Fréttablaðið - 07.05.2021, Qupperneq 18
Rangárþing eystra er sannkölluð
útivistarparadís. Þar er hægt að
stunda fjölbreytta útivist. Allt
frá léttum fjölskyldugöngum til
krefjandi jöklaferða.
Helgi Jóhannesson, lögmaður og
göngugarpur með meiru, þekkir
svæðið eins og lófann á sér enda
hefur Fljótshlíðin verið hans annað
heimili síðastliðin 20 ár. „Innan
sveitarfélagsins eru glæsileg fjöll og
jöklar, fallegir fossar, einstök fjara
og náttúruperlan Þórsmörk svo
eitthvað sé nefnt. Hér eru einnig
fjölmargir fallegir viðkomustaðir
sem hægt er að heimsækja á bílum,
hjólum eða vélsleðum að vetri til,“
segir Helgi.
Þríhyrningur með fimm toppa
Að sögn Helga er fjallið Þríhyrn-
ingur í uppáhaldi hjá honum þegar
kemur að styttri gönguferðum.
„Fjallið stendur á milli Fljótshlíðar
og Rangárvalla og sést víða að, enda
er víðsýnt þaðan. Fjallið er 678
metra hátt. Hækkunin frá fjallsrót-
um upp á topp er um 500 metrar og
tekur gangan upp um 1-1,5 tímar.
Gangan er því svipuð að lengd og
erfiðleikastigi og að ganga upp að
Steini í Esju sem margir þekkja. Af
fjallinu er mjög víðsýnt á góðum
degi. Þar blasa við Eyjafjallajökull,
Mýrdalsjökull, Tindfjallajökull,
Hekla, Vestmannaeyjar og Land-
eyjarnar svo eitthvað sé nefnt.
Gaman er að lengja gönguna
þegar upp er komið og ganga á alla
tinda fjallsins en þeir eru í raun
fimm þrátt fyrir nafn fjallsins.
Reikna má með að slík hringganga
taki um klukkutíma til viðbótar
við áðurnefndan uppgöngutíma,“
segir Helgi.
Fjölbreyttar og frægar gönguleiðir
„Annað fjall eða fell sem vert er að
nefna er Stóri-Dímon á Markar-
fljótsaurum og er mjög skemmti-
legt og létt að ganga á það. Fjallið
er ekki nema 178 metra hátt og því
vel viðráðanlegt fyrir bæði börn og
fullorðna. Greinilegur göngustígur
er upp á fjallið og þaðan er víðsýnt
yfir Markarfljótsaura, auk þess sem
Mýrdalsjökull, Eyjafjallajökull,
Tindfjöll og Þríhyrningur blasa
þar við.
Af öðrum gönguleiðum í sveitar-
félaginu má nefna hina einstöku
leið yfir Fimmvörðuháls, það er
frá Skógum yfir í Þórsmörk milli
Mýrdalsjökuls og Eyjafjallajökuls.
Leiðin er afar falleg, um 25 kíló-
metrar. löng og því hentug dag-
ganga. Þá eru að sjálfsögðu góðar
og fallegar gönguleiðir af ýmsu
tagi í Þórsmörk sjálfri. Ekki má svo
gleyma fjallaskíðamöguleikunum
í Rangárþingi eystra en á Eyjafjalla-
jökli og Tindfjallajökli eru frábærar
aðstæður til fjallaskíðaiðkunar.
Þetta er allt einungis brotabrot
af því sem Rangárþing eystra hefur
upp á að bjóða í útivist og göngum,“
segir Helgi.
Rangárþing eystra er útivistarparadís
Hér gefur að
líta göngu-
garpinn Helga
Jóhannesson
keikan uppi á
toppi Stóra-
Dímons með
Markarfljóts-
aura í baksýn.
MYND/AÐSEND
Gaman er að lengja
gönguna þegar upp
er komið og ganga á alla
tinda fjallsins en þeir
eru í raun fimm þrátt
fyrir nafn fjallsins.
Helgi Jóhannesson
Nú fer hver að verða síðastur að
nýta ferðagjöfina 2020 þar sem
hún rennur út 31. maí næst-
komandi. Stjórnvöld hafa ákveðið
að gefa nýja ferðagjöf að upphæð
krónur 5.000 á næstunni fyrir ein-
staklinga fædda árið 2003 og fyrr.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir, ferðamála-, iðnaðar- og
nýsköpunarráðherra, mun leggja
fram frumvarp um endurnýjun
Ferðagjafar með gildistíma
frá 1. júní 2021 til og með
31. ágúst 2021.
„Markmið ferðagjafar er
að hvetja fólk til að ferðast
vítt og breitt um landið,
ásamt því að hvetja fyrir-
tæki innan ferðaþjónust-
unnar til þátttöku í verk-
efninu, með því að bjóða
upp á fjölbreytt tilboð og
tækifæri, líkt og síðasta
sumar en átakið mæltist vel
fyrir og hafði jákvæð áhrif
á fólk og fyrirtæki,“ segir Þórdís
Kolbrún á vef Stjórnarráðsins.
Gjöfin er hluti aðgerða ríkis-
stjórnarinnar til að efla efna-
hagskerfið og draga úr þeim
neikvæðum áhrifum sem kóróna-
veirufaraldurinn hefur haft í
för með sér á atvinnulífið, þá
sér í lagi íslenska ferðaþjónustu.
Íslendingar létu ekki sitt eftir
liggja á síðasta ári en frá gildistöku
laganna í júní 2020 þar til
í apríl 2021 höfðu tæplega
200 þúsund einstaklingar
sótt Ferðagjöfina af þeim
280 þúsundum sem fengu
hana útgefna. Þá hafa 812
fyrirtæki verið skráð til
þátttöku. Með endur-
nýjun Ferðagjafar 2021
eru einstaklingar hvattir
til að ferðast innanlands í
sumar, rétt eins og síðast-
liðið sumar, eftir því sem
aðstæður leyfa.
Ný ferðagjöf væntanleg
www.boreal.isingi@boreal.is S: 864 64 89
TVEGGJA TIL SEX MANNA HÚSTRUKKAR TIL LEIGU
ÓBYGGÐIRNAR KALLA
Fullkominn ferðafélagi fyrir:
Veiðiferðina, Öræfin, Norðurljósin, Hálendið, Fjölskylduna, Vinina.
Til leigu, með eða án bílstjóra.
8 kynningarblað A L LT 7. maí 2021 FÖSTUDAGUR