Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.05.2021, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 01.05.2021, Qupperneq 4
99 milljarðar er verðmæti Síldarvinnslunnar. 300 sinnum er glaðloft skaðlegri gróðurhúsalofttegund en koldíoxíð. 4 ár var geimurinn í röngu ráðuneyti hér á landi. 100 dagar voru í gær frá því Biden tók við embætti. 70 prósent telja að auðvelt sé að útvega fíkniefni. TÖLUR VIKUNNAR 25.04.2021 TIL 01.05.2021 Þrjú í fréttum Lögfræðingur, formaður og fræðaþulur Linda Fanney Valgeirsdóttir lögfræðingur dró í vikunni lamb úr kind í sauð- burði. Þegar Linda mætti á næturvakt þessa umræddu nótt var ein kindin þegar borin. „Ég færði hana í stíu og vissi að hún væri að fara að bera öðru lambi þar sem hún var rauð- merkt,“ segir Linda. Hún setti því upp hanskann og sótti lambið inn í kindina. Síðar kom í ljós að kindin var þrílemba. Arndís Björg Sigurgeirsdóttir formaður Villikatta segir að allir geti keypt hesthús í hesthúsahverfinu Hlíðarþúfum í Hafnarfirði. Skorað hefur verið á bæjarfélagið að stöðva starfsemi Villikatta í einu húsanna. „Það var einu sinni þannig að bærinn og hestafélagið þurftu að samþykkja kaup, en svo var það tekið út.“ Arndís hafnar því að villi- kettirnir geti verið ógn við heilsu og öryggi hesta og hestamanna. Þórður Tómasson fræðaþulur að Skógum undir Eyjafjöllum varð hundrað ára í vikunni. „Ég átti þá hamingju að alast upp með gömlu fólki, meðal annars konu sem var fædd árið 1860, Arnlaug Tómasdóttir hét hún. Ég skrifaði eftir henni heila bók. Á þeim tíma var fjölbýlt mjög undir Eyjafjöllum og víða aldrað fólk á bæjum og það voru allir fúsir til að svara, þannig safnaðist mér fróð- leikur,“ segir Þórður. BJÓÐUM UPP Á 37” - 40” BREYTINGAPAKKA BREYTINGAVERKSTÆÐI ÍSBAND, SMIÐSHÖFÐA 5, SÉRHÆFIR SIG Í BREYTINGUM Á RAM PALLBIFREIÐUM. ÍSBAND UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI RAM 3500 BÍLL Á MYND RAM 3500 LARAMIE SPORT MEGACAB MEÐ 35” BREYTINGU VERÐ FRÁ 7.421.210 KR. ÁN VSK. 9.202.300 KR. M/VSK. UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 VERKALÝÐSMÁL „Það er ótrúlega margt sem mæðir á félagsfólki Efl- ingar og flest af því er til háborinnar skammar fyrir þetta auðuga sam- félag sem vill kenna sig við velferð,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, for- maður Ef lingar, sem eins og aðrir fagnar degi verkalýðsins í dag. Spurð hvaða málefni sé henni efst í huga á 1. maí nefnir Sólveig Anna að ómissandi starfsfólk í umönn- unarstörfum, félagsfólk Ef lingar, mest láglaunakonur, sem hafi unnið við ótrúlega erfiðar álagsaðstæður mjög lengi hafi ekki fengið neinar álagsgreiðslur. „Það virðist ekki vera einn einasti áhugi á því í þessu kerfi sem sannarlega er til í að sólunda peningum í hitt og þetta, að sýna þeim vináttu og virðingu og borga þeim álagsgreiðslur fyrir þeirra ómissandi vinnuafl,“ segir hún. Þá segir Sólveig Anna Eflingarfólk undrast að ekki sé vilji til þess hjá stjórnvöldum að fara í raunveru- lega atvinnuuppbyggingu, raun- verulega starfasköpun til þess að koma til móts við þá sem hafi verið án atvinnu mjög lengi. „Þarna væri til dæmis hægt að sjá fyrir sér, ef vilji hefði verið til þess hjá stjórnvöldum, að fara í upp- byggingu á félagslegu húsnæði. Með því slá tvær flugur í einu höggi, bæði búa til vinnu fyrir atvinnulaust fólk og taka á þeim fáránlega raunveru- leika sem blasir við félagsfólki Efl- ingar,“ segir formaðurinn. Sólveig Anna segir að þegar horft sé á húsnæðismarkaðinn á höfuð- borgarsvæðinu blasi við að búið sé að algróðavæða hann og búa til úr honum skrímsli og leikfang eigna- fólks. „Það er ekki nema helmingur félagsfólks Ef lingar sem er í eigin húsnæði. Það þýðir að fyrir þennan risastóra hóp af fólki fara því sem næst allar ráðstöfunartekjur í að tryggja þau mannréttindi sem öruggt húsnæði ætti auðvitað að vera,“ ítrekar hún. Einnig segir Sólveig Anna að þegar hún horfi á heilsufar félags- fólks Eflingar sé það enn ein sönn- unin á því hvaða status verka- og láglaunafólk hafi í okkar samfélagi þrátt fyrir það að vera ómissandi og hafa knúið hér áfram hagvöxt síðustu ára. „Andleg og líkamleg heilsa félags- fólks er ekki góð og risastór hópur félagsfólks Eflingar hefur þurft að neita sér um heilbrigðisþjónustu. Það er ótrúlegt að horfa á það að 57 prósent kvenna í Eflingu hafa þurft að neita sér um heilbrigðisþjónustu. Er þetta staðreynd sem segir okkur það að hér ríki einhver almenn vel- sæld eða að hér sé almennt svo vel komið fyrir vinnandi fólki að það sé best fyrir það að halda kjafti og halda sig til hlés? Ég held ekki,“ segir Sólveig Anna. Ekki er efnt til stórra samkoma í dag en skemmtidagskrá á vegum ASÍ og f leiri verður á RÚV í kvöld. Sjálf segist Sólveig Anna ætla að nota daginn til að hugleiða stöðu vinnandi fólks á Íslandi, líkt og á hverjum degi. „Ég ætla að leyfa mér að upplifa þá reiði sem býr í brjósti mér þegar ég skoða þær staðreyndir sem ég hef aðgang að er varða líf, heilsu og tilveru Eflingarfélagsfólks og fjöl- skyldna þess,“ heldur Sólveig Anna áfram. „Og ég ætla að blása sjálfri mér baráttuanda í brjóst og lofa sjálfri mér því, enn eina ferðina, að ég ætla að gera allt sem í mínu valdi stendur til þess að breyta þessu ástandi og til þess að berjast af öllum kröftum fyrir því að loksins renni upp sú stund að verka- og láglaunafólk á Íslandi fái það sem það á sannarlega inni hjá þessu samfélagi,“ segir for- maður Eflingar. gar@frettabladid.is Sólveig hyggst blása sjálfri sér baráttuanda í brjóst á 1. maí Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir stöðu félagsmanna til háborinnar skammar. Hún sakn- ar þess að stjórnvöld fari í raunverulega atvinnusköpun. Húsnæðismarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu sé leikfang eignafólks á sama tíma og nær allar ráðstöfunartekjur mjög margra renni í húsnæðiskostnað. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, íhugar stöðu verka- og láglaunafólks á 1. maí. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Ég ætla að blása sjálfri mér baráttu- anda í brjóst og lofa sjálfri mér því, enn eina ferðina, að ég ætla að gera allt sem í mínu valdi stendur til þess að breyta þessu ástandi. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar 1 . M A Í 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.