Fréttablaðið - 07.05.2021, Page 14
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn@
torg.is
Ferðasumarið mikla er fram
undan og margir eru byrjaðir að
undirbúa hvert skal halda. Sumir
eru meira að segja búnir að setja
saman draumafríið. Kristín
Stefánsdóttir, oftast kennd við
NoName, sem er menntaður
snyrti-og förðunarmeistari og
rekur litla dekurverslun á Garða-
torgi 4, NN Studio, elskar að
ferðast og njóta með fjölskyldu
sinni.
Kristín er gift Lárusi Ástvaldssyni
jarðfræðingi og eiga þau saman tvo
drengi og aðra tvo úr fyrra goti eins
og Kristín segir sjálf. „Minn maður
sem situr nú daglega og horfir með
miklum áhuga á gosið í Fagradal
enda mikill áhugamaður um nátt-
úruundur veraldar eins og eldgos.
Við hjónin elskum að ferðast bæði
hérlendis og erlendis og gerum
mikið af því að fara í stuttar
helgarferðir og kynnast því flotta
úrvali sem íslensk flóra hefur upp
á að bjóða í gistingu og mat,“ segir
Kristín og er full tilhlökkunar fyrir
sumrinu.
Mjög skipulögð og planar
sumarfríið langt fram í tímann
Kristín og fjölskyldan eru búin að
ákveða hvernig þau ætlar að verja
sumarfríinu í ár og er allt niður-
neglt. „Það er planað eins og allt á
þessu heimili. Við plönum sumar-
fríin ár fyrir fram, mætti halda
að við værum dönsk, hugsum
allt vel út og pöntum það sem
þarf að panta til að allt sé klárt.
Stundum förum við fyrirvaralaust
og fylgjum þá veðrinu með tjald-
vagninn og eltum sólina.“
Hvert er förinni heitið í ár?
„Núna ætlum við að fara austur
og sjá Stuðlagil sem við náðum
ekki í fyrrasumar og vonum að
allir Íslendingarnir séu búnir að
fara, þannig að við verðum ein að
skoða. Einnig ætlum við að fara á
Borgarfjörð eystri og skoða lunda-
byggðina sem orðin er fræg um
allan heim. Við ætlum að heilsa
nokkrum lundum og bæta í lunda-
myndasafnið en í fyrra fórum við
að Látrabjargi í geggjuðu veðri og
horfðumst næstum því í augu við
þessa fallegu fugla. Svo er annar
staður sem okkur hefur lengi
langað til að sjá áður en túristarnir
Upplifunin á Látrabjargi stóð upp úr
Kristín Stefáns-
dóttir hefur
mikla ánægju af
því að ferðast
um landið og er
búin að skipu-
leggja fríið í
sumar innan-
lands. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/VALLI
Fjölskyldan
á Látrabjargi
í fyrrasumar.
MYND/AÐSEND
Fuglalífið er fjölbreytt í Látrabjargi.
flykkjast inn í landið, en það er
Kárahnjúkavirkjun og við stefnum
á það.“
Gaman að kynnast nýrri matar-
menningu og öðruvísi stöðum
Hvað finnst ykkur skipta mestu
máli að hafa til staðar þegar þið
eruð að ferðast innanlands?
„Það sem við leitumst alltaf eftir
er að upplifa og kynnast einhverju
nýju hverju sinni, skoða nýja og
áhugaverða staði sem skilja eftir
sig minningar. Við höfum ferðast
með sonum okkar frá unga aldri og
enn eru þeir að ferðast með okkur,
orðnir 16 og 18 ára gamlir, sem eru
algjör forréttindi og við njótum
á meðan er. Einnig finnst mér
ekkert skemmtilegra en að fara
á ólíka veitingastaði og kynnast
nýrri matarmenningu og öðruvísi
stöðum.
Ég leita gjarnan uppi svona lókal
staði og kaffihús alls konar sem
mörg hver eru svo kósí, menn-
ingarleg og hugmyndaflugið stór-
kostlegt hvað varðar innréttingar,
matseðla og drykki.“
Brakandi blíða í Flókalundi
Kristín og fjölskyldan nutu þess að
ferðast innanlands í fyrrasumar
og eiga góðar minningar frá þeim
ferðum. „Síðasta sumar tókum við
Vestfirðina að hluta til og gistum
í Flókalundi í brakandi blíðu og
yfir 24 stiga hita og laus við allt
lúsmý. Núna er staðan þannig að
ég verð að velja vel staði miðað við
lúsmýs-spár. Ég er ein af þeim sem
bókstaflega eru étin lifandi ef ég
lendi í bitmýi og forðast ég nú til
dæmis staði eins og Laugarvatn og
Suðurland á versta tímanum.“
Að sögn Kristínar var ferðasum-
arið í fyrra alveg yndislegt í alla
staði og henni fannst upplifunin á
Látrabjargi standa upp úr. „Það var
æðislegt að sjá Látrabjarg og fugla-
lífið þar, fengum svo gott veður og
tókum góðan tíma í að skoða með
næstum því enga túrista, nóg pláss
til að taka myndir og njóta.“
Er einhver staður sem þér finnst
vera fallegasti staðurinn á landinu,
sem heillar þig mest?
„Mér finnst svo margir staðir
fallegir að ég get ekki nefnt einn
stað sérstaklega, sé alltaf eitthvað
nýtt og fallegt á hverjum stað og
finnst síðasti staður alltaf sá flott-
asti þangað til við komum á þann
næsta. Samt er einn staður sem
mér finnst eins og póstkortastaður,
það er Kirkjubæjarklaustur, svo
gaman að ganga að Systrafossi og
skoða en þar er til dæmis hæsta tré
á Íslandi, yfir 27 metrar.“
Jökulsárlón ævintýri líkast
Aðspurð segir Kristín að þau hafi
verið dugleg að nýta sér tilboð sem
voru á gistingu síðasta sumar og
það hafi komið sér vel.
„Við vorum ein af mörgum sem
nýttu sér tilboð Fosshótelanna og
gistum á fjölmörgum hótelum yfir
sumartímann. Það sem stóð hæst
upp úr er tími okkar á Fosshóteli
Jökulsárlóni sem er ævintýri líkast,
staðsetningin, maturinn og hótelið
sjálft, eitthvað sem við tölum um
oft og munum vel eftir.“
Við plönum sum-
arfríin ár fyrir-
fram, mætti halda að við
værum dönsk, hugsum
allt vel út og pöntum
það sem þarf að panta til
að allt sé klárt.
Á undanförnum árum hefur
verið mikil uppbygging í ferða-
þjónustu í Dalabyggð. Þar eru
verðlaunaðir gististaðir, áhuga-
verðir veitingastaðir og afþrey-
ing fyrir unga sem aldna.
Jóhanna María Sigmundsdóttir,
verkefnastjóri atvinnu-, markaðs-
og ferðamála hjá Dalabyggð, segir
að Dalabyggð sé fullkomin fyrir
ferðalög þar sem ætlunin sé að
njóta en ekki þjóta.
„Hægt er að ferðast inn dali og
út með ströndum þar sem nátt-
úran er ævintýri líkust og dýralíf
fjölbreytt,“ segir hún.
Jóhanna María segir að þegar
kemur að gistingu ættu allir að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi í
Dalabyggð.
„Hérna er hægt að fá gistingu á
gistiheimilum jafnt sem hótelum
eða leigja hús eða sumarhús
og svo eru nokkur tjaldsvæði í
sveitarfélaginu. Allt hvað hentar
og eftir því hvort fólk vill vera
utan eða innan þéttbýlis,“ segir
hún.
„Í Dalabyggð eru einnig verð-
launaðir gististaðir, hönnunin á
Dröngum hlaut Hönnunarverð-
laun Íslands 2020 og hönnun á
Nýp hlaut AIA UK Design Awards
verðlaunin 2020 í f lokki Small
Project. Drangar eru á Skógar-
strönd en Nýp er á Skarðsströnd.“
„Við erum landbúnaðarhérað
og hérna er því mikið um gistingu
í dreifbýlinu ásamt því að hægt
er að heimsækja Rjómabúið að
Erpsstöðum og kíkja í fjósið og
kaupa sér ís og annað góðgæti. Þá
er líka hægt að kíkja í dýragarðinn
á Hólum til að komast í meiri
snertingu við dýrin. Svo er vinsælt
að skella sér í hestaferð með Dala-
hestum eða bara fá að eiga sam-
verustund með hrossunum,“ segir
Jóhanna María.
Matgæðingar þurfa ekki að
örvænta á ferð um Dalabyggð að
sögn Jóhönnu Maríu. Hvort sem
þeir vilja nálgast vörur beint frá
býli, meðal annars á Erpsstöðum,
eða njóta veitinga hjá Dalahyttum
eða sveitasetrinu Vogi. Þá verður
enginn svikinn af heimsókn á
Dalakot eða Veiðistaðinn í Búðar-
dal.
Jóhanna María segir heima-
menn vera duglega að nýta sér
sundlaugina á Laugum. „Þar er
hægt að eiga góðan dag með fjöl-
skyldunni eða bara slaka á í pott-
unum eftir ferðalagið,“ segir hún.
Í Dölum er af nógu að taka fyrir
söguþyrsta ferðamenn en þar eru
söguslóðir Laxdæla sögu og hægt
er að feta slóðir einstaka sögu-
persóna eins og Auðar djúpúðgu,
Geirmundar heljarskinns eða
Eiríks rauða.
„Heimsókn að Eiríksstöðum er
ævintýri líkust þar sem hægt er að
heyra sögur við eldstæðið og hand-
leika vopn og aðra forna muni,“
segir Jóhanna María.
Síðasta sumar var Vínlands-
setrið opnað í Búðardal. Þar er að
sögn Jóhönnu Maríu einstaklega
áhugaverð og metnaðargjörn
sýning um landafundi Eiríks rauða
og Leifs heppna á Grænlandi, í
Kanada og Bandaríkjunum. Hægt
er að fá sér létta hressingu fyrir eða
eftir sýninguna á neðri hæðinni.
Heimsókn í Dalina fyrir alla
Jóhanna María við myndverk eftir Hallstein Sigurðsson til minningar um
Sturlu Þórðarson lögmann og sagnaritara sem bjó í Dölunum. MYND/AÐSEND
Hægt er að ferðast
inn dali og út með
ströndum þar sem
náttúran er ævintýri
líkust og dýralíf fjöl-
breytt.
Jóhanna María Sigmundsdóttir
4 kynningarblað A L LT 7. maí 2021 FÖSTUDAGUR