Alþýðublaðið - 12.01.1920, Blaðsíða 4
4
A.LÞÝÐUBLAÐIÐ
hann hló líka framan í Hall
Þegar Jerry sá, að hverju Hillur
hló brosti hann enn meira. Þarna
stóðu þeir nú þrír saman á miðri
götunni og hlóu hver upp í ann
an án nokkurrar sýnilegrar ástæðu.
„Hann er stór, drengurinn sá
arna“, sagði Hallur.
„Já, það held eg!" sagði Jerry
og setti frá sér pokann. Ef ein-
hver varð til þess, að dást að
drengnum hans, varð hann fús til
þess, að standa eins lengi og
verkast vildi.
.Strákurinn þinn, ekki svo?“
Jú, víst er svol“
»Hæ, lagsi!" sagði Hallur.
„Hs, afturl" sagði stráksi.
Strax var auðséð að hann hafði
verið í „Bræðslupottinum*.
„Hvað heitir þúr“ spurði Hallur.
Jerry!“ svaraði hann.
„Og hvað heitir þú?“ Hallur
kinkaði kolli til föðursins.
„Stóri Jerry*.
„Eru fleiri samsorta þér heima?“
„Einn enn“, sagði stóri Jerry.
„Lilli*.
„Hann er ekki eins og eg“,
sagði Litli Jerry, „hann er lítill".
„Og ert þú stór ?“ sagði Hallur.
„Hann getur ekki gengið".
„Það getur þú nú ekki heldurl"
sagði Haliur hlæjandi og þreif
hann á háhest sér. „Þér hentar
betur að ríða*.
Nú lcastaði Stóri Jerry poka
sínum aftur á bak sér og þeir
héldu af stað. En í þetta sinn
drógst Hallur aftur úr, gekk beinn
í baki og spyrnti fast til jarðar.
Litli Jerry skyldi skensið, flyssaði
og barði fótastokkinn, frá sér
numinn. Stóri Jerry leit í kring
um sig, skyldi ekki skensið, en
skemti sér engu að sfður.
Þeir komu til kofans, sem báðir
Jerryarnir bygðu, en í honum
voru að eins þrjú herbergi. Kona
Jerrys kom til dyra. Hún var
svarteyg sikileyjar-stúlka, sem
virtist ekki eldri en svo, að varla
var trúlegt að hún væri móðir
eins, hvað þá fleiri barna. Enn
þá h!óu þeir, en þegar þeir hættu
sagði stóri Jerry:
„Kemur þú með inn?“
„Þakka þér fyrir, það geri eg
með mestu ánægju", sagði Hallur.
H.f. Eimskipafélag
íslands.
Aðalfundur.
Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélag íslands verður haldinn
í Iðnaðarmannahúsinu í Reykjavík, laugardaginn 26. júní 1920 og
hefst kl. 1 e. h.
Dagskrá:
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkværndum á líðnu
starfsári, og frá starfstilhöguninni á yfirstandandi ári og ástæðum
fyrir henni, og leggur fram til úrskurðar endurskoðaða rekstrar-
reikninga til 31. desember 1919 og efnahagsreikning með athuga-
semdum endurskoðenda, svörum sfjórnarinnar og tillögum til úr-
skurðar frá endurskoðendunum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiftingu ársarðsins.
3. Kosning fjögra manna í stjórn félagsins í stað þeirra, sem úr
ganga samkvæmt félagslögunum.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og eins vara-
endurskoðanda.
5. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna að
verða borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða. Aðgöngu-
miðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum hlut-
hafa á skrifstofu fólagsins í Reykjavík eða öðrum stað, sem auglýstur
verður siðar, dagana 22.—24. júní, að báðum dögum meðtöldum.
Menn geta fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn hjá
hlutafjársöfnurum félagsins um alt land og afgreinslumönnum þess,
svo og á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavik. Óskað er eftir að ný
umboð og afturkallanir eldrj umboða séu komin félagsstjórninni í
hendur til skrásetningar, ef unt er 10 dögum fyrir fundinn.
Reykjavík, 5. janúar 1920.
Stjórmn.
íil söíu fíjá
' , ' .. :V J -
éC. é. íDuus.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Ólctfur Friðriksson.
Prentsmiðjan Gutenberg.