Fréttablaðið - 01.05.2021, Blaðsíða 45
— UMSÓKNIR
Upplýsingar um starfið veitir Kristján Skarphéðinsson
ráðuneytisstjóri atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins
á netfanginu anr@anr.is.
Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Umsókn skal vera skrifleg og henni skal fylgja ítarleg ferilskrá
og kynningarbréf á íslensku þar sem gerð er grein fyrir hæfni
viðkomandi til að gegna embættinu. Umsókn skal skila rafrænt
á netfangið anr@anr.is eigi síðar en 18. maí 2021.
Umsóknir þar sem óskað er nafnleyndar verða ekki teknar til greina.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
— STARFSSVIÐ
Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra. Ráðherra
setur ráðuneytisstjóra erindisbréf þar sem kveðið skal á um starfs-
svið og starfsskyldur, sbr. 2. mgr. 18. gr. laga um Stjórnarráð Íslands nr.
115/2011. Starfssvið og starfsskyldur ráðuneytisstjóra eru víðtækar og
ber ráðuneytisstjóri fjárhagslega og faglega ábyrgð gagnvart ráðherra
á starfsemi ráðuneytis.
— MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, embættis- eða meistarapróf
er skilyrði.
• Leiðtogahæfni og umfangsmikil stjórnunarreynsla.
• Þekking og reynsla á sviði reksturs og starfsmannahalds.
• Þekking á íslensku atvinnulífi.
• Reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur.
• Færni í mannlegum samskiptum.
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
• Mjög góð íslensku- og enskukunnátta.
• Kunnátta í einu Norðurlandamáli æskileg.
fiskveiðisamninga við erlend ríki. Í ráðuneytinu starfar samhentur hópur
70 starfsmanna með fjölbreytta menntun, reynslu og þekkingu.
Í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu eru sjö skrifstofur, þær eru
skrifstofa ráðuneytisstjóra, skrifstofa sjávarútvegsmála, skrifstofa
landbúnaðarmála, skrifstofa matvælaöryggis og fiskeldis, skrifstofa
ferðamála og nýsköpunar, skrifstofa orku, iðnaðar og viðskipta og skrif-
stofa fjárlaga, rekstrar og innri þjónustu. Ráðuneytisstjóri samhæfir
starfsemi ráðuneytisins og miðlar, ásamt skrifstofustjórum, upplýsing-
um til ráðherra.
— RÁÐNING OG KJÖR
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skipar í embættið til fimm ára
frá og með 1. júlí 2021, sbr. ákvæði laga nr. 115/2011 og laga um réttindi
og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996 þegar skýrsla nefndar sem
metur hæfni umsækjenda, sbr. 19. gr. laga nr. 115/2011, liggur fyrir.
Um laun og önnur starfskjör fer samkvæmt ákvæði til bráðabirgða
í lögum nr. 60/2018.
Auglýst er laust til umsóknar embætti ráðuneytisstjóra
í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.
Tveir ráðherrar fara með yfirstjórn málefna ráðuneytisins og bera
þeir ábyrgð á öllum stjórnarframkvæmdum þess. Allar embættis-
færslur starfsmanna eru gerðar í umboði ráðherra. Helstu verkefni
sem heyra undir ráðuneytið eru skipulag, rekstur og starfsmanna-
hald ráðuneytisins, málefni sjávarútvegs, landbúnaðar, fiskeldis, mat-
vælaöryggis, orku, iðnaðar, viðskipta, ferðaþjónustu, nýsköpunar ofl.
Þá sinnir ráðuneytið fjölbreyttu erlendu samstarfi og fer með gerð
Ráðuneytisstjóri
atvinnuvega-
og nýsköpunarráðuneytis