Fréttablaðið - 30.03.2021, Qupperneq 39
ÉG ER EKKI VÍSINDA-
MAÐUR, ÉG ER BARA
VENJULEG MANNESKJA OG
REYNI AÐ SKRIFA ÞESSA BÓK Á
MENNSKAN EINSTAKLINGS-
BUNDINN HÁTT.
Stríð og kliður: Hvað verð-ur um ímyndunaraf lið? nefnist ný bók eftir rit-höfundinn, þýðandann, útgefandann og gagn-rýnandann Sverri Nor-
land. Hann segir bókina ólíka öllu
öðru sem hann hefur áður skrifað
en þar f léttar hann saman eigin
lífsreynslusögum og hugleiðingum
um náttúru, loftslagsbreytingar og
tækni, og veltir fyrir sér hvaða áhrif
hinar öru breytingar á þessum svið-
um eru teknar að hafa á ímyndunar-
afl okkar og andlega líðan.
„Forsögunnar er að leita aftur til
ársins 2016 þegar ég lenti í sköp-
unarkrísu. Þá bjó ég í New York og
mér fannst heimurinn skyndilega
svo pakkfullur af knýjandi vanda-
málum að ég gæti ekki lengur rétt-
lætt það að sitja einn í herbergi og
búa til persónur og platvandamál í
skáldsögu. Það þyrmdi yfir mig við
tilhugsunina um fjöldaútrýmingu
dýra, loftslagsbreytingar og yfir-
töku tækninnar sem treður sér
inn á hvert einasta svið. Þegar við
fjölskyldan fluttumst burt frá stór-
borginni lögðumst við í f lakk og um
skeið starfaði ég með bónda í Japan
sem ræktar lífrænt grænmeti. Þar
drap ég mig næstum því á traktor,
eins og ég lýsi á fyrstu síðum bókar-
innar. Þegar ég f laug um japanska
sveitaloftið og skall í jörðina vissi
ég að ég ætti ekki að vera bóndi,
ég væri miklu betri í því að skrifa.
Fljótlega í kjölfarið byrjaði ég að
skrifa þessa bók.“
Stríðið gegn náttúrunni
Sverrir kemur víða við í Stríði og
klið. „Stríðið í titlinum er stríðið
gegn náttúrunni og kliðurinn er
upplýsingadynurinn og tæknin
sem er farin að leka inn á öll svið.
Ég er að velta því fyrir mér hvernig
við getum haldið áfram að vera
skapandi í þessu umhverfi. Upp-
spretta ímyndunaraf lsins, sem er
lífheimurinn allt í kringum okkur,
á undir högg að sækja og hausinn
á okkur er alltaf undir svo miklu
áreiti að við fáum ekki lengur tíma
til að vera skapandi og hugsa og vera
við sjálf. Hvernig eigum við að fara
inn í framtíðina? Samtíminn byggir
á því sem undan fór og því vitna ég
í skáld fyrri tíma og alls kyns lista-
menn og enda á því að vinna mig út
úr þessari krísu með því að tína til
allt sem mér finnst gera lífið þess
virði að lifa því.“
Vörn gegn eyðileggingu
Spurður hvort hann sé svartsýnn
eða bjartsýnn á framtíð manns og
heims segir hann: „Ég er bjartsýnn
og svartsýnn í senn. Ég held að við
þurfum að geta fjallað um neikvæða
hluti á bjartsýnislegan hátt. Það er
algjör neikvæðni að hunsa ógn-
vænlegar áskoranir. Nú, þegar við
erum að fara í gegnum COVID, væri
sjálfsblekking að telja sér trú um að
við getum haldið áfram með sama
hætti og áður þegar þessu krefjandi
tímabili lýkur.
Ég er ekki vísindamaður, ég er
bara venjuleg manneskja og reyni
að skrifa þessa bók á mennskan ein-
staklingsbundinn hátt sem vonandi
talar til margra og styrkir þá í því að
það skipti máli hvernig hvert og eitt
okkar lifir lífinu. Þetta er persónu-
leg hugvekja sem á að vera fræð-
andi, án þess að vera fræðirit.
Viðbrögðin fram til þessa hafa
verið afar jákvæð svo að ég vona
að það sé til marks um að bókin sé
tímabær og að það skapist áfram-
haldandi umræða um hana. Við
þurfum að hugsa um náttúruna og
tæknina á skapandi og fjölbreyttan
hátt, ekki aðeins undir formerkjum
stór f yrirtækja og stjórnvalda
heldur líka sem sterkir og skapandi
einstaklingar sem láta sig veröld
sína varða – og sem listamenn. Þar
verður frjóasta hugsunin til. Lista-
menn horfa svo grannt í kringum
sig, sköpun þeirra sprettur upp úr
ást þeirra á veröldinni – og þar með
eru þeir, sem fulltrúar hreinskilni
og þess hugrekkis sem það krefst
að tala tæpitungulaust, vörn gegn
eyðileggingu heimsins.“
Persónuleg hugvekja sem á að vera fræðandi
Sverrir Norland er höfundur bókarinnar Stríð og kliður. Fléttar saman eigin lífsreynslusögum og hugleiðing-
um um náttúru, loftslagsbreytingar og tækni. Vonar að bókin sé tímabær og að það skapist umræða um hana.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Ég er bjartsýnn og svartsýnn í senn, segir rithöfundurinn Sverrir Norland sem hefur sent frá sér bókina Stríð og klið. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
SsangYong Rexton Hlx ‘17, sjálfskiptur,
ekinn 77 þús. km. Verð: 4.890.000 kr.
SsangYong Koranod Dlx ‘19, sjálfskiptur,
ekinn 33 þús. km. Verð: 3.990.000 kr.
SsangYong Tivoli HLX ‘18, sjálfskiptur,
ekinn 58 þús. km. Verð: 3.190.000 kr.
Opel Crossland X Innovation ‘18, sjálfskiptur,
ekinn 29 þús. km. Verð: 2.890.000 kr.
Notaðir bílar
Meira úrval á
notadir.benni.is
Bílabúð Benna | Krókhálsi 9 | Reykjavík | 590 2035
Birt með fyrirvara um mynda- og textabrengl. *Forsendur: 5 ára lán hjá Lykli. Útborgun 600.000 kr. með notuðum bíl.
Opel Astra Innovation ‘17, sjálfskiptur,
ekinn 39 þús. km. Verð: 2.490.000 kr.
4X4
Gott úrval notaðra bíla
Flottir bílar – frábær kjör!
446838
Greiðsla á mánuði: 50.073 kr.* Greiðsla á mánuði: 39.122 kr.*
4X4
Greiðsla á mánuði: 45.380 kr.*
4X4
Greiðsla á mánuði: 76.669 kr.*
4X4
Greiðsla á mánuði: 62.589 kr.*
446840 590964 446778 446843
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 19Þ R I Ð J U D A G U R 3 0 . M A R S 2 0 2 1