Fréttablaðið - 30.03.2021, Page 42
Raunveruleikastjarnan og nú tónlistarmaðurinn Bassi Maraj stígur inn í mánudag inn spræk u r ef t ir alla athyglina fyrir færslur
hans á Twitter um helgina, þar sem
hann svaraði meðal annars Bjarna
Benediktssyni fjármálaráðherra
og óskaði eftir að fá nýja stjórnar
skrá sem fyrst. Bassi er einlægur og
opinn og segist fyrst og fremst hafa
verið í galsa og engan viljað særa.
Oft er sagt um raunveruleika
stjörnur að öll athygli sé góð athygli,
en Bassi vakti fyrst athygli á lands
vísu í sjónvarpsþáttunum Æði sem
eru sýndir á Stöð 2. Í þeim er sýnt
frá daglegu lífi hans og vina hans,
þeirra Patricks Jaime og Binna Glee.
Þrátt fyrir að beinskeytnin á Twitt
er fari misvel í fólk, þó oftast vel,
hefur Bassi verið að af la sér mjög
jákvæðrar athygli síðastliðna viku
og það fyrir tónlist. Hann trónir
á toppi Spotifylistans hér á landi
með lagi sem heitir einfaldlega Bassi
Maraj. Ekki bara er lagið gífurlega
vinsælt heldur hefur það einnig
verið lofað í hástert af hinum ýmsu
tónlistarmönnum fyrir gott flæði og
frábæran takt út smiðju Arnars Inga
Ingasonar, sem einnig er þekktur
sem Young Nazareth. Viðtökurnar
hefðu í raun varla getað verið betri.
Róleg helgi
„Ég er mjög slakur eftir helgina, ekk
ert í gangi. Gerðist ekkert merkilegt,
var bara að hafa kósí,“ segir Bassi
kíminn.
„Þetta var sko bara djók. Það
einfaldlega sprakk upp og ég var
bara „ókei“. Ég var ekki með neina
fylgjendur á Twitter,“ segir Bassi og
bætir við hann hafi alls ekki búist
við þessum viðbrögðum.
„Ég vaknaði morguninn eftir og
allir að missa það.“
Er Bjarni Ben nokkuð búinn að
hafa samband við þig?
„Nei. En ef hann hefði haft sam
band við mig hefði ég alveg fílað
það, því hann er auðvitað algjört
æði. Mér finnst hann alveg „hot“,“
segir hann.
Bassi segist ekki hafa vitað hver
Hannes Hólmsteinn Gissurarson er
og því hafi ekki verið um eiginlegt
né persónulegt skot á hann að ræða.
„Nei, ég veit ekkert hver Hannes
er. Þetta Grindrdæmi var bara úr
lausu lofti gripið.“
Semur helst í bílnum
Bassi er núna á fullu að vinna að
nýrri stuttskífu sem kemur út á
næstu misserum. Hann segist eyða
miklum tíma í stúdíóinu þessa dag
ana og það sé nóg að gera. Vinsældir
slagarans Bassi Maraj komu honum
að óvart en hann samdi textann
sjálfur.
„Ég er búinn að vera í textasmíði
frekar lengi. Þetta er þess kyns rapp
að þetta má alveg vera pínu steypa
líka. Viðbrögðin hafa verið góð og
lagið er núna búið að vera efst á
Spotify í heila viku og er það enn.
Þetta lag small f ljótt saman, ég fór
í raun bara einu sinni í stúdíóið.
Mér finnst best að semja tónlist í
bílnum, þá er ég oft að „blasta“ tón
list. Svo kemur oft til mín einhver
texti og ég legg bílnum til að skrifa
hann niður. Ég er ekkert á 120 kíló
metra hraða að skrifa niður texta,“
segir hann og hlær.
Hann segist ekki einskorða sig við
rapptónlistina og geta séð fyrir sér
að gera tónlist úr mörgum ólíkum
tónlistastefnum og stílum.
„Mér finnst samt rappið skemmti
legast, mér finnst æði að rappa.“
Hann ætlar að bíða með að gefa út
f leiri slagara þar til að ástandið er
búið að skána hvað COVID varðar.
„Ég var búinn að bóka mig á
nokkra staði, eiginlega út um allt.
Svo þegar ég var að fara að byrja, þá
hófst önnur bylgja af COVID.“
Skrýtið að venjast frægðinni
Sýningar á nýjustu seríu Æði
kláruðust fyrir tæpum mánuði.
Bassi viðurkennir að það hafi verið
furðulegt að venjast frægðinni sem
fylgdi þátttöku hans í þáttunum til
að byrja með.
„Þetta hefur verið alveg ótrúlega
skrýtið. Ég fór til dæmis á Subway í
gær og sá bara stuttu síðar tvít: „Var
að afgreiða Bassa Maraj á Subway.“
Ég var bara „whaat!“. Þetta kemur
mér alltaf jafn mikið á óvart. Ég er
enn þá að gera allt eins og ég gerði
áður en þættirnir byrjuðu. En núna
veit fólk bara hver ég er,“ segir hann.
Bassi þvertekur fyrir það að hann
sé að leika einhvern karakter í þátt
unum.
„Þegar fólk hittir mig segir það oft
„Hey, þú ert bara svona.“
Hann er ekki með nein ákveð
in plön um hver næstu skref hjá
honum séu, nema að vera alltaf með
ferskar og nýjar hugmyndir.
„Ég vil fyrst og fremst vera að gera
hluti sem fólk á ekki von á að ég geri.
Halda fólki á tánum, aldrei gefa út
svipuð lög. Alltaf eitthvað nýtt,“
segir hann.
Engin fylling í rassinn
Bassi hefur verið ófeiminn við að
tala um lýtaaðgerðir sem hann
hefur farið í. Hann lét fylla í var
irnar fyrst fyrir tveimur árum og
gerir enn reglulega.
„Mér finnst allt í lagi að fólk lagi
það sem það er óöruggt með. Ég fer
alltaf til Evu Lísu hjá The Ward. Svo
er á planinu að láta gera eitthvað
meira.“
Hvað væri það mögulega, fyll-
ingar í rassinn?
„Nei, kast. Ég ætla ekki að vera
með „fat ass“. Mig langar aðeins
að breyta andlitinu. Ég er alveg
með stóran rass og ég er sko ekkert
hræddur við að segja frá því.“
Lagið Bassi Maraj er hægt að
nálgast á öllum helstu streymis
veitum. steingerdur@frettabladid.is
Fyrsta lag
Bassa hefur
svo sannarlega
slegið í gegn
á Spotify. Það
trónir nú í efsta
sæti á Íslandi.
MYND/AÐSEND
Bassi Maraj vill halda fólki á tánum
Bassi Maraj er óhræddur við að prufa nýja hluti og trónir fyrsta lag hans á toppi Spotify á Íslandi. Hann átti við-
burðaríka helgi þar sem tíst hans vöktu athygli. Hann segist hafa gert þau í algjörum galsa og engan viljað særa.
Bassi segist allt-
af ætla að halda
sé ferskum og
fólki á tánum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Bassi sló í gegn í sjónvarpsþáttun-
um Æði, með vinum sínum Patrick
Jaime og Binna Glee. MYND/STÖÐ 2
ÞETTA HEFUR
VERIÐ ALVEG
ÓTRÚLEGA
SKRÝTIÐ. ÉG
FÓR TIL
DÆMIS Á
SUBWAY Í GÆR
OG SÁ BARA
STUTTU
SÍÐAR TVÍT
„VAR AÐ
AFGREIÐA
BASSA MARAJ
Á SUBWAY“.
ÞETTA KEMUR
MÉR ALLTAF
JAFN MIKIÐ
AÐ ÓVART.
3 0 . M A R S 2 0 2 1 Þ R I Ð J U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ