Fréttablaðið - 07.05.2021, Side 24

Fréttablaðið - 07.05.2021, Side 24
Okkar kæra Kristín Oddsdóttir Bonde frá Ísafirði, lést á Hvidovre hospital 25. apríl 2021 og útför fer fram frá Margrethe kirkjunni í Valby 25. maí kl. 12.00. Peter Bonde Heidi C. Pétursdóttir Bonde Lars Holger Nielsen Maria C. Pétursdóttir Bonde Jesper Hamann-Olsen Laura, Anniken og Oliver Lára Guðbjörg Oddsdóttir Sigmar Ingason Guðný Lilja Oddsdóttir Árni Sigurðsson og aðrir aðstandendur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, Þuríður Gísladóttir Hallakri 3, Garðabæ, lést miðvikudaginn 5. maí á Landakoti. Útförin verður auglýst síðar. Arnar Jónsson Helga Þórdís Gunnarsdóttir Rögnvaldur Örn Jónsson Kristín Björg Árnadóttir María Björk Jónsdóttir Sveinn J. Kjarval Brynjar Ísak, Selma, Arndís Björk, Róbert, Hilmar Jökull, Amalía Rún, Arnór Ingi og Aldís María Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðríður Tómasdóttir lést á Droplaugarstöðum, miðvikudaginn 5. maí. Stefán Jóhann Björnsson Anna Björg Elísdóttir Þórir Björnsson Margrét Ósk Guðmundsdóttir Gunnar Björnsson Andrea Margrét Gunnarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar og tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Jóna Kjartansdóttir verslunarkona, Nýbýlavegi 54, Kópavogi, sem lést á Vífilsstöðum 25. apríl, verður jarðsungin frá Laugarneskirkju, mánudaginn 10. maí kl. 13.00. Jarðarförinni verður streymt á www.skjaskot.is/jona Hrafnhildur Einarsdóttir Kjartan Bergsson Lene Fejrø Bergur H. Bergsson Anna Maria Gregersen og fjölskyldur. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegs sonar okkar og bróður, Ingva Ástvaldssonar Sérstakar þakkir eru til allra þeirra sem styrktu félögin Einstök börn og Umhyggju, og einnig til starfsfólks Landspítalans á deild B7 fyrir einstaka umönnun. Martha Jónasdóttir Ástvaldur Óskarsson Margrét Björg Ástvaldsdóttir Óskar Ástvaldsson Svavar Freyr Ástvaldsson Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sigurður Björn Björnsson Leirubakka 22, Reykjavík, lést þriðjudaginn 27. apríl á Vífilsstöðum. Útförin fer fram frá Langholtskirkju þriðjudaginn 11. maí kl. 13. Hjartans þakkir til þeirra sem hafa komið að umönnun Sigurðar síðustu ár. Guðrún Sigurðardóttir Alfreð Svavar Erlingsson Berglind Sigurðardóttir Björn Harðarson Hjördís Rut Sigurðardóttir Ólafur Lúther Einarsson og fjölskyldur. Það er mikill söngur í Frívakt-inni en líka góð saga sem hreyfir við fólki,“ segir Sigur-laug Dóra Ingimundardóttir, formaður Leikfélags Sauðár-króks, um inntak leikritsins Frívaktarinnar sem frumsýnt verður í kvöld í samkomuhúsinu Bifröst á Króknum. „Verkið snýst um örlög fólks, ástir, sorg og gleði – líf á sjó og landi. Svo er tónlistin f lott, eitt frumsamið lag en hin eru þekkt og af öllu tagi, mörg sjó- mannalög sem eru auðvitað klassík.“ Samið á Öxnadalsheiði Höfundur Frívaktarinnar er Pétur Guð- jónsson leikstjóri á Akureyri. Hann fékk hugmyndina þegar hann var að keyra á æfingar hjá Leikfélagi Sauðár- króks haustið 2019, að sögn Sigurlaugar. „Félagið setur jafnan upp tvær sýningar á ári, aðra í upphafi Sæluviku, síðasta sunnudag í apríl og fjölskyldusýningu á haustin. Lína Langsokkur var hér á fjölum haustið 2019 undir stjórn Pét- urs, þá báðum við hann strax að halda utan um næstu sýningu. Hann var með hugmynd að verki í kollinum og skilaði handriti í lok janúar 2020. Við byrjuðum í febrúar að kasta í hlutverk og leik- lesa og höfðum verið að í þrjár vikur þegar kórónaveiran skall á. En fólk var með handritin, hlustaði á lögin og hélt ýmsum boltum á lofti. Svo slepptum við barnasýningu síðasta haust en héldum Frívaktinni lifandi.“ Á sama tíma að ári Leikæfingar hófust aftur í febrúar síðast- liðnum en voru höktandi vegna sam- komutakmarkana, að sögn Sigurlaugar. „Við gátum æft litlar senur og því er hægt að frumsýna núna. Allar æfingar hafa verið utan venjulegs vinnutíma og kraf- ist mikils skipulags, því leikarar eru 23 og um 45 manns koma að sýningunni. Fólk þurfti stundum að fara heim og koma aftur sama kvöld því ekki máttu vera f leiri en tíu í húsinu. Við fengum útvarpsfólkið Gerði G. Bjarklind og Sig- valda Júlíusson til að lesa inn kveðjur. Það var mikill heiður. Sem formaður er ég alltaf stolt af leikfélagshópnum en sjaldan eins og nú því samstaðan þar hefur verið ótrúleg og allt er að ganga upp.“ Salurinn í Bifröst tekur yfirleitt 92 í sæti en nú þarf eins metra bil. „Miðasölu- síminn er 849 9434 og við hvetjum fólk í sömu kúlu til að panta og mæta saman,“ segir Sigurlaug. gun@frettabladid.is Héldu Frívaktinni lifandi Frívaktin, nýtt leikrit eftir Pétur Guðjónsson, verður heimsfrumsýnt í kvöld af Leik- félagi Sauðárkróks. Þar hljóma þekkt lög. Tíu sýningar eru fram undan í Bifröst. Sigurlaug segist alltaf stolt af leik- hópnum en aldrei eins og nú. Sjómannalögin eiga sinn sess í leikritinu eins og í þættinum Á frívaktinni. Lunginn af leikarahópnum ásamt Pétri Guðjónssyni leikstjóra og höfundi. MYNDIR/GUNNHILDUR GÍSLADÓTTIR Verkið snýst um örlög fólks, ást, sorg og gleði – líf á sjó og landi. 1697 Höllin Tre Kronor brennur til grunna í Stokkhólmi. Talið er að íslenska handritið Ormsbók hafi eyðilagst þar. 1908 Páll Einarsson er kosinn fyrsti borgarstjóri Reykja- víkur. 1928 Lög eru samþykkt á Alþingi um að stofnaður skuli þjóðgarður á Þingvöllum. 1951 Bandaríkin senda herlið til Íslands til að sjá um varnir þess, samkvæmt samningi sem var undirritaður tveimur dögum fyrr. 1957 Helen Keller, rithöfundur og fyrirlesari, kemur í heimsókn til Íslands til að hvetja blinda og heyrnarlausa til dáða, þeim hópi tilheyrði hún sjálf. 1978 Oddsskarðs- göng á milli Eskifjarð- ar og Neskaupstaðar eru vígð.  Merkisatburðir 7 . M A Í 2 0 2 1 F Ö S T U D A G U R12 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.