Fréttablaðið - 01.05.2021, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 01.05.2021, Blaðsíða 30
Elon Reeve Musk er fædd-ur árið 1971 og fagnar fimmtugsafmæli í júní næstkomandi. Hann ólst upp í Suður-Afríku þaðan sem faðir hans er upprunninn en móðir hans er kanadísk. Hann var ekki hár í loft- inu þegar hann var farinn að sýna mikla færni þegar kom að tölvum og frumkvæði, en hann seldi sinn fyrsta tölvuleik aðeins tólf ára gamall. Það var tölvutímarit sem greiddi honum 500 dollara fyrir leikinn og má segja að þar hafi tónninn að framtíð hans verið sleginn. Elon f luttist til heimalands móður sinnar sautján ára gamall til að stunda nám við Queen‘s-háskól- ann. Tveimur árum síðar færði hann sig í Pennsylvaníu-háskóla þaðan sem hann útskrifaðist með tvöfalda BA gráðu í hagfræði og eðlisfræði. Stefnan var svo tekin á frekara nám við Stanford-háskóla og f lutti hann því til Kaliforníu. Ekkert varð þó úr frekari göngu á menntaveginum því eftir aðeins tvo daga í Stanford var ljóst að hugur Elons stefndi í viðskipti á vefnum og ákvað hann að einbeita sér að þeim. Milljarðamæringur 28 ára Fyrsta fyrirtækið, vefhugbúnaðar- fyrirtækið Zip2 stofnaði hann með bróður sínum Kimbal og fjórum árum síðar var fyrirtækið keypt á 307 milljónir dollara. Elon var því orðinn 28 ára gamall milljarða- mæringur. Einhver hefði nú slakað aðeins á og notið auðsins en ekki Elon, sem stofnaði sama ár, 1999, vef bankann X.com. Hann samein- aðist svo Confinity árið eftir og úr varð fyrirtækið PayPal sem flestir þekkja í dag og eBay keypti árið 2002 á 1.5 milljarða dollara. Þá fór Elon að hugsa enn stærra og stofnaði f lugtækniframleiðslu- og geimferðafyrirtækið SpaceX þar sem hann er ekki aðeins framkvæmda- stjóri og tæknistjóri heldur var hann einnig yfirhönnuður við hönnun þriggja geimf lauga fyrirtækisins. Elon hefur alltaf litið svo á að mann- kynið þurfi að koma sér fyrir á fleiri stöðum en jörðinni, en til þess þyrfti að hanna ódýrari geimflaugar og einbeitir SpaceX sér að því. Tesla og taugatækni Hann er svo ekki síst þekktur fyrir aðkomu sína að Tesla Motors, sem framleiða raf bílana vinsælu Teslu þar sem hann hefur verið fram- kvæmdastjóri frá árinu 2008 og á 21 prósents hlut. Hann kom einnig að stofnun SolarCity, dótturfyrirtækis Teslu, sem framleiðir sólarrafhlöður. Undanfarin fimm ár hefur hann einnig komið að Neuralink, tauga- tæknifyrirtæki sem vinnur að þróun tækis sem ætlað er að koma fyrir í höfuðkúpunni til að hjálpa fólki sem orðið hefur fyrir taugaskaða með tölvutengingum við heila. Sonarmissir Elon býr í Austin, Texas, ásamt sambýliskonu sinni, indie-tón- listarkonunni Grimes eða Claire Boucher, en samband þeirra hófst um mitt ár 2018 og eiga þau saman eins árs soninn X Æ A-12 Musk sem þau kalla oftast X til styttingar. Fyrir átti Elon fimm syni með fyrstu eiginkonu sinni, Justine, en þau kynntust á háskólaárunum í Kanada. Frumburður þeirra, Nevada Alexander Mush, dó vöggu- dauða árið 2002, 10 vikna gamall, en f ljótlega fór Justine í frjósemis- meðferð sem gaf þeim tvíburasyni árið 2004 og þríburasyni árið 2006. Justine sagði frá missinum í grein sem hún skrifaði fyrir tímaritið Marie Claire. „Í sömu viku og eignir Elons fóru vel yfir 100 milljónir dollara, við söluna á PayPal, lagði Nevada sig, hann lá á bakinu eins og alltaf, og hætti að anda.“ Einþykki sérvitringurinn Elon Musk  Nafn Elons Musk kemur æ oftar fyrir í fréttaflutningi en frægðar- sól þessa sérlundaða viðskiptamógúls og sex barna föður rís sífellt hærra á meðan innistæður á bankareikningum hans hækka. Elon Musk fagnar fimmtugsafmæli í júní og er þegar orðinn ríkasti maður heims en eignir hans eru metnar á 185 milljarða dollara. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Elon Musk ásamt sambýliskonu sinni og barnsmóður, tónlistarkonunni Claire Boucher eða Grimes. Myndin er tekin árið 2018 þegar parið sást fyrst saman á Met-Gala kvöldinu í New York. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Elon hér ásamt fyrrverandi eiginkonu sinni Talulah Riley sem hann giftist tvisvar og skildi einnig í tvígang við, á góðri stundu í Playboy-höllinni í veislu hjá Hugh Hefner heitnum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Dramatískur skilnaður Skilnaður þeirra hjóna varð fjöl- miðlaefni, þvert á vilja Elons, sem alltaf hefur lagt mikið upp úr að halda einkalífi sínu utan þeirra. Á endanum skrifuðu fyrrum hjónin hvort sína greinina sem birtust í fjölmiðlum og sögðu frá sinni upp- lifun. Elon hóf grein sína í Business Insider á orðunum að frekar langaði hann að stinga sig í höndina með gaff li en ræða einkalíf sitt opin- berlega. Hann hélt áfram og sagði að í ljósi þess að slíkar lygar hefðu komið fram væri hann nauðbeygð- ur til að svara fyrir þær. Þar má segja að hæst hafi farið sagan um að hann hafi stungið af með ungri leikkonu, en eftir skiln- aðinn hóf Elon samband við ensku leikkonuna Talulah Riley. Þau giftu sig árið 2010, skildu árið 2012, giftu sig aftur árið 2013 en skildu svo endanlega árið 2016. Í greininni þvertók Elon fyrir að framhjáhald hefði verið ástæða skilnaðarins, hvorki af hans hálfu né Justine. Hann sagðist jafnframt vera umhyggjusamur faðir, synir hans njóti hans sönnu ástar og með þeim verji hann öllum frítíma sínum. Synirnir fimm frá fyrsta hjónaband- inu eru til jafns hjá foreldrum sínum og samkvæmt Elon sjálfum ferðast hann varla nema um fjölskylduferð sé að ræða. Ríkasti maður heims Í janúar síðastliðnum ýtti Elon Jeff Bezos, stofnanda Amazon, úr topp- sætinu yfir ríkustu einstaklinga heims. Eru eignir Elons metnar á 185 milljarða dollara. Það er hækk- andi hlutabréfaverð Teslu sem ýtti Elon enn ofar, en fyrirtækið er nú meira virði en Toyota, Volkswagen, Hyundai, GM og Ford samanlagt. Sjálfur birti Elon fréttina á Twitter með orðunum „En skrítið.“ En áður hafði hann skrifað færslu á miðilinn þar sem hann ræðir auðæfi sín: „Um það bil helmingi auðæfa minna er ætlað að aðstoða við lausnir vandamála á jörðinni, og um helmingur til að koma upp sjálf bærri borg á Mars til að tryggja framhald lífs (allra tegunda) ef jörðin skildi verða fyrir loftsteini eins og risaeðlurnar eða ef þriðja heimsstyrjöldin brýst út og við tor- tímum sjálfum okkur.“ Tugir milljóna fylgjenda Elon Musk er sér vitringur og hefur reglulega orðið fyrir gagn- rýni vegna afstöðu sinnar í hinum og þessum málum. Hann á í eins konar ástar-haturssambandi við samskiptamiðilinn Twitter þar sem í kringum 45 milljónir fylgjast með færslum hans sem ná oftar en ekki athygli fjölmiðla. Hann til- kynnir reglulega að hann sé hætt- ur að nota miðilinn en birtist svo aftur nokkrum dögum síðar. Twitt- er-færslur hans hafa oftar en ekki haft áhrif á verðbréfamarkaðinn og undir lok síðasta árs fékk hann yfir sig mikla gagnrýni fyrir að dreifa rökleysu um heimsfaraldur COVID-19. Dæmi um hvernig áhugasamir lesa í Twitter-færslur Elons er að Bitcoin hækkaði um 15 prósentu- stig á verðbréfamarkaðnum eftir að Elon bætti #bitcoin í Twitter upp- lýsingar sínar. Netmarkaðstorgið Etsy hækkaði svo um 3,5 prósent í janúar, nokkrum mínútum eftir að Elon birti „I kinda love Etsy,“ og sagði frá því að hann hefði þar keypt handprjónaðan „Marvin the Martian“-hjálm fyrir hundinn sinn. Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is 1 . M A Í 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.