Fréttablaðið - 30.03.2021, Síða 36
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Elskulegur eiginmaður minn
og faðir okkar,
Hörður Hákonarson
ljósmyndari,
Mánatúni 7, Reykjavík,
lést á Droplaugarstöðum þann
16. mars. Útför hefur farið fram í kyrrþey.
Þökkum auðsýnda samúð. Sérstakar þakkir til starfsfólks
Droplaugarstaða fyrir einstaka umhyggju og hlýtt viðmót.
Þórdís Sveinsdóttir
Sveinn Hákon Harðarson
Hilmar Björn Harðarson
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ingunn Eyjólfsdóttir
lést á Hjúkrunarheimilinu Mörk
13. mars sl. Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum
auðsýnda samúð og sérstakar þakkir fær
starfsfólk Markar fyrir nærgætna og góða umönnun.
Elísabet Valtýsdóttir Gísli Skúlason
Kristín Valtýsdóttir Þórður D. Bergmann
Margrét V. Zachariassen Henrik Zachariassen
Anna María Valtýsdóttir
barnabörn og langömmubörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
Ragnheiður Vigfúsdóttir
Þormar
er látin.
Þórarinn Þórarinsson Guðríður K. Pétursdóttir
Ragnheiður Hrefna Tómas Þorkelsson
Þórarinsdóttir
Sigurður Steinþórsson
barnabörn, barnabarnabörn og langalangömmubörn.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir, afi, bróðir,
mágur og tengdasonur,
Gestur Friðrik
Guðmundsson
myndlistarmaður og
framhaldsskólakennari,
lést laugardaginn 20. mars á Landspítalanum.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
31. mars klukkan 15. Í ljósi aðstæðna verða eingöngu
nánustu ástvinir viðstaddir. Streymt verður frá athöfninni
og hægt er að nálgast það á:
mbl.is/andlat/minningar/utfarastreymi/
Sylvía Kristjánsdóttir
Helga Gestsdóttir Hjörvar Jónsson
Guðmundur Helgi Gestsson Ásta Bjarndís Bjarnadóttir
Óskar Atli Gestsson Adda Þóra Bjarnadóttir
Anna Guðmundsdóttir Logi Egilsson
Bryndís Helgadóttir Kristján Andrésson
og barnabörn.
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson
síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Af hverju skyldu vera fuglar á páskaeggjum og í páska-skreytingum? Ásta Krist-rún Ragnarsdóttir náms-ráðgjafi mun upplýsa það og margt f leira í þáttum
sem hún og Valgeir Guðjónsson tónlist-
armaður senda út á skírdag og páskadag
frá Bakkastofu á Eyrarbakka. Fólk getur
notið þáttanna á Facebook og vefnum
bakkastofa.com gegnum YouTube. Þeir
hefjast klukkan 15 báða dagana og verða
aðgengilegir áfram. Þar verða fuglar í
öndvegi.
Þegar ég slæ á þráðinn til Ástu Krist-
rúnar kveðst hún einmitt hafa verið að
tala við hann Alex Mána Guðríðarson
sem var nýbúinn að sjá lóuna, fyrstur
manna þetta vorið – og það á Stokkseyri
– næsta bæ við Eyrarbakka. „Alex Máni
er 27 ára og hefur verið í læri hjá Jóhanni
Óla Hilmarssyni fuglafræðingi. Þeir
ætla báðir að koma til mín í fuglaþátt-
inn í Bakkastofu, enda vita þeir meira
en flestir um fugla. Þannig að ég hef aðal
töffarana með mér í dagskránni,“ segir
hún glaðlega.
Að sjálfsögðu er eiginmaður Ástu
Kristrúnar, söngvarinn Valgeir Guð-
jónsson, á töffaralistanum. „Valgeir er
nú búinn að vera fuglamiðaður alla tíð.
Ég man þegar við bjuggum í Þrándheimi
1978-81 og hann var að byrja að semja
lög við fuglatextana hans Jóhannesar úr
Kötlum,“ rifjar hún upp og lofar söng og
ljóðum í dagskránni.
Milli laga verður svo enginn skortur
á sögum og fróðleik, heyrist mér á
Bakkastofufrúnni. „Fyrir jólin kom út
skemmtileg bók sem heitir Fuglar og
þjóðtrú og er eftir Sigurð Ægisson, prest á
Siglufirði. Ég datt ofan í hana og ákvað að
setja miða við það sem mér fannst áhuga-
vert, ég held það sé kominn miði í hverja
opnu svo ég verð að velja úr því efni af
kostgæfni. Ég var líka svo heppin að ná í
síðasta eintakið af Fuglaspilinu sem tvær
ungar konur gáfu út fyrir nokkrum árum
og seldist upp. Það ætla ég að nota í þætt-
inum og vera með myndir af fuglunum.“
Meðal þess sem við sögu kemur í
væntanlegri dagskrá, að sögn Ástu Krist-
rúnar, er Eggjaskúrinn sem stendur bak
við Húsið á Eyrarbakka og vitnar um
þekkingarleit fróðleiksfúsra manna sem
bjuggu í Húsinu á 19. öld. „Þar komu þeir
sér upp skráðu eggjasafni með aðstoð
fólks um allt land og Náttúrufræðistofn-
un fékk síðan það safn að gjöf,“ lýsir hún.
Fuglatónleikar voru fastur liður um
páskana í Bakkastofu um nokkurra ára
bil. „Þá dansaði fólk fugladansinn og það
var tekið upp á ýmsu. En eftir að COVID-
19 kom til sögunnar er slíkt ekki í boði.
Við hjónin tókum hins vegar tæknina í
okkar þjónustu á aðventunni og sendum
þá út nokkra Bakkastofuþætti, þetta
verður svo sá þriðji frá áramótum. Við
hlökkum mikið til,“ segir Ásta Kristrún.
Á bak við hana heyrist krunk í hröfn-
um og hún viðurkennir að fimm krumm-
ar hafi raðað sér á mæninn á Læknishús-
inu sem sé næsta hús við Bakkastofu,
enda hafi hún fleygt til þeirra hráum
kjötbitum daginn áður. Það er greinilega
ekki langt í fuglalífið hjá henni á Bakk-
anum. gun@frettabladid.is
Hef aðaltöffarana með
Hjónin Ásta Kristrún og Valgeir Guðjónsson verða með dagskrá í tali og tónum í Bakka
stofu um páskahelgina. Hún snýst um fugla í ljóðum og söng og er send út rafrænt.
Valgeir og Ásta Kristrún hlakka til að miðla söng og fróðleik til fólks í gegnum tölvur um páskahelgina. MYND/AÐSEND
Hver veit nema auðnutittlingar komi við
sögu í þættinum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
3 0 . M A R S 2 0 2 1 Þ R I Ð J U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT