Fréttablaðið - 01.05.2021, Page 30
Elon Reeve Musk er fædd-ur árið 1971 og fagnar fimmtugsafmæli í júní næstkomandi. Hann ólst upp í Suður-Afríku þaðan sem faðir hans
er upprunninn en móðir hans er
kanadísk. Hann var ekki hár í loft-
inu þegar hann var farinn að sýna
mikla færni þegar kom að tölvum
og frumkvæði, en hann seldi sinn
fyrsta tölvuleik aðeins tólf ára
gamall. Það var tölvutímarit sem
greiddi honum 500 dollara fyrir
leikinn og má segja að þar hafi
tónninn að framtíð hans verið
sleginn.
Elon f luttist til heimalands
móður sinnar sautján ára gamall til
að stunda nám við Queen‘s-háskól-
ann. Tveimur árum síðar færði
hann sig í Pennsylvaníu-háskóla
þaðan sem hann útskrifaðist með
tvöfalda BA gráðu í hagfræði og
eðlisfræði. Stefnan var svo tekin á
frekara nám við Stanford-háskóla
og f lutti hann því til Kaliforníu.
Ekkert varð þó úr frekari göngu á
menntaveginum því eftir aðeins
tvo daga í Stanford var ljóst að
hugur Elons stefndi í viðskipti á
vefnum og ákvað hann að einbeita
sér að þeim.
Milljarðamæringur 28 ára
Fyrsta fyrirtækið, vefhugbúnaðar-
fyrirtækið Zip2 stofnaði hann með
bróður sínum Kimbal og fjórum
árum síðar var fyrirtækið keypt á
307 milljónir dollara. Elon var því
orðinn 28 ára gamall milljarða-
mæringur. Einhver hefði nú slakað
aðeins á og notið auðsins en ekki
Elon, sem stofnaði sama ár, 1999,
vef bankann X.com. Hann samein-
aðist svo Confinity árið eftir og úr
varð fyrirtækið PayPal sem flestir
þekkja í dag og eBay keypti árið
2002 á 1.5 milljarða dollara.
Þá fór Elon að hugsa enn stærra og
stofnaði f lugtækniframleiðslu- og
geimferðafyrirtækið SpaceX þar sem
hann er ekki aðeins framkvæmda-
stjóri og tæknistjóri heldur var hann
einnig yfirhönnuður við hönnun
þriggja geimf lauga fyrirtækisins.
Elon hefur alltaf litið svo á að mann-
kynið þurfi að koma sér fyrir á fleiri
stöðum en jörðinni, en til þess þyrfti
að hanna ódýrari geimflaugar og
einbeitir SpaceX sér að því.
Tesla og taugatækni
Hann er svo ekki síst þekktur fyrir
aðkomu sína að Tesla Motors, sem
framleiða raf bílana vinsælu Teslu
þar sem hann hefur verið fram-
kvæmdastjóri frá árinu 2008 og á 21
prósents hlut. Hann kom einnig að
stofnun SolarCity, dótturfyrirtækis
Teslu, sem framleiðir sólarrafhlöður.
Undanfarin fimm ár hefur hann
einnig komið að Neuralink, tauga-
tæknifyrirtæki sem vinnur að þróun
tækis sem ætlað er að koma fyrir í
höfuðkúpunni til að hjálpa fólki sem
orðið hefur fyrir taugaskaða með
tölvutengingum við heila.
Sonarmissir
Elon býr í Austin, Texas, ásamt
sambýliskonu sinni, indie-tón-
listarkonunni Grimes eða Claire
Boucher, en samband þeirra hófst
um mitt ár 2018 og eiga þau saman
eins árs soninn X Æ A-12 Musk sem
þau kalla oftast X til styttingar.
Fyrir átti Elon fimm syni með
fyrstu eiginkonu sinni, Justine, en
þau kynntust á háskólaárunum
í Kanada. Frumburður þeirra,
Nevada Alexander Mush, dó vöggu-
dauða árið 2002, 10 vikna gamall,
en f ljótlega fór Justine í frjósemis-
meðferð sem gaf þeim tvíburasyni
árið 2004 og þríburasyni árið 2006.
Justine sagði frá missinum í grein
sem hún skrifaði fyrir tímaritið
Marie Claire.
„Í sömu viku og eignir Elons fóru
vel yfir 100 milljónir dollara, við
söluna á PayPal, lagði Nevada sig,
hann lá á bakinu eins og alltaf, og
hætti að anda.“
Einþykki
sérvitringurinn
Elon Musk
Nafn Elons Musk kemur æ oftar fyrir í fréttaflutningi en frægðar-
sól þessa sérlundaða viðskiptamógúls og sex barna föður rís sífellt
hærra á meðan innistæður á bankareikningum hans hækka.
Elon Musk fagnar fimmtugsafmæli í júní og er þegar orðinn ríkasti maður heims en eignir hans eru metnar á 185 milljarða dollara. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Elon Musk ásamt sambýliskonu sinni og barnsmóður, tónlistarkonunni
Claire Boucher eða Grimes. Myndin er tekin árið 2018 þegar parið sást fyrst
saman á Met-Gala kvöldinu í New York. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Elon hér ásamt fyrrverandi eiginkonu sinni Talulah Riley sem hann giftist
tvisvar og skildi einnig í tvígang við, á góðri stundu í Playboy-höllinni í
veislu hjá Hugh Hefner heitnum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Dramatískur skilnaður
Skilnaður þeirra hjóna varð fjöl-
miðlaefni, þvert á vilja Elons, sem
alltaf hefur lagt mikið upp úr að
halda einkalífi sínu utan þeirra. Á
endanum skrifuðu fyrrum hjónin
hvort sína greinina sem birtust í
fjölmiðlum og sögðu frá sinni upp-
lifun. Elon hóf grein sína í Business
Insider á orðunum að frekar langaði
hann að stinga sig í höndina með
gaff li en ræða einkalíf sitt opin-
berlega. Hann hélt áfram og sagði
að í ljósi þess að slíkar lygar hefðu
komið fram væri hann nauðbeygð-
ur til að svara fyrir þær.
Þar má segja að hæst hafi farið
sagan um að hann hafi stungið af
með ungri leikkonu, en eftir skiln-
aðinn hóf Elon samband við ensku
leikkonuna Talulah Riley. Þau giftu
sig árið 2010, skildu árið 2012, giftu
sig aftur árið 2013 en skildu svo
endanlega árið 2016. Í greininni
þvertók Elon fyrir að framhjáhald
hefði verið ástæða skilnaðarins,
hvorki af hans hálfu né Justine.
Hann sagðist jafnframt vera
umhyggjusamur faðir, synir hans
njóti hans sönnu ástar og með þeim
verji hann öllum frítíma sínum.
Synirnir fimm frá fyrsta hjónaband-
inu eru til jafns hjá foreldrum sínum
og samkvæmt Elon sjálfum ferðast
hann varla nema um fjölskylduferð
sé að ræða.
Ríkasti maður heims
Í janúar síðastliðnum ýtti Elon Jeff
Bezos, stofnanda Amazon, úr topp-
sætinu yfir ríkustu einstaklinga
heims. Eru eignir Elons metnar á
185 milljarða dollara. Það er hækk-
andi hlutabréfaverð Teslu sem ýtti
Elon enn ofar, en fyrirtækið er nú
meira virði en Toyota, Volkswagen,
Hyundai, GM og Ford samanlagt.
Sjálfur birti Elon fréttina á Twitter
með orðunum „En skrítið.“ En áður
hafði hann skrifað færslu á miðilinn
þar sem hann ræðir auðæfi sín:
„Um það bil helmingi auðæfa
minna er ætlað að aðstoða við
lausnir vandamála á jörðinni, og
um helmingur til að koma upp
sjálf bærri borg á Mars til að tryggja
framhald lífs (allra tegunda) ef
jörðin skildi verða fyrir loftsteini
eins og risaeðlurnar eða ef þriðja
heimsstyrjöldin brýst út og við tor-
tímum sjálfum okkur.“
Tugir milljóna fylgjenda
Elon Musk er sér vitringur og
hefur reglulega orðið fyrir gagn-
rýni vegna afstöðu sinnar í hinum
og þessum málum. Hann á í eins
konar ástar-haturssambandi við
samskiptamiðilinn Twitter þar
sem í kringum 45 milljónir fylgjast
með færslum hans sem ná oftar en
ekki athygli fjölmiðla. Hann til-
kynnir reglulega að hann sé hætt-
ur að nota miðilinn en birtist svo
aftur nokkrum dögum síðar. Twitt-
er-færslur hans hafa oftar en ekki
haft áhrif á verðbréfamarkaðinn
og undir lok síðasta árs fékk hann
yfir sig mikla gagnrýni fyrir að
dreifa rökleysu um heimsfaraldur
COVID-19.
Dæmi um hvernig áhugasamir
lesa í Twitter-færslur Elons er að
Bitcoin hækkaði um 15 prósentu-
stig á verðbréfamarkaðnum eftir
að Elon bætti #bitcoin í Twitter upp-
lýsingar sínar. Netmarkaðstorgið
Etsy hækkaði svo um 3,5 prósent
í janúar, nokkrum mínútum eftir
að Elon birti „I kinda love Etsy,“
og sagði frá því að hann hefði þar
keypt handprjónaðan „Marvin the
Martian“-hjálm fyrir hundinn sinn.
Björk
Eiðsdóttir
bjork@frettabladid.is
1 . M A Í 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð