágmarki neikvæð umhverfisáhrif sín. Marta Rut Pálsdóttir Norræna umhverfismerkið Svanurinn er eitt af þeim verk- færum sem fyrirtæki geta notað til að vinna í átt að hringrásar- hagkerfi. Markmið Svansins er að draga úr heildar umhverfis- áhrifum af neyslu og því tekur Svanurinn til alls lífsferils vöru eða þjónustu – frá hráefnanotk- un til framleiðslu, notkunar og úrgangsmeðhöndlunar. Markmið Svansins eru því í góðu samræmi við markmið hringrásar- hagkerfisins og stuðla almennt að bættri auðlindanýtingu. Í gegnum alla viðmiðaflokka Svansins, hvort sem við erum að skoða sjampó eða nýbyggingar, má sjá sömu áherslur sem stuðla að bættri auðlindanýt- ingu. Hægt er að skipta áherslum Svansins sem beintengjast hring- rásarhagkerfinu í sex þætti sem fjallað verður um hér. Strangar efnakröfur Í öllum viðmiðum Svansins má finna strangar kröfur um inni- haldsefni. Efnakröfurnar lág- marka neikvæð umhverfisáhrif í framleiðsluferlinu sjálfu en eru líka mjög mikilvægur þáttur í að tryggja að varan hafi ekki heilsu- skaðleg áhrif á þann sem notar vöruna. Efnakröfur Svansins auka einnig líkurnar á því að hægt sé að endurnota og endurvinna vöruna seinna í lífsferlinum. Þessar kröfur má t.d. sjá þegar við skoðum vottaðar byggingarvörur, textíl og leikföng. Í þessum vöruflokkum styður bann við notkun þalata, bann við halógenuðum eldtefjandi efnum og strangar kröfur um íblöndunarefni í plasti við að hægt sé að endurnota efnin eða endur- vinna við lok líftíma. Kröfur á endurnýjanleg, endur- unnin og sjálfbær hráefni Svanurinn setur kröfu um að notast sé við endurnýjanleg, endurunnin eða sjálfbær hráefni. Kröfurnar eru aðlagaðar því hrá- efni sem verið er að skoða hverju sinni. Ef við skoðum til dæmis við, þá gerir Svanurinn kröfur um að allar viðarvörur séu framleiddar úr við úr sjálfbærri skógrækt. Þessi krafa nær til dæmis til húsgagna, parkets, glugga, ljósritunarpappírs og pappírsumbúða. Þegar horft er á pappírsvörur samþykkir Svanur- inn einnig að notast sé við endur- unninn pappír. Ef við horfum á vörur úr áli, þá er krafa Svansins að vörurnar innihaldi lágmarkshlut endurunnins áls. Gæðakröfur og líftími Gæðakröfur Svansins eru til þess gerðar að tryggja að varan skili ásættanlegri virkni og að gæði vörunnar séu tryggð. Þar sem við á er líka gerð krafa um endingu vörunnar, en líftími er einmitt eitt lykilhugtak í hringrásarhag- kerfinu. Með því að auka líftíma vöru er hægt að fresta því að hún verði að úrgangi á meðan gæða- kröfurnar geta aukið líkurnar á að hægt sé að endurnota vöruna eða hluta hennar að líftíma loknum. Ef við skoðum málningu er þar gerð krafa um að hægt sé að loka umbúðunum eftir notkun til að varan skemmist ekki við geymslu og að málningin uppfylli kröfur um efnisþekju til að hægt sé að lág- marka hversu mikið magn þarf að nota á hvern fermetra. Fyrir textíl er horft til líftímans með tilliti til þess að litur og form haldi sér við þvott. Kröfur á vöruhönnun, sundur- hlutun og viðgerðir Þar sem það á við gerir Svanurinn kröfu um að tekið sé tillit til mögu- leika á sundurhlutun og viðgerðum strax á hönnunarstigi. Þetta getur bæði stutt við lengri líftíma en líka aukið lík- urnar á möguleika á endurnotkun og endur- vinnslu við lok líftíma. Hér má nefna kröfur Svansins fyrir húsgögn þar sem er gerð krafa um að auðvelt sé að taka ólík efni í sundur til að hægt sé að endurnota eða endurvinna hluta vörunnar. Kröfur um minni auðlinda- og orkunotkun Kröfur Svansins um minni auð- linda- og orkunotkun má finna víða, en sem dæmi má nefna að í öllum viðmiðum Svansins fyrir þjónustu má finna kröfu um lág- marks orku- og vatnsnotkun. Þetta sjáum við þegar votta á hótel, dag- vöruverslanir, bílaþvottastöðvar og prentsmiðjur. Fyrir nýbygg- ingar er einnig gerð krafa um að hönnun tryggi lága orkunotkun á notkunartíma hússins. Kröfur um bætta úrgangsmeð- höndlun og nýtingu auðlinda Þar sem hægt er að hafa áhrif á úrgangsmeðhöndlun setur Svanurinn kröfu á að lágmarka blandaðan úrgang og hámarka endurvinnslu. Á sama tíma ýta áhersluatriðin hér að framan undir það að hægt sé að annað hvort koma í veg fyrir að vörur eða hlutar þeirra verði að úrgangi eða efnin sem notuð eru henti í efnisendur- vinnslu í lokaðri hringrás. Áhersla á að lágmarka blandaðan úrgang og auka endurvinnslu má sjá í viðmiðum Svansins fyrir hótel, veitingastaði, dagvöru- verslanir og prentsmiðjur. Fyrir nýbyggingar og endurbætur hús- næðis er lögð áhersla á að gert sé ráð fyrir góðri flokkunaraðstöðu. Svanurinn og hringrásarhagkerfið Hringrásarhagkerfið er mjög sýnilegt í viðmiðum fyrir Svansvottuð húsgögn. 6 kynningarblað 30. mars 2021 ÞRIÐJUDAGURSVANSVOTTUN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.