Fréttablaðið - 01.05.2021, Page 33

Fréttablaðið - 01.05.2021, Page 33
ALLT K Y N N I NG A R B L A Ð LAUGARDAGUR 1. maí 2021 Ástríða fyrir fagurri hönnun og fallegum húsmunum varð til þess að Elísabet Helgadóttir opnaði hönnunar- og sýningarrýmið Vest. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Mublur til lífstíðar hjá Vest Langar þig að prófa að sofa 120 dásamlegar nætur á heilsudýnu eða dýnu sem eykur djúp- svefn um 45 prósent? Fá að máta draumamubluna þína heima? Kíktu þá í Vest, þar sem heimsþekkt hönnun hús- og listmuna og einstakar svefnlausnir eru í hávegum hafðar. 2 Íslensk gæðahráefni fyrir þig Heilsan er dýrmætust www.eylif.is Gleðilegan 1. maí Fyrsti maí er alþjóðlegur baráttu- dagur verkalýðsins. Hann á upphaf sitt að rekja allt til ársins 1889 en þá hittust fulltrúar alþjóðasam- taka kommúnista á ráðstefnu í París, í tilefni þess að hundrað ár væru liðin frá því að Parísarbúar tóku Bastilluna. Á þeirri ráð- stefnu var ákveðið að gera 1. maí að baráttudegi hreyfingarinnar. Þessi tiltekni dagur var einnig valinn meðal annars til að minnast blóðbaðsins í Haymarket í Chicago í Bandaríkjunum þremur árum áður. Frídagur síðan 1966 Á Íslandi var fyrsta kröfugangan á fyrsta maí gengin 1923 og hefur dagurinn verið löggiltur frídagur á Íslandi síðan 1966. Opinberir starfsmenn hér á landi tóku þó ekki þátt í göngunni fyrr en 20 árum síðar eða 1. maí 1943 eftir að Bandalag starfs- manna ríkis og bæja (BSRB) hafði verið stofnað. Við stofnun BSRB fagnaði ritstjóri Alþýðublaðsins tímamótunum enda taldi hann stöðu opinberra starfsmanna fram að því ekki hafa verið öfundsverða. „Opinberir starfsmenn eiga við mjög bág kjör að búa. Réttur þeirra er sáralítill. Um langan tíma hefir þeim verið skammtað án þess að hafi verið spurðir til ráða. Og starfsmenn ríkisins mega ekki beita hinu eina vopni [verkfalls- vopninu], sem verkalýðurinn hefir að minnsta kosti hingað til getað gripið til, þegar í nauðir rekur. Það bíður því mikið starf hins nýstofnaða bandalags opinberra starfsmanna – og í því starfi nýtur það samúðar og stuðnings allra samtaka alþýðunnar á Íslandi.“ Heimild: sameyki.is thordisg@frettabladid.is Frá kröfugöngu í Reykjavík 1. maí.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.