Fréttablaðið - 30.03.2021, Page 39

Fréttablaðið - 30.03.2021, Page 39
ÉG ER EKKI VÍSINDA- MAÐUR, ÉG ER BARA VENJULEG MANNESKJA OG REYNI AÐ SKRIFA ÞESSA BÓK Á MENNSKAN EINSTAKLINGS- BUNDINN HÁTT. Stríð og kliður: Hvað verð-ur um ímyndunaraf lið? nefnist ný bók eftir rit-höfundinn, þýðandann, útgefandann og gagn-rýnandann Sverri Nor- land. Hann segir bókina ólíka öllu öðru sem hann hefur áður skrifað en þar f léttar hann saman eigin lífsreynslusögum og hugleiðingum um náttúru, loftslagsbreytingar og tækni, og veltir fyrir sér hvaða áhrif hinar öru breytingar á þessum svið- um eru teknar að hafa á ímyndunar- afl okkar og andlega líðan. „Forsögunnar er að leita aftur til ársins 2016 þegar ég lenti í sköp- unarkrísu. Þá bjó ég í New York og mér fannst heimurinn skyndilega svo pakkfullur af knýjandi vanda- málum að ég gæti ekki lengur rétt- lætt það að sitja einn í herbergi og búa til persónur og platvandamál í skáldsögu. Það þyrmdi yfir mig við tilhugsunina um fjöldaútrýmingu dýra, loftslagsbreytingar og yfir- töku tækninnar sem treður sér inn á hvert einasta svið. Þegar við fjölskyldan fluttumst burt frá stór- borginni lögðumst við í f lakk og um skeið starfaði ég með bónda í Japan sem ræktar lífrænt grænmeti. Þar drap ég mig næstum því á traktor, eins og ég lýsi á fyrstu síðum bókar- innar. Þegar ég f laug um japanska sveitaloftið og skall í jörðina vissi ég að ég ætti ekki að vera bóndi, ég væri miklu betri í því að skrifa. Fljótlega í kjölfarið byrjaði ég að skrifa þessa bók.“ Stríðið gegn náttúrunni Sverrir kemur víða við í Stríði og klið. „Stríðið í titlinum er stríðið gegn náttúrunni og kliðurinn er upplýsingadynurinn og tæknin sem er farin að leka inn á öll svið. Ég er að velta því fyrir mér hvernig við getum haldið áfram að vera skapandi í þessu umhverfi. Upp- spretta ímyndunaraf lsins, sem er lífheimurinn allt í kringum okkur, á undir högg að sækja og hausinn á okkur er alltaf undir svo miklu áreiti að við fáum ekki lengur tíma til að vera skapandi og hugsa og vera við sjálf. Hvernig eigum við að fara inn í framtíðina? Samtíminn byggir á því sem undan fór og því vitna ég í skáld fyrri tíma og alls kyns lista- menn og enda á því að vinna mig út úr þessari krísu með því að tína til allt sem mér finnst gera lífið þess virði að lifa því.“ Vörn gegn eyðileggingu Spurður hvort hann sé svartsýnn eða bjartsýnn á framtíð manns og heims segir hann: „Ég er bjartsýnn og svartsýnn í senn. Ég held að við þurfum að geta fjallað um neikvæða hluti á bjartsýnislegan hátt. Það er algjör neikvæðni að hunsa ógn- vænlegar áskoranir. Nú, þegar við erum að fara í gegnum COVID, væri sjálfsblekking að telja sér trú um að við getum haldið áfram með sama hætti og áður þegar þessu krefjandi tímabili lýkur. Ég er ekki vísindamaður, ég er bara venjuleg manneskja og reyni að skrifa þessa bók á mennskan ein- staklingsbundinn hátt sem vonandi talar til margra og styrkir þá í því að það skipti máli hvernig hvert og eitt okkar lifir lífinu. Þetta er persónu- leg hugvekja sem á að vera fræð- andi, án þess að vera fræðirit. Viðbrögðin fram til þessa hafa verið afar jákvæð svo að ég vona að það sé til marks um að bókin sé tímabær og að það skapist áfram- haldandi umræða um hana. Við þurfum að hugsa um náttúruna og tæknina á skapandi og fjölbreyttan hátt, ekki aðeins undir formerkjum stór f yrirtækja og stjórnvalda heldur líka sem sterkir og skapandi einstaklingar sem láta sig veröld sína varða – og sem listamenn. Þar verður frjóasta hugsunin til. Lista- menn horfa svo grannt í kringum sig, sköpun þeirra sprettur upp úr ást þeirra á veröldinni – og þar með eru þeir, sem fulltrúar hreinskilni og þess hugrekkis sem það krefst að tala tæpitungulaust, vörn gegn eyðileggingu heimsins.“ Persónuleg hugvekja sem á að vera fræðandi Sverrir Norland er höfundur bókarinnar Stríð og kliður. Fléttar saman eigin lífsreynslusögum og hugleiðing- um um náttúru, loftslagsbreytingar og tækni. Vonar að bókin sé tímabær og að það skapist umræða um hana. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Ég er bjartsýnn og svartsýnn í senn, segir rithöfundurinn Sverrir Norland sem hefur sent frá sér bókina Stríð og klið. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR SsangYong Rexton Hlx ‘17, sjálfskiptur, ekinn 77 þús. km. Verð: 4.890.000 kr. SsangYong Koranod Dlx ‘19, sjálfskiptur, ekinn 33 þús. km. Verð: 3.990.000 kr. SsangYong Tivoli HLX ‘18, sjálfskiptur, ekinn 58 þús. km. Verð: 3.190.000 kr. Opel Crossland X Innovation ‘18, sjálfskiptur, ekinn 29 þús. km. Verð: 2.890.000 kr. Notaðir bílar Meira úrval á notadir.benni.is Bílabúð Benna | Krókhálsi 9 | Reykjavík | 590 2035 Birt með fyrirvara um mynda- og textabrengl. *Forsendur: 5 ára lán hjá Lykli. Útborgun 600.000 kr. með notuðum bíl. Opel Astra Innovation ‘17, sjálfskiptur, ekinn 39 þús. km. Verð: 2.490.000 kr. 4X4 Gott úrval notaðra bíla Flottir bílar – frábær kjör! 446838 Greiðsla á mánuði: 50.073 kr.* Greiðsla á mánuði: 39.122 kr.* 4X4 Greiðsla á mánuði: 45.380 kr.* 4X4 Greiðsla á mánuði: 76.669 kr.* 4X4 Greiðsla á mánuði: 62.589 kr.* 446840 590964 446778 446843 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 19Þ R I Ð J U D A G U R 3 0 . M A R S 2 0 2 1

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.