Fréttablaðið - 30.03.2021, Síða 31
AÞ-þrif leggur áherslu á vand-
aða þjónustu, heiðarleika og
fagmennsku. Fyrirtækið fékk
Svansvottun árið 2010 og hefur
jafnframt hlotið viðurkenning-
una „Framúrskarandi fyrirtæki“
fjögur ár í röð.
AÞ-þrif var stofnað árið 2006 og
fagnar því 15 ára starfsafmæli
á árinu. Í fyrirtækinu starfa um
hundrað manns og eigendur eru
þau Arnar Þorsteinsson, Hrund
Sigurðardóttir og Bjarki Þorsteins-
son. Fyrirtækið er staðsett að
Skeiðarási 12 í Garðabænum þar
sem það hefur verið frá upphafi.
Fjölbreytt þjónusta
Hrund Sigurðardóttir, verkefna-
stjóri og einn eigenda fyrirtækis-
ins, segir starfsemi fyrirtækisins
vera afar fjölbreytta. „AÞ-Þrif
bjóða upp á alhliða hreingerninga-
þjónustu fyrir fyrirtæki, stofnanir
og einstaklinga. Við bjóðum upp
á daglegar ræstingar í stórum sem
smáum fyrirtækjum, allt frá litlum
skrifstofum upp í stórar verslanir
og skóla.“
Þá er einnig boðið upp á sér-
hæfðari þjónustu. „Við erum
auk þess með öfluga og reynslu-
mikla sérverkefnadeild þar sem
við bjóðum upp á gluggaþvott,
iðnaðarþrif, mygluþrif, gólfþrif,
f lutningsþrif, sótthreinsun og
fleira.“
Viðskiptavinir fyrirtækisins
eru af öllum stærðum og gerðum.
„Okkar helstu viðskiptavinir eru
einkafyrirtæki en við þjónustum
einnig stofnanir, húsfélög, sveitar-
félög og einstaklinga.“
Skjót viðbrögð og Svansvottun
Hrund segir eina helstu sérstöðu
fyrirtækisins liggja í skjótum
viðbrögðum við verkefnum af
öllu tagi. „Við erum þekkt fyrir að
bregðast hratt við og að geta tekið
að okkur fjölbreytt og krefjandi
verkefni með litlum fyrirvara.“
AÞ-þrif fengu Svansvottun árið
2010 og segir Hrund það hafa verið
mikils virði fyrir fyrirtækið.
„Með Svansvottuninni hafa
AÞ-Þrif tryggt að allir starfsmenn
fá viðeigandi þjálfun, bæði í verk-
legu og bóklegu námi. Vottunin
tryggir okkur gott og áhrifaríkt
gæðaeftirlit. Sápunotkun er eins
lítil og mögulegt er og eingöngu
eru notast við umhverfisvottaðar
vörur í ræstingum.“
Þrjú mikilvæg gildi
Hjá AÞ-þrifum eru þrjú gildi höfð
að leiðarljósi. „Gildin okkar eru
Framúrskarandi þjónusta í fimmtán ár
Arnar Þorsteinsson, Hrund Sigurðardóttir og Bjarki Þorsteinsson eru eigendur AÞ-þrifa. Fyrirtækið fékk Svansvottun árið 2010 og hefur þrjú gildi að leiðarljósi í sinni starfsemi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
AÞ-þrif býður upp á alhliða hreingerningaþjónustu fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga og er auk þess með öfluga sérverkefnadeild.
Við erum þekkt
fyrir að bregðast
hratt við og að geta tekið
að okkur fjölbreytt og
krefjandi verkefni með
litlum fyrirvara.
þjónustulund, heiðarleiki og fag-
mennska,“ greinir Hrund frá.
„Þjónustulund stendur fyrir það
að við erum jákvæð og sveigjanleg
í viðmóti og sýnum frumkvæði
í samskiptum við viðskiptavini.
Við erum snör í snúningum og
opin fyrir hugmyndum annarra
og tilbúin að vinna með þær. Við
setjum viðskiptavininn í öndvegi
og allar okkar ákvarðanir taka
mið af því,“ segir hún.
„Heiðarleikinn þýðir að við
erum heiðarleg í öllu sem við
gerum, hvort sem það er gagnvart
starfsmönnum eða viðskipta-
vinum. Fagmennskan snýr svo að
ásýnd fyrirtækisins og öll okkar
framkoma er fagleg og ber vitni
um metnað okkar til að gera vel.“
kynningarblað 7ÞRIÐJUDAGUR 30. mars 2021 SVANSVOTTUN