Fréttablaðið - 07.05.2021, Qupperneq 16
Landhótel í Landsveit er nýtt
og glæsilegt hótel mitt í ævin-
týralandi Rangárþings. Þar er
hægt að njóta þess besta sem
landið gefur, dekurs og dásemda
hótellífs, og einstakrar náttúru-
upplifunar allt um kring.
„Landhótel er fjögurra stjörnu,
heillandi og glæsilega hannað
sveitahótel með 69 herbergjum og
í aðeins einnar stundar aksturs-
fjarlægð frá Reykjavík,“ segir
Dýrleif Guðmundsdóttir, markaðs-
stjóri Landhótels, sem stendur í
ægifagurri Landsveitinni.
Þaðan er stutt í allar sunnlensk-
ar áttir og dásemdin ein að njóta
dekurs, góðs matar og hvíldar í
faðmi hótelsins á milli þess sem
náttúra og menningarverðmæti
í nágrenninu og nærsveitum eru
kannaðar í íslenska sumrinu.
„Landhótel tengir gesti sína
við undur Íslands. Frá hótelinu er
víðfeðmt og undurfagurt útsýni til
fjalla og jökla. Þar trónir hæst og
næst okkur eldfjallið heimsfræga og
formfagra Hekla, Búrfell er nánast í
bakgarðinum og bæði Eyjafjallajök-
ull og Tindfjallajökull eru í návígi og
gleðja augað og andann. Á góðum
degi sést líka vel til Vestmannaeyja
frá efstu hæð hótelsins og þegar
norðurljósin æða yfir okkur er það
stórfengleg upplifun því engin
sjónmengun er í sveitasælunni á
Landhóteli,“ segir Dýrleif.
Friðsælt og fagurt sveitalíf
Það tilheyrir sveitakyrrð nátt-
úrunnar að á Landhóteli heyrist
ekkert nema niður náttúrunnar.
„Hótelið státar af fullkominni
hljóðvist í öllum vistarverum og
hvergi heyrist bergmál. Því geta
gestir rætt saman án skarkala eða
truflunar frá öðrum, eins og þegar
notið er veitinga og afslöppunar í
hlýlegum sölum hótelsins,“ upp-
lýsir Dýrleif á glæsilegu Landhótel-
inu sem er byggt úr náttúrulegum
efnivið.
„Herbergin eru stærri en gengur
og gerist; standard herbergi eru
frá 23 til 25 fermetrum upp í 30
fermetra fjölskylduherbergi. Öll
eru þau búin vönduðum Marriot
Standard-rúmum, lúxus-sængur-
fatnaði og stóru baðherbergi
með sturtu. Gott sjónvarp er í
öllum herbergjum sem og frítt
Wi-Fi um allt hótelið,“ segir Dýrleif.
Fyrir utan dýrðarlíf á herbergj-
um Landhótels er hægt að njóta
kvöldsólar og kokteila á fallegum
hótelbarnum, fara í stórt og gott
sánabað og gera vel við sig í mat og
drykk á veitingastaðnum.
„Við tökum líka vel á móti ráð-
stefnugestum og erum með tvo
glæsilega og vel útbúna fundar-
sali, einn fjórtán manna og hinn
60 manna. Þeir nýtast einnig fyrir
veisluhald og þá er upplagt að
njóta veitingastaðarins okkar líka.“
Náttúruperlur við hvern fót
Matsalurinn á Landhóteli er stór,
bjartur og með stórkostlegt útsýni
yfir iðjagrænt og lifandi sveitalíf
á bæjunum í kring, sem og eina
fegurstu fjallasýn sem um getur.
„Gestir og gangandi geta komið
til að njóta gómsætra og girni-
legra rétta á veitingastaðnum
okkar og dáðst um leið að stór-
fenglegri náttúrufegurð landsins.
Við verslum öll aðföng úr nær-
sveitinni sem tryggir ferskan og
góðan mat beint frá bónda.“
Landhótel er sjálfkjörinn
dvalarstaður fyrir fjölskyldur,
pör og vinahópa sem vilja njóta
íslensks sumars í námunda við
angan af nýsleginni töðu og fugla-
söng í íslenskri sveit á milli þess
sem farið er á milli spennandi
áfangastaða í nágrenninu.
„Frá hótelinu er tilvalið að fara
í dagsferð í Landmannalaugar
og fyrir þá sem ekki eru með
bíl í slíka ferð stoppar rútan við
Landhótel á leið sinni í Land-
mannalaugar og kemur svo með
ferðafólk í gistingu hjá okkur yfir
nóttina. Þá er stutt í Þjórsárdal og
nú þegar nýja göngubrúin kemur
yfir Þjórsá eykur það enn á fjölda
fagurra og skemmtilegra göngu-
leiða. Mikil víðátta er í kringum
hótelið, margar gönguleiðir, hjóla-
leiðir og aðeins spottakorn að fara
upp á hálendið í allri sinni dýrð,“
upplýsir Dýrleif.
Rúsínan í pylsuendanum á
Landhóteli eru glænýir heitir
pottar sem senn koma á suður-
svalir þess.
„Þá klárum við f ljótlega norður-
ljósasvalirnar okkar sem verða
lokaðar og upphitaðar, og einkar
rómantískar og spennandi þegar
haustar að og næsta vetur.“
Landhótel stendur við Landveg
í Landsveit. Sími 558 0550. Allar
nánari upplýsingar á landhotel.is
Sveitahótel í faðmi fjalla, jökla og ævintýra
Landhótel er í hjarta Suðurlands og tengir gesti við margar af fegurstu náttúruperlum landsins. MYNDIR/AÐSENDAR
Herbergin eru
búin Marriot
rúmum, lúxus
sængurfatnaði,
baði og sjón-
varpi. Út um
gluggann hér
sést Hekla.
Stórt og gott sánabað er á hótelinu.
Veitingasalurinn er bjartur með
stórkostlegri fjalla- og jöklasýn.
VEIÐI
SÖGUSTAÐIR
ÚTREIÐAR
SAGA
NÁTTÚRA
ÚTIVIST
Njótið útivistar, s.s. gönguferða, hesta-
mennsku eða fuglaskoðunar í Húnavatns-
hreppi. Á svæðiðinu má finna sögusvið
Vatnsdælasögu og Grettissögu. Þingeyra-
kirkja, fornt kirkju- og lærdómssetur er
rómuð fyrir fegurð og fagra muni. Frægir
eru Þrístapar hluti af Vatnsdalshólunum,
síðasti aftökustaður landsins. Þekktasti
útlagi landsins, fjalla-Eyvindur gerði sér
bústað á Hveravöllum. Í Húnavatnshreppi
er úrval góðrar gistingar, s.s. tjaldstæði,
bændagisting og góð sveitahótel.
VERIÐ VELKOMIN
HÁLENDIÐ
HÚNA
VATNS
HREPPUR
Húnavatnshreppur
hunavatnshreppur.is
6 kynningarblað A L LT 7. maí 2021 FÖSTUDAGUR