Fréttablaðið - 07.05.2021, Síða 30
ÞETTA ER EIN
STÆRSTA OG VIRT-
ASTA ÁFENGISKEPPNIN Í
HEIMINUM OG ÞEGAR ÞÚ FÆRÐ
SVONA TVÖFALT GULL ÞÁ ERTU
GREINILEGA AÐ GERA EITT-
HVAÐ RÉTT.
Þetta voru svo sannarlega tveir tvöfaldir sem gerist eiginlega aldrei,“ segir Arnar Jón Agnarsson, einn stofnenda Eyland Spirits, sem kom, sá og
sigraði með Ólafsson Icelandic Gin
á hinni virtu vínkeppni San Franc-
isco Spirits Competition þar sem það
hlaut gullverðlaun fyrir bæði bragð
og umbúðir.
„Við fengum Double Gold fyrir
pakkninguna og útlitshönnun ann-
ars vegar og hins vegar fyrir bragðið
sem er kannski það mikilvægasta
þannig að þetta voru vissulega tveir
tvöfaldir.“
Rúmlega 3.500 tegundir voru
lagðar fyrir 30 dómara sem voru
einróma um að Ólafsson verð-
skuldaði fyrstu verðlaun. „Þegar
þeir gefa allir fyrstu einkunn, eða
gullverðlaun, þá færðu svokallað
Double Gold,“ segir Arnar og dregur
hvergi úr hversu þungt slíkt vegur í
San Francisco.
„Þetta er ein stærsta og virtasta
áfengiskeppnin í heiminum og
þegar þú færð svona tvöfalt gull þá
ertu greinilega að gera eitthvað rétt.
Að ég tali nú ekki um þegar þú færð
tvenn slík verðlaun.“
Rétta blandan
Arnar bætir við að líklega megi
segja að þetta sé til marks um að þau
hafi náð því fram sem þau ætluðu
sér. „Að reyna að búa til áfengi sem
er gott á bragðið og lítur vel út. Fyrir
áfengisframleiðendur eins og okkur
er þetta hæsta viðurkenning sem
hægt er að fá þarna og er svolítið
eins og að vinna Óskarsverðlaunin.
Þannig og við erum náttúrlega
bara gersamlega himinlifandi yfir
þessu og erum að vonast til þess að
þetta hjálpi okkur enn frekar við að
hefja útflutning og gera hann bara
auðveldari að öllu leyti.“
Ginið er kennt er við náttúru-
fræðinginn og þann mikla upp-
lýsingarmann Eggert Ólafsson og
áhersla er lögð á að í raun sé um
íslenska náttúruafurð að ræða þar
sem íslenskar jurtir og vatn séu
mikilvægustu hráefnin í víninu.
Það hafi því verið framleitt með
alþjóðamarkað í huga og nú opnist
sóknarfærin.
Fullur gámur af gini
„Fyrsti gámurinn til Bandaríkjanna
verður fylltur núna í lok mánaðar-
ins,“ segir Arnar og bendir á að allur
útf lutningur hafi stöðvast vegna
faraldursins og meira eða minna
legið niðri síðustu fjóra mánuði.
„Þegar þú kemur með nýja vöru
eins og áfengi á markað, sérstaklega
erlenda markaði eins og í Banda-
ríkjunum, þá þarftu að geta fylgt
henni eftir með því að fara í heim-
sókn á barina og í búðirnar.
Við hægðum því dálítið á okkur
viljandi en erum komin á fullt núna
af því að ástandið í Bandaríkjunum
er hvað skást á þeim mörkuðum
sem við ákváðum að sækja inn á.
Þannig að fyrsti gámurinn af Ólafs-
son er væntanlegur í Bandaríkjun-
um í byrjun júní og svo fer vonandi
bara annar og svo enn annar.“
Gullna hliðið
Arnar segir þátttöku í þekktum
áfengiskeppnum eins og þeirri í
San Francisco nauðsynlega þegar
sótt er á erlenda markaði. „Þetta
er ákveðin leið sem þarf að fara til
þess að reyna að öðlast alþjóðlega
dreifingu.
Hluti af þeim leik er að taka þátt
í keppnum og ef þú vinnur til verð-
launa, að ég tali nú ekki um hæstu
verðlaun og í bestu keppnunum, þá
hjálpar það rosalega til með í fyrsta
lagi náttúrlega að finna dreifingar-
aðila og í öðru lagi að markaðurinn
hafi bara áhuga á þér.
Þannig að þegar þú segist vera
með margverðlaunað gin frá Íslandi
og Double Gold-sigurvegara í San
Fransisco þá auðveldar það þér
kannski að komast inn fyrir dyrnar
á f lestum stöðum,“ segir Arnar og
setur þetta í samhengi við kvik-
myndabransann.
„Við erum búin að taka þátt í
nokkrum keppnum og erum búin
að vera rosalega heppinn að fá gull-
verðlaun í einhverjum fimm, sex og
platínuverðlaun í einum til tveimur
sem er alveg frábært og rosa gott.
Þetta er dálítið eins og að vera
með kvikmynd og vinna Gullbjörn-
inn í Berlín og á Cannes en svo þegar
þú færð einhver verðlaun á Óskars-
verðlaunum þá talarðu ekki um
annað en það.“ toti@frettabladid.is
Fullur gingámur til Bandaríkjanna
Vínframleiðandinn Arnar Jón Agnarsson sendir fullan gám af Ólafsson-gininu til Bandaríkjanna og sækir á
markaðinn þar með tvo tvöfalda af gullverðlaunum, sem hann leggur til jafns við Óskarsverðlaunin, í farteskinu.
Þegar útflutningur stöðvaðist og Fríhöfninni var lokað segir Arnar Jón að spýtt hafi verið í lófana á Íslandi til að þrauka. „Við erum alveg ótrúlega þakklát fyrir
hversu vel hefur gengið hérna heima. Við erum á topp 3-4 listanum í ÁTVR yfir seld vín,“ segir hann eftir tvo tvöfalda af verðlaunagulli. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BÍTIÐ
Í LOFTINU
VIRKA DAGA 06:50-10:00
Sækja frá
SÆKTU NÝJA APPIÐ!
7 . M A Í 2 0 2 1 F Ö S T U D A G U R18 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð