Fréttablaðið - 07.05.2021, Síða 8

Fréttablaðið - 07.05.2021, Síða 8
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Samt ráfar fólk enn um ganga stórverslana með grímu, langt frá næsta manni, af því að reglurnar segja það. Við höfum okkar skýru hugsjónir og stefnu. Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Landsfundur Vinstri grænna hefst í dag og það er óhætt að segja að bjart sé yfir þeim fundi. Hreyfingin hefur leitt ríkisstjórn á einhverj­ um mestu umbrotatímum í sögu okkar og farist svo vel úr hendi að eftir er tekið. Fjöldi fólks vill verða fulltrúi hreyfingarinnar á Alþingi og gefur kost á sér í forvölum og nýir félagar hópast að. Skyldi engan undra. Undir forystu okkar höfum við komið á umbótamálum. Þriggja þrepa skatt­ kerfi sem léttir undir með þeim lægst launuðu og stuðlar betur að jöfnuði fest í sessi. Aðkoma ríkis­ ins að lífskjarasamningunum tryggð. Uppbygging heilsugæslunnar og samþykkt geðheilbrigðis­ áætlun. Mikilvæg náttúrusvæði friðlýst og stór skref stigin í að draga úr losun. Fjölmörg þjóðþrifa­ mál hafa raungerst á þessu kjörtímabili. Þá hefur Vinstrihreyfingin – grænt framboð sýnt hve vel hún er fallin til að leiða ríkisstjórn. Við erum tilbúin til þess að gera það áfram. Við höfum okkar skýru hugsjónir og stefnu, erum ekki í vandræðum með eigin sjálfsmynd, getum því full sjálfstrausts komið inn í samstarf með öðrum flokkum á okkar eigin forsendum. Sýnum ábyrgð þegar kemur að því að leiða mál til lykta. Ég fór fyrst á landsfund hjá VG í árdaga hreyf­ ingarinnar, gekk í hana strax í upphafi. Þá ein­ kenndi spenningur og nýjabrum okkur öll; við vorum laus undan eilífu þvargi um leiðir og form, gátum farið að ræða markmið og stefnu. Ég skynja sama spenning núna og að einhverju leyti sama nýjabrum. Við eigum forsætisráðherra sem er lang­ öflugasti stjórnmálamaður landsins og meirihluti landsmanna er sammála okkur um að eigi að vera forsætisráðherra áfram. Ég hlakka til landsfundarins. Sjálfur hef ég, sem annar hópstjóra, unnið að stefnu um loftslagsmál og náttúru. Mest hlakka ég samt til að hlusta á félagana. Stjórnmálaf lokkar eru nefnilega sam­ félög þar sem hver rödd skiptir máli. Alþingis­ menn hafa það þjónandi hlutverk að hlýða á þær raddir. Við erum tilbúin Kolbeinn Óttarsson Proppé þingmaður Vinstri grænna Opinberun Hannesar Allt sæmilega vel lesið og upp- lýst fólk veit að talan 42 geymir svarið við hinni endanlegu spurningu um lífið, alheiminn og allt. Þetta er þó afstætt eins og kristallaðist í því hvernig andstæðuparið frjálshyggju- prófessorinn Hannes Hólm- steinn Gissurarson og sósíal- istinn Gunnar Smári Egilsson minntust þess á Facebook að á þriðjudaginn voru liðin 42 ár síðan Margrét Thatcher varð forsætisráðherra Bretlands. „Þá urðu tímamót. Bretland reis úr dái. Hér er hún 1993 með Davíð Oddssyni, sem gerði svipaða byltingu á Íslandi og hún í Bret- landi,“ skrifaði Hannes. Sósíalískur draugabani Hjá Gunnari Smára kvað við allt annan tón en í annálum hans byrjaði Thatcher eftir þann 4. maí 1979 að „innleiða þar lausnir nýfrjálshyggjunnar; brjóta niður samtök almenn- ings, einkavæða og útvista opinberri þjónustu, selja almannaeigur, lækka skatta á hin ríku, skera niður velferðar- kerfið, auka álögur á vinnandi fólk, lækka örorku-, elli- og barnabætur og brjóta sam- félagið niður með öðrum hætti.“ Þá bætir Smári við að þótt hugmyndastefna Margrétar sé „komin á ruslahaug sögunnar“ þá velli hún áfram á Íslandi eins og afturgenginn draugur, sálar- laus og grimmur.“ toti@frettabladid.is Í upphafi heimsfaraldurs virtist skynsemi og meðalhóf ætla að ráða för hér á landi. Síðan þá hefur sú fornkveðna regla hins vegar orðið æ meira ríkjandi, að erfiðara virðist fyrir stjórn­lynd stjórnvöld – ekki bara á Íslandi heldur í f lestum öðrum ríkjum heims – að fara til baka þegar höft hafa einu sinni verið sett á. Framan af, þegar stjórnvöld og sóttvarnayfirvöld lögðu á það áherslu að frelsisskerðandi takmarkanir ættu ekki að vera meiri en ástæða væri til hverju sinni, var ekki talin ástæða til að fylgja ráðleggingum Alþjóðaheilbrigðis­ málastofnunarinnar um grímunotkun í fjölmenni og fullyrt að þær virkuðu ekki. Síðar breyttist sú afstaða, meðal annars að sögn vegna vísbendinga um að helsta smitleið veirunnar væri loftsmit fremur en snerting. Þegar leið á faraldurinn fóru stjórnvöld því að fikra sig að frekari grímunotkun. Fyrst þar sem ekki væri hægt að halda fjarlægð, en þegar smit voru í hámarki í svonefndri þriðju bylgju síðastliðið haust – sem var auðvitað í raun önnur bylgjan – var sett á almenn og íþyngjandi regla um grímunotkun sem enn í dag hefur haldist óbreytt. Sú ákvörðun að grípa til víðtækrar grímuskyldu kom líklega ekki síst til vegna þrýstings og ótta, fremur en endilega af vísindalegum ástæðum. Eflaust trúa því fáir í dag að notkun andlitsgríma, óháð því hvort hægt sé að tryggja tveggja metra fjarlægð milli fólks, breyti nokkru um útbreiðslu faraldursins hér á landi. Í stað þess að vera þýðingarmikil sóttvarnaráð­ stöfun er hún frekar orðin að einhvers konar táknmynd þess að fólk skuli á þessum leiðinlegu tímum hlýða gagnrýnislaust eins og hundar – og grímunotkun sé því áminning um hvernig við eigum að haga okkur við hin ýmsu tækifæri. Það er staða sem má ekki festast í sessi. Í lok síðasta mánaðar kynntu stjórnvöld aflétting­ aráætlun, vörðurnar fjórar, sem tengja afléttingu tak­ markana innanlands við markmið um bólusetningu. Það var stórt skref og sendir þau mikilvægu skilaboð að eðlilegt líf sé handan við hornið. Þannig er meðal annars áætlað að þegar helmingur þjóðarinnar hefur fengið fyrri sprautuna, í lok maí, megi allt að þúsund manns koma saman og nálægðarregla verði færð niður í einn metra. Í seinni hluta júní, þegar 75 prósent hafa fengið bólusetningu, standi síðan til að afnema allar takmarkanir. Það sem sætir hins vegar furðu er að sóttvarnalæknir, sem heilt yfir hefur staðið vel í erfiðu hlutverki, segir að engar áætlanir séu á sama tíma til staðar um afléttingu grímuskyldunnar. Nú er faraldurinn ekki aðeins í rénun heldur er búið að bólusetja bókstaflega alla þá sem eru í áhættuhópi, og mun fleiri til. Samt ráfar fólk enn um ganga stór­ verslana með grímu, langt frá næsta manni, af því að reglurnar segja það, en ekki af því að það þjóni neinum raunverulegum tilgangi. Það er eins og gleymst hafi að fella niður þessi höft, því aðstæður eru allt, allt aðrar en þegar þau voru sett á. Nú skín sólin, landið er tekið að rísa og stjórnvöld hafa lofað verulegum tilslökun­ um innanlands. Væri ekki eðlilegt, og ekki síst tákn­ rænt, að fella niður grímuskyldu í næstu afléttingum, sem skammt eru undan, og sýna það í orði og á borði að samstaða þjóðarinnar hefur skilað árangri og að nú sé það versta yfirstaðið – og vel það? Fellum grímuna  7 . M A Í 2 0 2 1 F Ö S T U D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.