Fréttablaðið - 30.03.2021, Side 45

Fréttablaðið - 30.03.2021, Side 45
STÖNDUM SAMAN UM VELFERÐ BARNA Barnaheill – Save the Children á Íslandi hvetja alla í samfélaginu til að hafa það sem er börnum fyrir bestu að leiðarljósi nú sem endranær vegna Covid-19 faraldursins. Börn þurfa öðrum fremur á umhyggju, stöðugleika og öryggi að halda. Barnaheill - Save the Children á Íslandi óska öllum landsmönnum gleðilegra páska. - Tökum tillit til foreldra. Atvinnulífið þarf að sýna því skilning að foreldrar þurfa að sinna börnum sínum þegar skólastarf er skert og börnin heima og geta því ekki skilað fullum vinnuafköstum á sama tíma. - Hlustum á börnin. Gefum börnum tækifæri til að tjá líðan sína og upplifun. Fræðum börn um aðstæður í samfélaginu út frá aldri þeirra, líðan og þroska. - Verum góð fyrirmynd. Börn skynja líðan okkar og viðhorf þeirra mótast út frá þeim viðbrögðum sem við sýnum. Mikilvægt er að fara eftir tilmælum Almannavarna hverju sinni svo börn læri um nauðsyn þess. - Sýnum samkennd og umhyggju í orði og verki. Aðstæður okkar eru mismunandi og mikilvægt er að sýna því skilning. - Tilkynnum til barnaverndar. Verum vakandi yfir aðstæðum sem börn búa við. Tilkynnum til barnaverndar í númerið 112 ef grunur leikur á að börn búi við slæm skilyrði, ofbeldi eða vanrækslu. Umhverfi barna getur versnað við þessar breyttu aðstæður.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.